Dagblaðið - 22.08.1981, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 22.08.1981, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1981. Fyrsta mótið í röðinni var hið árlega „Politiken Cup” í Kaupmannahöfn sem fram fór í júní. Fyrstu verðlaun á mótinu voru jafnhá og á Norðurlandamótinu, eða 10.000 danskar krónur. Mótið var samt ekki eins vel skipað og í fyrra, þegar Smyslov og Mikhalkhishin frá Sovétríkjunum deildu efsta sæti. Nú kom sigurinn í hlut þeirra Velikovs (Búlgaríu), Taulbuts (Englandi) og Wedberg (Svíþjóð) sem allir hlutu 7 1/2 v af 10 mögulegum. Þátt- takendur á mótinu voru 64, meðal þeirra Margeir Pétursson (6 v.) og Sævar Bjarnason (5 1/2 v.). Margir þátttakendur í Kaupmannahöfn héldu síðan rak- leiðis til Esbjerg en þar var haldin heilmikil skákhátíð. Þar var teflt í tveimur flokkum, stórmeistaraflokki og alþjóðameistaraflokki og voru 12 keppendur í hvorum. í efri flokki tefldu 5 stórmeistarar og 5 alþjóðlegir meistarar auk tveggja „óbreyttra” skákmanna. 5 Danir og 7 erlendir skákmeistarar. Úrslit urðu þessi: 1. Lars Karlsson (Svíþjóð) 8 1/2 v. 2. Csom (Ungv.land) 7 1/2 v. 3. -4. Mestel og Keene (England) 7 v. 5. Mortensen (Danmörk) 6v. 6. -7. Jansa (Tékkó) og Höi (Danmörk) 5 1/2 v. 8. Farago (Ungv.land) 5 v. 9. Jakobsen (Danmörk) 4 1/2 v. 10. Iskov (Danmörk) 3 1/2 v. 11. -12. N.J. Fries Nielsen (Dan- mörk) og Nicholson (England) 3 v. Með þessum glæsilega sigri hlaut Lars Karlsson annan áfanga að stór- meistaratitli. Fyrsta áfanganum náði hann á skákmóti í Hradec Kralove í Tékkóslóvakíu um áramótin ’79-’80. Þriðja mótið hófst síðan fljótlega eftir að mótinu í Esbjerg lauk og fór það fram í Svendborg á Fjóni — fyrsta alþjóðlega skákmótið sem þar fer fram. Það var af styrkleikaflokki 7, einum flokki lægra en Esbjerg- mótið. Enn var Lars Karlsson á eftir stórmeistaraárangri, þriðja og síðasta áfanga, en í þetta sinn munaði hálfum vinningi. Úrslit: 1. Farago (Ungv.land) 7 1/2 v. 2. Lars Karlsson (Svíþjóð) 61/2v. 3. Jasna (Tékkó) 6v. 4. Donner (Holland) 5 v. 5. Öst Hansen (Danmörk) 4 1/2 v. 6. Sloth (Danmörk) 4v. 7. Iskov (Danmörk) 3 1/2 v. 8. -9. Bednarski (Pólland) og Poulsen (Danmörk) 3v. 10. J.O. Pedersen (Danmörk) 2 v. Og enn sér ekki fyrir endann á skákiðkun í Danaveldi. í janúar er fyrirhugað að halda Svæðismót í danska bænum Randers á Jótlandi og þangað eiga Íslendingar rétt á að senda þrjá menn. Esbjerg 1981 Hvítt: Keene Svart: Mestel Tékkneskur Benóní 1. d4 Rf6 2. c4 c5 3. d5 e5 4. Rc3 d6 5. e4 g6 6. Be2 Rbd7 7. Rf3 Rh5 8. 0-0 Rf471 9. Bxf4 exf4 10. Dd2 g5 11. e5J dxeS 12. d6 Hb8 13. h4! gxb4 14. Hfel Df6 15. Re4 Dh6 16. Dd5 Bg7 17. Rxc5 h3? 18. RxeS! RxeS 19. d7+ Bxd7 Ef 19. — Rxd7, þá 20. Bg4+ Re5 21. Hxe5 + Bxe5 22. Dxe5+ og Hb8 fellur. 20. Rxd7hxg2? Sterkara er 20. — Rxd7 21. Bh5 + Kd8, en hvítur hefur sterka sókn eftir 22. Hadl Dc6 23. Bg4! Lakara er 21. Bg4+ Kf8 22. Dxd7 hxg2 23. Kxg2 Dc6+ o.s.frv. 21. Bh5! Dxh5 22. Hxe5+ Bxe5 23. Rf6 + ! Bxf6 24. DxhS Samkvæmt nýjum kenningum eru hrókur og biskup jafnoki drottningar ef engir veikleikar eru í stöðunni. Hér er svarta kóngsstaðan veik og drottningin því sterkari. 24. — 0—0 25. Kxg2 Bg7 26. Hhl h6 27. Hh4 Hbe8 28. Hxf4 He5 29. Hf5 He6 30. b3 b6 31. Hf3 He5 32. Dh3 Hd8 33. Hg3 Kh8 34. Dg4 Hg5 35. Df3 Hxg3 + 36. Kxg3 Be5 + 37. Kg2 Kg7 38. Dg4+ Kf8 39. Dh5 Bg7 40. c5! Hc8 41. cxb6 axb6 42. Db5! — Svartur gafst upp. Ef 42. — Bd4, þá 43. Dd7! og 42. — Hb8 er svarað með 43. a4 o.s.frv. Hvitt: Mestel Svart: Karlsson Sikileyjarvörn. I.e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 g6 5. Rc3 Bg7 6. Rde2 d6 7. g3 Bg4 8. Bg2 Dd7 9. b3 Be6 10. Rd5 Rf6 11. Ref4 Bxd5 12. exd5 Re5 13. 