Dagblaðið - 24.08.1981, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 24. ÁGÚST 1981.
5
Ráðgjafi frá Mandeville of London verður þessa viku hér á
landi á eftirtöldum stöðum:
REYKJAVÍK: Rakarastofan Klapparstíg, sími 12725, mánudag 24. ágúst,
miðvikudag 26. ágúst, föstudag 28. ágúst.
AKUREYRI: Jón Eðvarðs, rakarastofa, Strandgötu 6, sími 24408, þriðjudag 25. ágúst.
KEFLAVÍK: Klippotek, Hafnargötu 25, sími 3428, fimmtudag 27. ágúst.
Biblíuhátíðin á Kjarvalsstöðum:
Biblian losnar undan
armi skattheimtunnar
—„Vel mun fara á þvf að biblían verði handleikin og lesin,”
sagði Friðjón Þorðarson kirkjumálaráðherra, sem tilkynnti
að ríkisstjómin hefði ákveðið að fella niður söluskatt af
Biskup flytur ávarp sitt i hátiðinni. Fyrir framan ræðustólinn eru nokkrar af hinum
nýju biblium. DB-myndir: Gunnar örn.
„Samkvæmt því verður biblían ein
bóka sem þeirrar náðar nýtur að losna
undan armi skattheimtunnar að þessu
leyti,” sagði Friðjón Þórðarson,
kirkjumálaráðherra er hann á Biblíuhá-
tíð á Kjarvalsstöðum á laugardaginn
lýsti því yfir að ríkisstjórnin hefði
samþykkt að fella niður söluskatt af
hinni nýju biblíuútgáfu. Það þýðir að
biblían kostar um 50 krónum minna en
ella hefði verið og kostar hún því um
230krónur.
í ávarpi sínu sagði kirkjumála-
ráðherra einnig: „Hin nýja biblíuút-
gáfa mun vissulega sóma sér vel í bóka-
skáp. Vel mun þó á því fara að þess
sjáist nokkur merki með tímanum að
hún verði handleikin og lesin á
heimilum landsmanna til andlegrar
uppbyggingar, huggunar og sálubóta.”
Á hátíðinni afhenti biskup
íslands, herra Sigurbjörn Einarsson,
forseta íslands, Vigdísi Finnboga-
dóttur, eintak af hinni nýju biblíu. í
ræðu sinni rakti biskup aðdraganda út-
gáfunnar og ástæður þess að í þetta
mikla verk var ráðizt. Hann afþakkaði
þeim fjölmörgum aðilum er á einn eða
annan hátt hafa unnið að þessu verki.
Síðan sagði hann: „En öllum mönnum
framar ber að þakka Hermanni Þor-
steinssyni, framkvæmdastjóra Hins
íslenzka biblíufélags. Enginn hefur fyrr
eða síðar lagt fram þvílíkt starf í þágu
Biblíufélagsins sem hann. Slík sjálf-
boðavinna af hugsjón einni saman sem
hann hefur látið í té er fágæt ef ekki
einstök nú á tímum hvar sem er í heimi
hér.”
Mikið fjölmenni var á Biblíuhá-
tíðinni á Kjarvalsstöðum. Þar sungu
HEIMSINS
FULLKOMNASTI
FRÁ
Herra Sigurbjörn Einarsson biskup býður Vigdfsi Finnbogadóttur forseta velkomna
á Bibliuhátiðina á Kjarvalsstöðum. Þar var fslcnzku þjóðinni formlega afhent hin nýja
biblfa „um hendur forseta Islands.”
þrjár ungar stúlkur, Marta Guörún
Halldórsdóttir, Hildigunnur Halldórs-
dóttir og Hildigunnur Rúnarsdóttir,
nokkur lög, Hannes Pétursson skáld
las stutta kafla úr biblíunni, Halldór
Vilhelmsson söng Úr biblíuljóðum
eftir Dvorak við undirleik Gústafs
Jóhannessonar og Hermann Þorsteins-
son flutti lokaávarp. Hátíðinni lauk
síðan með því að viðstaddir sungu
kröftuglega sálminn: Þitt orð er, Guð,
vort erfðafé.
í hinni nýju biblíu eru guðspjöllin
og Postulasagan endurþýdd úr
frumtexta og fyrri þýðing annarra rita
Nýja testamentisins (frá 1912) endur-
skoðuð. Þar hefur átt stærstan hlut að
máli Jón Sveinbjörnsson prófessor og
að sögn hans felst meginbreytingin í því
að setningaskipan griska textans er
ekki fylgt eins nákvæmlega og áður og
textinn gerður „íslenzkulegri”.
Nokkrar umbætur voru og gerðar á
sömu þýðingu Gamla testamentisins
og hefur dr. Þórir Kr. Þórðarson
prófessor átt veg og vanda að því
verki.
Mikil breyting hefur og verið gerð á
áferð og uppsetningu textans og marg-
vísleg hjálpargögn fylgja hinni nýju
biblíuútgáfu er eiga að auðvelda lestur
bókarinnar. Sagðist Hermann Þor-
steinsson framkvæmdastjóri Biblíu-
félagsins eiga þá ósk heitasta að biblían
yrði nú lesin og að það yrði ekki lengur
feimnismál að játa trú á Jesú Krist.
-GAJ.
Sambyggt: útvarp, magnari, plötuspilari og tveír hátalarar.
Verð:
7.392.-
(greiöslukjör)
29800
Skipholti19
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR
Type No.
6401
Application
Stereo
Principle
Orthodynamic
Sensitivity 94 dB
8 mW
Continuous load
2 watts
Frequency range
16-20,000 Hz
Impedance 140íohms
Distortion
Length of cord and plug type
3 m,Jack
Weight
300 g