Dagblaðið - 24.08.1981, Blaðsíða 20
20
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 24. ÁGÚST 1981.
Veðrið '
Gert er ráð fyrir sunnan- og suð-
vestanátt og skúrum á Suður- og
Vesturlandi, þurrt og sums staöar
léttskýjað á Norðausturiandi.
Kl. 6 var í Reykjavfk sunnan 2,
rigning og 7 stig, Gufuskálar sunnan1
4, skýjað og 8, Goltarviti hœgviðri,
skýjað og 8, Akureyri sunnan 2,
skýjað og 9, Raufarhöfn hœgviðri,
skýjað og 8, Dalatangi vestan 4,
skýjað og 12, Höfn suðvestan 4,.
skýjað og 12, Stórhöfði sunnan 4,
skýjað og 8.
I Þórshöfn var skýjað og 11, í Kaup-
mannahöfn lóttskýjað og 14, Osló
lóttskýjað og 10, Stokkhólmi látt-
skýjað og 11, London skýjað og 14,
Hamborg skýjað og 13, París létt-
skýjað og 9, Madrid heiðskfrt og 15,
Lissabon þokumóða og 14, New York
heiðskírt og 21.
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 41 - SÍMI 20235.
Gunnar Eyjólfsson fórst í bílslysi i
1 lorida 16. júlí sl. Jarðarförin fór fram
í Ft. Lauderdale. Hann var fæddur 9.
september 1949. Til Ameríku fór hann
méð foreldrum sínum, Þuriði Odds-
dóttur og Kristófer Eyjólfssyni 1959.
Gunnar varð eftir í Flórída þegar for-
eldrar hans hurfu aftur tii islands og
bjó hann um árabil á heimili Björns
Gunnlaugssonar, skipstjóra í Pompano
Beach. Hann kvæntist 15. mai sl.
Constance Mason. Gunnar vann við
landmælingar.
Margrét Loftsdóttir andaðist á sjúkra-
húsi Selfoss 12. ágúst. Margrét var
fædd að Neðra-Seli í Landsveit 27.
janúar 1899, dóttir hjónanna Lofts
Jakobssonar og önnu Þorsteinsdóttur.
Árið 1921 giftist hún Árna Sæmunds-
syni og eignuðust þau átta börn. Af
þeim komust sex til fullorðinsára,
Lovisa Anna, Sæmundur, sem drukkn-
aði 1944, Sigríður Theódóra, Svava
Þuríður, Guðlaugur og Rut.
Guðjón Víglundur Guðmundsson
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni
25. ágúst kl. 13.30. Jarðsett verður i
Hafnarfirði.
Áskrrftarsímé
Eldhúsbókarinna
er 2-46-66
KVIKMYNDA
FILMU
LEIGA
VELA
LEIGA
AndSát
FILMUR DG VELAR S.F.
Tónleikar
Kristensa Valdis Jónsdóttir lézt i
sjúkrahúsinu í Stykkishólmi 14. ágúst.
Hún var fædd í Stykkishólmi 17. júní
1899. Þar bjuggu þá foreldrar hennar,
Kristólína Þórunn Kristjánsdóttir og
Jón Jónsson. Árið 1924 giftist hún
Gunnari Guðmundssyni. Þau
eignuðust fjórtán börn og lifa af þeim
tólf, níu dætur og þrír synir.
Pétur Þórðarson, Grundargötu 10
Grundarfirði, andaðist á gjör-
gæzludeild Borgarspitalans 20. ágúst.
Kristján Sveinsson, Kleppsvegi 74, iézt
20. ágúst.
Steinunn Thorlacius lézt 20. ágúst.
Steinunn Pétursdóttir frá Draghálsi lézt
í Landakotsspitala 21. ágúst.
Steinunn Guðmundsdóttir frá Vest-
mannaeyjum, Borgarheiði 18 Hvera-
gerði, verður jarðsungin 25. ágúst kl.
15.
Runólfur Runólfsson frá Hólmi i
Landbroti lézt í Landspítalanum 20.
ágúst.
W. W. Rifner lézt í sjúkrahúsinu í Fíla-
delfíu 19. ágúst 1981.
Ágústa H. Hjartar, Safamýri 50, iézt i
Landspítalanum 21. ágúst.