04) 04» 14. b3 Hfc8 15. a4 Df5 16. JÓN L. ÁRNAS0N SKRIFAR UM SKÁK Goldie Hawtt vel launuð Goldie Hawn, stúlkan meö stóru augun, er komin í flokk með bezt launuðu kvikmynda- ieikurunum vestanhafs. Kvik- myndaleikstjórinn Norman Jewison hefur boðizt til að greiða henni þrjár milljónir doll- ara (um 23 milljónir íslenzkra) fyrir að leika í myndinni Best Friends. Mótleikari Goldie Hawn verður enginn annar en Burt Reynolds. Honum hafa verið boðin sömu laun og Goldie. Gokfie Hawn. Audrey Hepburn í skilnaöarmáli: Fékk ekki að halda syninum Quinn — hjátrúarfullur? Hin heimskunna leikkona Audrey Hepburn hefur staðið i skilnaðarmáli við fyrrum eigin- mann sinn, ítalska lœkninn Andrea Dotti. Út úr þeim málum hefur. meðal annars komið að Audrey hefur þurft að gefa eftir foreldraréttinn yfir ell- efu ára syni þeirra, Luca, til að fá skilnað frá Dotti. Hoppaði fram af hóteli — til að vinna viskíflösku Ofurhuginn Robert Gasser hefur ekkert á móti því að syna hugrekki sitt. Það gerði hann fyrir nokkru er hann stökk fram af 26 metra háu hóteli og hafnaði í pappakassahrúgu á gang- stéttinni fyrir neðan. Var stökkið fram- kvæmt í bænum Nykobing á eyjunni Falstri i Danmörku. Ástæðan fyrir því að Robert stökk fram af var veðmál. Hann hafði veðjað einni viskíflösku á móti öðrum manni, sem hélt því fram að Robert þyrði aldrei að stökkva. En Robert, sem er 23 ára gamall, sýndi fram á annað. Hann hefur lifibrauð sitt af því að K Robert Gasser ftýtur fram af hótelinu. ferðast um heiminn og sýna fífldirfsku sína þannig að hann er alls ekkert óvanur því að leika sér að hættunni. Lentur og staðinn upp úr pappakassahrúgunni. Zappa afkastamikill: 30 plötur á!5 árum Frank Zappa er afkastamikill tónlistarmaður. Hann er búinn að vera 15 árí bransanum og nú nýlega sendi hann frá sér 30. hljómplötu sína. Titill hennar er Tinseltown Rebillion en tónlist- in var aðallega tekin upp á tón- leikum í London ogNew York. ... \ Ha2 h6 17. g4 Dd7 18. Re2 Dc7 19. c4 He8 20. Rd4 a6 21. Hel Bf8 22. f4 Red7 23. Hae2 Pc5 24. Khl Db4 25. Bd2 Dc5 26. Bc3 Hb8 27. Dd2 Hbc8 28. Bf3 Dc7 29. h4 Rc5 30. Bb2 Rh7 31. g5 Dd7 a b c d e f g h 32. Re6! Gegn hótuninni 33. Dc3 eða 33. Dd4 á svartur ekkert svar. Ef 32. — fxe6 33. dxe6 Dc7, þá 34. Dc2 eða 34. Dc3 og vinnur. 32. — Bg7 33. Bxg7 fxe6 34. dxe6 Dc7 35. Bxh6 Rf6 36. gxf6 exf6 37. e7 Dd7 38. f5 Dxf5 39. Dd5+ Dxd5 40. Bxd5+ Kh7 41. Bf8 — og svartur gafst upp ingrid Bergman tilbúin tíi upptöku. Því er ekki að neita að töluverður svipur er með henni og Goldu Meir. Ingrid Bergman leikur Goldu Meir Ingrid Bergman lýsti því yfir í febrúar sl. að hún væri endanlega hætt að leika. Sagðist hún ákveðin ætla að fara að sinna barnabörnunum. Svo virðist sem Ingrid, sem orðin er 65 ára gömul, ætli sér ekki að standa við þá yfirlýsingu þvi við höfum frétt að hún hafi tekið að sér að leika Goldu Meir, sem eitt sinn gegndi embætti forsætisráðherra í fsrael. Paramount-kvikmyndafyrirtækið stendur fyrir gerð fjögurra klukku- stunda langrar sjónvarpsmyndar sem bera á heitið A Woman Called Golda. Sjónvarpsmyndinni verður líklega skipt niður í tvo eða fleiri þætti þegar að út- sendingu kemur en stefnt er að þvi að það verði næsta vor. Áður en Ingrid tók að sér hlutverkið setti hún það skilyrði að lítill farði yrði settur í andlit hennar og útliti hennar yrði ekki breytt of mikið.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.