Dagblaðið - 24.08.1981, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 24. ÁGÚST 1981.
3
Athugasemd við f rétt:
Einar Ólafsson stjórnarmaður I
Leigjendasamtökunum skrifar:
1 Dagblaðinu 20. ágúst sl. er frétt
um ákaflega slæma umgengni
leigjenda í leiguhúsnæði og viðtal við
eigandann. Fréttinni er slegið upp á
forsíðu undir yfirtitlinum Hin hliðin
á húsnæðisvandamálinu.
Ég get satt að segja ekki séð að
þetta sé „hin hliðin á húsnæðis-
vandamálinu” en það er einfaldlega
gífurlegur skortur á leiguhúsnæði
sem ýtir undir brask og okur þannig
að leigjendur þurfa upp til hópa (og
þeir eru reyndar 20% þjóðarinnar) að
eyða miklum tíma og fjármunum í að
leita að húsnæði og fá það svo með
afarkostum. Þó eru vissulega til
margir sanngjarnir leigusalar, sem
betur fer. En húsnæðisvandamálið er
fyrst og fremst samfélagslegt, það
væri hægt að bæta úr því með
byggingu leiguíbúða á vegum sveitar-
félaga.
Hitt er annað mál að í öllum
sviðskiptum geta menn lent á
slæmum viðskipta,,vini”, þannig
lenda leigutakar stundum á af-
skaplega leiðinlegum, ósanngjörnum
og óheiðarlegum leigusölum og svo
öfugt. En munurinn er hins vegar sá
(og hann er anzi mikill), að leigusal-
inn hefur venjulega betra tækifæri til
að níðast á leigutakanum — eftir-
spumin eftir leiguhúsnæði er nefni-
lega meiri en framboðið.
íbúðareigandinn í umræddri frétt
segist hafa leitað til Leigjenda-
samtakanna en þar var, segir hann
skv. frétt DB, „hlegið að mér og það
síðasta sem ég gerði væri að leita
þangað aftur”. Fréttinni lýkur síðan
með þessum orðum tilfærðum eftir
íbúðareigandanum: „Enn verra væri
að Leigjendasamtökin virtust gjör-
sneidd allri ábyrgðar- og sóma-
tilfinningu, eins og viðbrögð þeirra
er hann leitaði til þeirra benti til”.
Nú kannast starfsmaður
Leigjendasamtakanna alls ekki við að
leitað hafi verið til skrifstofu
samtakanna út af þessu máli.
í öðru lagi er hér út í hött að tala
um ábyrgðartilfinningu Leigjenda-
samtakanna varðandi þetta mál þar
sem þau eru frjáls samtök sem í er
aðeins hluti leigjenda — því miður —
og þau bera að sjálfsögðu enga á-
byrgð á einum og einum svörtum
sauði meðal leigjenda.
í þriðja lagi vil ég benda á að
verksvið Leigjendasamtakanna er
eins og nafnið bendir til að berjast
fyrir hagsmunum leigjenda og vera
þeim til ráðleggingar og aðstoðar.
Engu að siður hefur skrifstofa
samtakanna oft veitt leigusölum
upplýsingar og ráð eftir því sem tök
hafa verið á en að sjálfsögðu er
eðlilegra að leigusali sem lendir I
vandræðum leiti til húseigendasam-
taka eða húsaleigunefnda, sem skv.
núgildandi húsaleigulögum eiga að
vera til í hverju bæjarfélagi.
Að lokum má geta þess að oftast
eru þau skilyrði í leigusamningi að
leigutaki eigi að skilja við húsnæðið i
sama ástandi og hann tók við því ef
undan er skilið það viðhald sem
heyrir undir húseigandann, en þetta
er líka lögbundið, ef ekki er um
skriflegan samning að ræða. Þama
eiga lögin að tryggja leigusala rétt
ekki síður en leigutaka. íbúðar-
Stærðir 40—45
Verð
kr. 372,00 .
Póstsendum
Laugavegl3
Sími13508
Rafn Guðjónsson við dyr húss slns, en hann kom að ibúðinni i „rúst”, eftir sex
mánaða ieigu eins og greint var frá f DB á fimmtudag.
DB-mynd Einar Ólason.
HOOVER er heimilishjálp
SUÐURLANDSBRAUT 8, SIMI 84670
T0FRA'
Ryksugan sem svífur
HOOVER Töfradiskurinn S 3005 er ryksuga sem vekur
undrun. vegna þess hve fullkomlega einföld hún er.
Sogsfyrkurinn er ósvikinn frá 800 W mótor, og rykpokinn
rúmar 12 litra. já 12 litra af ryki. HOOVER S 3005 er
ennfremur léttasta ryksuga sem völ er á, hún liður um4
gólfið á loftpúða alveg fyrirhafnarlaust
fyrir þig. svo létt er hun.
Raddir
lesenda
FRANZISCA T
GUNNARSDÓTTIR
'búi vog1 ig erl n 80 I2 lítr léttust... \ OWmótor ) arykpoka.<
t* Made i in USA]iy
jt
Spurning
dagsins
Telur þú aö erlendir
ferðahópar eigi að fá
að ferðast um landið án
íslenzkra leiðsögu-
manna?
Oddgeir Gestsson sjómaður: Nei, þaö
held ég ekki. Ég tel að islenzkir leið-
sögumenn eigi að vera skilyrði.
Sigurður Einarsson fyrrv. vörubil-
stjóri: Það er nú vafamál. Mér finnst
ástæöulaust að láta þá valsa um eftir-
litslaust.
Friðrik Ragnarsson sendibllstjóri: Nei,
það tel ég alls ekki.
Elín S.H. Jónsdóttir, hjúkrunarfræð-
ingur og húsmóðir: Ekki þegar
hóparnir eru stórir.
Svanhildur Helgadóttir bankaritarí:
Mér finnst sjálfsagt að stóru hópunum
fylgi islenzkur leiðsögumaður.
Dagur Ásgeirsson skrifstofumaður:
Alls ekki. Mér finnst alveg óþarfi að
láta þá vaða um og eyðileggja, eins og
t.d. í Hvannalindum.