Elsa Dagmar Runólfsdóttir, Skóla-
braut 21, er Iátin.
Krlstján Sveinlaugsson lézt 19. ágúst.
Sigurður Gunnar Björgvinsson,
Austurnesi við Skildinganes, lézt í
Landakotsspitala 14. ágúst. Hann
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
24. ágúst kl. 15.
Gyða Guðjónsdóttir verður jarðsungin
24. ágúst kl. 14 frá Hólskirkju í
Bolungarvík.
Jón Kristjánsson frá Kjörseyri, Hraun-
bæ 132, verður jarðsunginn frá Foss-
vogskirkju 25. ágúst kl. 13.30.
AA-samtökin
í dag mánudag verða fundir á vegum AA-samtak-!
anna sem hér segir: Tjarnargata 5 (s. 91-12010)
græna húsið kl. 14, 21 og kvcnnadeild uppi kl. 21.
Tjarnargata 3 (s. 91-16373) rauða húsið kl. 18 og 21.
Langholtskirkja (opinn) kl. 21.
Akureyfi, (96-22373) Geislagata 39.........21.00
Dalvík, Hafnarbraut4...................... 21.00
Hafnarfjörður, Austurgata 10.............. 21.00
Hvammstangi, Bamaskóli.................... 21.00
Mosfellssveit, Ðrúarland.................. 21.00
Raufarhöfn, Hótel Norðurljós.............. 21.00
Selfoss, (99-1787) Selfossvegi 9.......... 21.00
Suðureyri Súgandafíröi, Aöalgata.......... 21.00
Vestm.eyjar, (98-1140) Heimagata 24 ...... 20.30
í hádeginu á morgun, þriðjudag, verða fundir sem
hér segir: Tjarnargata S, græna húsiö kl. 14,
Tjamargata 3, rauða húsiö, samlokudeild kl. 12,
Keflavikurflugvöllur kl. 11.30.
Jassað á Skálafelii
í kvöld
Stefán Stefánsson, Gunnar Hrafnsson, Friðrik
Karlsson, Stefán Jökulsson og Jónas Þórir Þórisson
ætla í kvöld aö leika léttan jass á Skálafelli á áttundu
hæð Hótel Esju. Þetta eru nokkurs konar kveðju-
tónleikar fyrir þá fyrstnefndu sem em nú á fömm
utan til Bandaríkjanna. Þar hyggjast þeir mennta sig
í jassfræðum í vetur. Efnisskráin í kvöld verður
væntanlega fjölbreytt. Meðal annars leika þeir
nokkur frumsamin lög.
UM
HELGINA
Kynjaveröldin Beaubourg
og byssuóðir kúrekar
Beaubourg, eða Pompidou-höllin i
París, eins og flestir íslendingar kalla
menningarmiðstöðina, er sannkölluð
undraveröld. Þar getur almenningur
reikað um ganga og sali, skoðað
myndlist, lesið bækur, litið á kvik-
myndir, í stuttu máli sagt gert hvað-
eina sem hugsanlegt er. Byggingar-
stíll Beaubourg virðist af myndinni
að dæma ákaflega sérstæður og sam-
spil hinna einstöku byggingarhluta
alveg merkilegt. Skrítið var t.d. að
hlusta á einn arkitekta Beaubourg
lýsa öllum þeim lögmálum um kraft
og orku sem notuð voru við byggingu
Beaubourg. Ágætiskvikmynd sem
Bretar hafa gert um Beaubourg og
sýnd var í sjónvarpinu í gærkvöldi.
Þá var ekki síður gaman að
heimildarmyndinni um afríska fílinn.
Á hana var horft með öðru auganu,
meðan fréttir útvarpsins bárust um
stofuna. Svo sannarlega er fíllinn
glæsileg skepna en að hann gæti synt
vissi ég ekki, né heldur gerði ég mér
grein fyrir að Afríkufillinn þyrfti að
borða um 140 kg af grasi á dag. Þótt
fílar séu friðaðir í þjóðgörðum,
virðast mörg vandamál vera friðun
þeirra samfara. Þeir skemma trjá-
gróður mikið og eyðileggja þar með
fyrii öðrum dýrum auk þess sem þeir
verða þá að leita á ný mið til mat-
vælaöflunar. Einn heljarins víta-
hringur og útrýming fUsins virðist
vera eina rökrétta afleiðing alls þessa.
