Dagblaðið - 18.08.1981, Qupperneq 5
I
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1981.
Hamstur úr Gullfiskabúðinni. Hann nagar gat á allt sem hann getur.
Kanínur, hamstr-
ar og naggrísir
Siggi Salamandra vekur óskipta athygli þeirra sem koma f Gullfiskabúðina.
Skjaldbökur
og salamandra
Að lokum má geta tveggja sér-
kennilegra dýrategunda sem við sáum
í Gullfiskabúðinni. Voru það litlar
vatnaskjaldbökur og salamandra.
Skjaldbökurnar lifa við svipuð
skilyrði og fiskar en þurfa meiri
umönnun. Til er í dæminu að þær
neiti að éta. Þær- kosta 85 krónur
örsmáar en eiga að vaxa upp og geta
orðið það stórar að baðkerið þurfi
undir þær. Salamandran kostar 180
krónur. Hún er hvlt á lit og hreint
ekki fögur. En hún er sjaldgæf og
margir koma í búðina hreinlega til að
skoða hana.
-DS.
Skjaldbökurnar eru örsmáar þegar
þær eru keyptar. En með réttri umönn-
un geta þær orðið mjög stórar.
DB-myndir Einar Ólason.
Hvers konar loðin dýr sem eru
mjúk að leggja við vanga sinn er það
sem freistar margra barna.
Hamstrar, naggrísir og kanínur fylla
þennan flokk ásamt með köttum og
hundum. Þrjár fyrrtöldu tegundirnar
hafa þann kost að lifa I búrum og
þarf því ekki sífellt að vera að hugsa
um að viðra dýrin. En þau eru dýrari
i innkaupi og á fóðrum en hundar og
kettir sem éta eiginlega hvað sem er.
Kanínur, naggrisir og hamstrar
þurfa sérstakt fæði sem fæst I dýra-
búðum. Þau þurfa einnig góð og rúm
búr, sag til að grafa sig 1 og gera
þarfir sínar I, gott loft, birtu og hita.
Hægt er að kaupa þessi dýr ýmist
sem unga eða fullvaxin og fer verðið
eftir því. Kanínur eru hin einu af
þeim sem ala má til eldis en það er
annar kapítuli.
Hamstrar kosta 15 krónur I
Amason (ungar) og 20 krónur I
Gullfiskabúðinni (fullorðnir). Nag-
grísir kostar 70 krónur í Amason og
80 í Gullfiskabúðinni. Kaninur kosta
70 krónur í Amason. í Gullfiska-
búðinni fæst auk þess eitt mjúkt dýr
enn ókeypis. Kettlingur fæst ef
verzlað er fyrir 150 krónur eða meira
handa honum.
Naggrísirnir, hamstrarnir og kan-
ínumar naga allt sem að kjafti
kemur og þarf að gæta þess vel hvað
um þessi dýr verður ef þau sleppa úr
búrunum. Búrin þurfa líka að vera
sæmilega rammbyggð. Þau þurfa að
standa í góðu ljósi á daginn og
algjöru myrkri á nóttunni og í
góðum hita. -DS.
Kanlnur þessar fást I Amason. Mjúkar, loðnar og fallegar.
I!
Háþrýstídæ/ur
Tökum að okkur að háþrýsti-
þvo hús, undir málningu, skip
og vélar.
Hreingernmgar
í heimahúsum, fyrirtækjum og
stofnunum.
Teppa- og húsgagnahreins-
anir.
Gluggaþvottur, úti og inni.
Fyrsta fíokks árangur
HREINSIR l
ENGIHJALLA1 - KÓPAV0GI • SlMAR 40795 - 45461
Hringurinn bakkaður
í þágu þroskaheftra
— Hallgrímur Marinósson bakkar hringinn í kringum landið
næstu ellef u daga — Þroskahjálp hagnýtir sér bakkið í
f járöf lunar- og kynningarskyni
Næstu ellefu daga geta vegfarendur á
leið um hringveginn átt von á því að
mæta bakkandi ökumanni. Óþarfi er
fyrir þá að láta sér bregða þegar þeir
mæta honum, því; þar er á ferð Hall-
grímur Marinósson sem hefur einsett
sér að komast allan hringinn, um 1560
kilómetra, akandi afturábak.
Hallgrimur bakkar hringinn til fjár-
öflunar fyrir Þroskahjálp og um leið til
að vekja athygli á sumardvalarheimili
sem samtökin hyggjast koma á fót. Er
þar um að ræða skammtímafóstur-
heimili, sem opið yrði frá vori til
hausts, til að gefa foreldrum og öðrum
aðstandendum þroskaheftra tækifæri
til hvíldar og eðlilegs sumarleyfis. Jafn-
framt yrði um sumarleyfi að ræða fyrir
þann þroskahefta.
Sumardvalarheimilið veitti þroska-
heftum fullkomna þjónustu meðan á
dvöl stæði, hvort sem þeir kæmu frá
stofnunum, skólum eða einkaheimil-
um.
Yfir vetrartímann er ætlunin að nýta
húsnæðið til ráðstefnu- og námskeiða-
halds fyrir foreldra þroskaheftra,
kennara og aðra sérfræðinga sem að
þessum málum vinna. Þá yrðu einnig
haldin námskeið fyrir þroskahefta á
vetuma, sérstaklega þá sem að stað-
aldri dvelja I heimahúsum. Hér er um
brýnt verkefni að ræða, að sögn Egg-
erts Jóhannessonar, formanns Þroska-
hjálpar.
HaUgrímur Marinósson byrjar að
bakka í dag. Hann Ieggur upp frá
bensínafgreiðslu Skeljungs í Árbæjar-
hverfi kl. 13 en Skeljungur annast
þjónustu við bifreiðina meðan á ferð-
Hallgrimur Marinósson bakkar Skódanum
væntanlega eftir að mæta þeim á hriugnum.
gær. Margir vegfarendur eiga
DB-mynd Gunnar Örn.
inni stendur. Jöfur hf. leggur til
SKODA-bifreið sem hafa verið gerðar
smábreytingar á. Hafa m.a. verið höfð
endaskipti á ljósabúnaðinum.
Tímaritið Samúel hefur, ásamt Hall-
grími, annast undirbúning ferðarinnar.
Þroskahjálp var síðan nýlega gefinn
kostur á að hagnýta sér bakkið í fjár-
öflunar- og kynningarskyni. Hefur
Þroskahjálp selt auglýsingar á bUinn og
gefið út límmiða í tilefni akstursins.
Eru límmiðarnir til sölu.
Að sögn Þórarins J. Magnússonar,
ritstjóra Samúels, er það einsdæmi að
slík vegalengd sé bökkuð. Takist Hall-
grími áform sitt er líklegt að hann lendi
í heimsmetabókum fyrir vikið.
-KMU.
Froðuhreinsum,
sótthreinsum
fiskiskip • fiskvinnslustöðvar
• sláturhús • mjólkurbú með
viðurkenndum hreinsiefnum.