Dagblaðið - 12.08.1981, Page 28

Dagblaðið - 12.08.1981, Page 28
Srfálst, óháð dagblað c ískalt Seven up. hressir betur. Búizt við hörkuátökum á flokksstjórnarfundi krata í kvöld: STOFNAR VILMUNDUR NÝTT BLAÐ? Búizt er viö að blaðstjórn Alþýðu- blaðsins segi af sér og ný verði kjör- in á fundi flokkstjórnar Alþýðu- flokksins í kvöld. Einn blaðstjórnar- manna hefur þegar lýst opinberlega yfir afsögnsinni: Björn Friðfinnsson. Segja heimildir blaðsins aö komi til greina að endurkjósa i blaðstjórnina þá aðra sem fyrir eru, gefi þeir kost á sér á annað borð og fái traust fundar- ins. í flokksstjórn sitja á 9. tug manna, helmingur kjörinn á flokksþingi, aðrir eru fulltrúar kjördæmaráða, aðalstjórn flokksins og þingmenn. Útlit er fyrir að marga fuUtrúa muni vanta í kvöld, sérstaklega af Iands- byggðinni. Þannig mæta ekki verka- lýðsleiðtogarnir Jón Karlsson á Sauðárkróki og Jón Helgason á Akureyri. Báðir hafa beitt sér harka- lega gegn ritstjómarstefnu Vilmund- arog Jóns Baidvins. Orörómur er á kreiki innan Alþýðuflokksins um að stuönings- menn VUmundar hyggist stofna tU eigin biaöaútgáfu. Áhrifamenn i Alþýðuflokknum voru varkárir i umsögn um máUð i morgun en könn- uöust þó undantekningarlaust við aö hafa heyrt um málið. Vilmundur sjálfur sagði i morgun aðspurður um biaöhugmyndina: ,,No comment!” Menn segja að það stefni ótvírætt i hörkuieg átök fylkinga á flokks- stjómarfundinum i kvöld. -ARH. Sá sem Húsavíkurlögreglan skildi eftir úti í hrauni: KÆRAN Á FLÆKINGIMILU SÝSLUMANNS OG RÁÐUNEYTIS Kæra ungs manns á Húsavík á hendur iögreglunni á staðnum hefur verið send tvivegis frá lögreglustjóra- embættinu á Húsavik til dómsmála- ráðuneytisins, þrátt fyrir að ráðu- neytið hafi kveðið upp þann úrskurð að málið skuli tekið fyrir heima í héraði. Forsaga þessa máls er sú að ungi maðurinn var í bil sem Ienti í árekstri og komu lögreglumenn frá Húsavík á staðinn. Samkvæmt framburði unga mannsins mun hann hafa beðið lögreglumennina um að fá að sitja i með lögreglubilnum inn til Húsa- víkur en því veriö hafnað. Hann ítrekaði þá óskina og óku þá lögreglumennirnir honum út i hraun og skildu hann þar eftir. Þetta kærði maðurinn til lögreglustjórans á Húsa- vik, Sigurðar Gizurarsonar, sem jafnframt er sýslumaður í Þingeyjar- sýslum. Þar sem þessi kæra beinist gegn lögreglunni á Húsavík taldi Sigurður Gizurarson sýslumaður að hann gæti ekki dæmt i málinu. Enda yfirmaður lögreglumannanna sem undir kær- unni sitja. Visaði hann þvi málinu til dómsmálaráðuneytisins til frekari ákvörðunar. í dómsmálaráðuneytinu var sú ákvörðun tekin að sýslumaður skyldi fjalla um málið. Honum var því send kæran með þeirri ábendingu að taka skýrslu af lögreglumönnun- um og gera siðan út um málið á venjulegan hátt, enda ekki um stór- mál að ræða af hálfu ráðuneytisins. Það gerist svo næst að sýslumaður fer eftir tilmælum ráðuneytisins og lögreglumennimir skila sinni skýrslu en siðan sendir sýslumaður málið aftur til ráðuneytisins. Kæra unga mannsins er þvf aftur komin inn á borð i dómsmálaráðuneytinu en þar fengust þær upplýsingar að málið yröi sent aftur norður til Húsavlkur með fyrstu ferö. Sagði Hjalti Zóphóníasson, deildarstjóri í ráðu- neytinu, að þetta væri alfarið mál sýslumannsembættisins og þvi bæri sýslumanninum að ráða fram úr þvi og kveða upp úrskurð heima í héraði. -ESE. IDAG ER SPURNINGIN: í hvaða dálki, á hvaða blaðsfðu er þessi smáauglýsing I blaðinu I dag? Glænýtt Sharp videotæki til sölu. Mjög hagststt verð. Uppl. I sima 15669. Hver er auglýsingasfmi Dagblaðs- ins? SJÁ nAnar A BAKSlÐU blaðsinsAmorgun Vinningur vikunnar: er Útsýnarferð til Torremolinos Vinningur I þessari viku er Ot- sýnaiferð til Torremolinos með Ferðaskrifstofunni Otsýn, Austur- strœti 17 Reykjavlk. 