Annað tækifæri, brezki mynda-
fiokkurinn á sunnudagskvöldum, er
skrítin blanda af enskri kimni og
sænskættuðum vandamálum.
Kannski ég gefi honum annað tæki-
færi áður en ég hætti að fylgjast með
honum.
Á laugardag var mikið glápt á
sjónvarpið. Knattspyrnan heUlaði í
íþróttunum og Löður var svo á sínum
stað eftir kvöldmat. Ómissandi
þáttur sá síðamefndi. Svona rétt tU
að hita áhorfendur upp fyrir Hefnd
fyrir doUara seinna um kvöldið kom
næst heimUdamynd um viUta vestrið.
Það var óneitanlega dálítið broslegt
að horfa á einhverja vUlta vesturs sér-
fræðinga lýsa því yfir að skamm-
byssur þess tíma hefðu verið svo
ónákvæmar að varla hefði verið hægt
að hitta kýr í 30 metra fjarlægð. Og
svo í doUararmyndinni skutu þeir
hver annan með skammbyssum og
rifflum í mun meiri fjarlægð. Virtust
meira að segja hitta í hverju skoti. So
sannarlega miklar hetjur kúrekar
hvíta tjaldsins.
Svona rétt i lokin verð ég að
minnast á hljómsveitina stórgóðu,
Passadena Roof Orchestra, sem söng
og lék fyrir sjónvarpsglápara á föstu-
dagskvöld. Alveg öndvegis þáttur en
heldur hefði ég viljað hlæja að
Haraldi Lloyd.
Sem sjá má fór lítið fyrir útvarps-
hlustun um helgina. Að vísu var
opnað fyrir það á laugardag en þá
rétt til að hlusta á lýsingu brezka út-
varpsins á leik Tottenham og Aston
Villa á Wembley. Enski boltinn er
kominn af stað og bráðum verður
hann líka kominn á skjáinn hjá
Bjarna Felixsyni. Og þá verður nú
heldur betur gaman að eiga frí á
laugardögum. -SA.
Listasafn Einars Jónssonar
hefur látiö prenta 4 gerðir korta af höggmyndum
Einars Jónssonar. Tvö þeirra, sem hér sjást, eru af
Hvíld (1915—1935) og Útíagar (1898—1900). Kortin
eru til sölu í Listasafni Einars Jónssonar. Safnið er
opið yfir sumarmánuðina alla daga nema mánudaga
kl. 13.30—16.
Skip
Skip Sambands íslenzkra samvinnufélaga munu
ferma til íslands á næstunni sem hér segir:
ROTTERDAM:
ArnarfeU................26/8,9/9,23/9,7/10
ANTWERPEN:
ArnarfeU............... 27/8, 10/9, 24/9, 8/10
COOLE:
ArnarfeU...............24/8,7/9,21/9,5/10
LARVIK:
HelgafeU...............25/8,8/9,22/9,6/10
iKAUPMANNAHÖFN:
HelgafeU...............26/8,9/9,23/9,7/10
SVENDBORG:
HelgafeU............... 27/8, 10/9, 24/9, 8/10
Dísarfell.............................3/9
HELSINKI:
Dísarfell..................... 31/8,28/9
GLOUCESTER, MASS.:
JökulfeU...............................3/9
Skaftafell....................*......28/9
HALIFAX, KANADA:
Jökulfell.............................7/9
Skaftafell...........................30/9
HAMBORG:
Disarfell............................28/8
Minniiigarspldld
Minningarkort Hjartaverndar
fást á eftirtöldum stöðum:
Reykjavík: Skrifstofu Hjartaverndar, Lágmúla 9,
3. hæð, sími 83755; Reykjavíkurapóteki, Austur-
stræti 16; Skrifstofu DAS, Hrafnistu; Dvalarheim-
ili aldraðra við Lönguhlið; Garðsapóteki, Sogavegi
108; Bókabúðinni Emblu v/NorðurfeU, Breiðholti;
Árbæjarapóteki, Hraunbæ 102 a; Bókabúð Glæsi-
bæjar, Álfheimum 74 og Vesturbæjarapóteki,
Melhaga 20—22.