1 dag er birt á þessum stað I blaðinu spurning, tengd smáaug- lýsingum blaðsins, og nafh heppins áskrifanda dregið út og birt I smá- auglýsingadálkum á morgun. Fylgizt vel með, áskrifendur, fyrir nœstu helgi verður einn ykkar glœsilegri utanlandsferð rikari. Glundroði ríkir í Atlantshafsf lugi vegna aðgerða f lugumf erðarstjóra: 400 farþegar stranda- glópar á Islandi í nótt „Þetta er ákaflega laust i reipunum og óljóst. Fréttir sem koma jákvæðar eru jafnharðan bornar til baka,” sagði Sveinn Sæmundsson, blaðafull- trúi Flugleiða, í morgun er hann var inntur eftir ástandi mála hjá Flugleið- um vegna verkfalls bandarískra flug- umferðarstjóra og samúðaraðgerða starfsbræöra þeirra i Kanada. Samúðaraðgerðir kanadískra flugumferðarstjóra hafa valdið þvi að ekkert hefur verið hægt að fljúga um Gander-flugstjórnarsvæðið svo- kallaða en um það svæði liggur flug- leiðin frá íslandi til Bandaríkjanna. „Samkvæmt fréttum sem við feng- um átti Gander að opnast á mið- nætti. Það brást. Þeir hafa verið að opna og loka til skiptis en það hefur bara skapað ennþá meiri glundroöa og er hreinlega verra en ef svæðið væri alveg lokað,” sagði Sveinn. Þar sem vonir stóðu til að Gander- svæðið opnaðist voru tvær Fiugleiða- vélar sendar af stað frá Evrópu í gær áleiðis til Bandarikjanna. Þær stöðv- uðust báðar i Keflavík í gærkvöldi og i morgun voru þær þar ennþá. Farþegar annarrar vélarinnar 218 talsins, sem á að fara til New York, bíða á hóteli i Reykjavlk en farþegar hinnar vélarinnar, 179 talsins, sem er á leið til Chicago, hafa beðið í flug- stöðinni i Keflavík i alla nótt þar sem vonir hafa staöiö til að hægt yrði að fljúga fyrr með þá. Vonir stóðu til í morgun að flugumferðyrði hleypt um Gander- svæðið á ný kl. 10.30 nú fyrir hádegi þegar ný vakt átti að koma til starfa í Ganderflugstjórnarmiðstöðinni á Nýfundnalandi. -KMU. Gömlu kempurnar létu sig ekki vanta Þessar kempur voru mœttar á Reykjavikurleikana lfrjálsum Iþróttum á Laugardals- Jóel Kr. Sigurðsson fyrrum spjótkastari, þá Ásmundur Bjamason hlaupari, Gunnar vellinum Igœrkvöld. Fyrir um þrjátlu árum tóku þessir menn sjálfirþátt I — og unnu Huseby kúluvarpari, Torfi Bryngeirsson lang- og stangarstökkvari og Orn Clausen — helztu frjálslþróttamótum hérlendis og fyrir okkar hönd erlendis. Frá vinstri er hlaupari og tugþrautarkappi. DB-mynd: Bjamleifur. MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 1981. Útvariisráðs- menn óvenju sammála — um mannaráðningar á hljóðvarpi • Ingibjörg Þorbergs hlaut 5 atkvæði útvarpsráðsmanna á fundi í gær. Hún er ein umsækjenda um stöðu varadag- skrárstjóra hljóðvarps. Guðrún Guð- laugsdóttir hlaut 1 atkvæði og Silja Aðalsteinsdóttir 1 atkvæði. Aðrir umsækjendur komust ekki á blað. Gunnar E. Kvaran, afleysingamaður á fréttastofu hljóðvarps i sumar, hlaut 6 atkvæði á sama fundi. Hann sækir um fréttamannsstöðu Helga Péturs- sonar sem verður i leyfi næstu tvö árin. Einn útvarpsráðsmanna skiiaði auðum -atkvæðaseðli. Aðrir umsækjendur fengu ekki atkvæði. -ARH. Deilu Vinnueftirlitsins ogHvals hf.lokið: Starfsmenn fáföstfn Deilu Vinnueftirlits ríkisins og Hvals hf., um fyrirkomulag vinnutíma í Hvalstöðinni er nú lokið. Samkomuiag var gert við starfsmenn um tveggja sóiarhringa frí einu sinni á tveggja vikna fresti. Hefur Vinnueftirlitið fyrir sitt leyti fallizt á þessa lausn mála. -KMU.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.