Kópavogur: Kópavogsapóteki, Hamraborg 11.
Hafnarfjörður: Ðókabúö Olivers Steins, Strand-
götu 31 og Sparisjóði Hafnarfjarðar, Strandgötu
8—10.
Keflavik: Rammar og gler, Sólvallagötu 11, og
Samvinnubankanum, Hafnargötu 62.
Akranes: Hjá Sveini Guðmundssyni, Jaðarsbraut
3.
ísafjörður: Hjá Júliusi Helgasyni rafvirkja-
meistara.
Siglufjörður: Verzluninni ögn.
Akureyri: Bókabúðinni Huld, Hafnarstræti 97, og
Bókavali, Kaupvangsstræti 4.
Minningarkort
Styrktarfélags vangefinna
fást á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofu félagsins,
Háteigsvegi 6. Bókabúð Braga Brynjólfssonar,
Lækjargötu 2, Bókaverzlun Snæbjarnar, Hafnar-
stræti 4 og 9, Bókaverzlun Olivers Steins, Strand-
götu 31 Hafnarfirði.
Vakin er athygli á þeirri þjónustu félagsins að
tekið er á móti minningargjöfum í sima skrifstof-'
unnar, 15941, og minningarkortin síðan innheimt
hjá sendanda með gíróseðli.
Þá eru einnig til sölu á skrifstofu félagsins minn-
ingarkort Barnaheimilissjóðs Skálatúnsheimilisins.
Mánuðina april—ágúst verður skrifstofan opin kl.
‘9—16, opiðí hádeginu.
Knattspyrnumót
í Reykjavfk
Mánudagur 24. ágúst
Melavöllur
Hm. 1. fl. B Valur:KR kl. 19
Framvöllur
Rm. 2. fl. A Fram:Fylkir kl. 18.30.
Framvöllur
Rm. 2. fl. B Fram:Fylkir kl. 20.
Lostafulli
ræninginn
Ritstjóri er Vernharður Linnet.
Kominn er út Lostafulli ræninginn,
annað hefti, en það er gefið út af
Lostafulla lystræningjanum. Ritstjóri
er Vernharður Linnet. I bókinni er saga
eftir Eyvind Eiríksson, Úr ævisögu
Jóns Pokamanns, birtur er stuttur kafli
úr Tropic of Capricorn eftir Henry
Miller og sömuleiðis kafli úr bókinni
The Wild Boys eftir William Burr-
oughs. Burroughs skrifar líka klám
undir dulnefninu Akbar del Piombo.
Úr bókinni Vængjuð svín er birtur einn
kafli í þýðingu Ádolfs Ólafssonar og
loks er í Lostafulla ræningjanum saga
úr Garðinum ilmandi.
Þriðja hefi LL mun svo koma út
seinna á árinu. LL er annars 80 bls.,
prentaður í Prentvali.
GENGIÐ
GENGISSKRÁNING Feröamanna-
NR. 157 — 21. ÁGÚST1981 gjaldeyrir
Einingkl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 Bandaríkjadollar 7,473 7,493 8,2423
1 Sterlingspund 13,945 13,982 15,380
1 Kanadadollar 6,184 6,201 6,6231
1 Dönsk króna 0,9689 0,9715 1,0686
1 Norsk króna 1,2218 1,2250 U476
1 Sœnskkróna 1,4253 1,4291 1,572
1 Finnskt mark 1,6334 1,6378 1,8015
1 Franskur f ranki 1,2661 U695 1,3964
1 Belg. franki 0,1874 0,1879 0,2068
1 Svissn. franki 3,4904 3,4998 3,8497
1 Hollenzk florina 2,7321 2,7394 3,0133
1 V.-þýzktmark 3,0335 3,0416 3,3457
1 ftölsk Ifro 0,00607 0,00609 0,0066
1 Austurr. Sch. 0,4322 0,4334 0,4767
1 Portug. Escudo 0,1131 0,1134 0,1251
1 Spánskurpaseti 0,0755 0,0767 0,0832
1 Japansktyan 0,03273 0,03281 0,036
1 Irsktound 11,086 11,116 12,2276
SDR (s'órstök dráttarróttindi) 8/1 8,4772 8,4998
Shrisvari vegna gengisskráningar 22190.