Dagblaðið - 24.08.1981, Blaðsíða 8
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 24. ÁGÚST 1981.
8
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
Ógnaröldin íGuatemala:
Konur og böm þvinguð
til að grafa sér gröf
—áður en þau voru skotin til bana
Fimmtán manns, þar á meðal
konur og börn, voru þvingaðir til að
grafa sér gröf áður en þeir voru
skotnir til bana af óþekktum vopn-
uðum mönnum í síðasta voðaverki
þeirrar borgarastyrjaldar sem nú
geisar í landinu.
Auk þess létu nítján manns lífið í
skotbardögum víðs vegar um landið
yfir helgina.
Fólk er varð vitni að fjölda-
morðunum í San Miguel Acatan,
nærri landamærum Mexíkó, síðast-
liðinn miðvikudag segir að hópur
vopnaðra manna hafi kúgað bæjar-
stjóra þessa litla bæjar, sem einkum
er byggður indíánum, til að leggja
fram lista yfir helztu ráðamenn
bæjarins.
Er hinir vopnuðu höfðu valið sér
fórnarlömb, og í þeim hópi voru
bæði konur og börn, skipuðu þeir
þeim að grafa fjöldagröf og skutu
þau síðan.
Helztu skæruliðahreyfmgar Guate-
mala hafa látið mjög til sín taka í
þessu héraði og hafa hersveitir
stjómarinnar þrásinnis orðið fyrir
barðinuáþeim.
Mannréttindahreyfingar í landinu
hafa sakað herinn og stjómvöld um
að styðja svokallaðar „dauðasveitir”
hægri manna í hermdarverkum
■þeirra gagnvart íbúum þessa héraðs,
sem sýnilega eru ætluð til þess að
hræða íbúana frá því að veita skæru-
liðum stuðning.
Talið er að a.m.k. þrjú þúsund
manns hafi látið lífið í Guatemala af
völdum borgarastyrjaldarinnar á síð-
astliðnu ári.
Sú ákvörðun ríkisstjórnar Bandarikjanna að hefja framleiðslu nifteindasprcngju hefur
mælzt illa fyrir víðast hvar í Evrópu. Sprengjan er, sem kunnugt er, þeirrar náttúru
að eyða lífi en valda litlum spjöllum á mannvirkjum og hefur það siðferði sem að baki
Frakkland:
l,75tonnaf
kannabis
gert upptækt
Frönsk tollyfirvöld komust yfir 1,75
tonn af kannabis í brezkri skútu síðast-
liðinn föstudag. Þetta er langmesta
magn fíkniefna sem frönsk yfirvöld
hafa nókkru sinni gert upptæk á einu
bretti.
slíkri vopnasmið býr verið harðlega gagnrýnt. Til mótmæla hefur komið víða i Evrópu
og var myndin hér að ofan tekin við sendiráð Bandarikjanna i Haag af hópi fólks sem
þar hafði safnzt til að mótmæla nifteindasprengjunni.
Bandaríkja-
stjórn gef ur
ekkert eftir
— ideilunnivið
flugumferðarstjóra
Drew Lewis, samgönguráðherra
Bandaríkjanna, hefur hafnað þeirri ósk
Alþjóðasamtaka flugumferðarstjóra
að bandarísk stjómvöld taki upp
viðræður við þá bandarísku flugum-
ferðarstjóra sem sagt hefur verið upp
störfum vegna ólöglegra verkfallsað-
gerða þeirra. Höfðu Alþjóðasamtök
flugumferðarstjóra, sem voru á fundi í
Amsterdam um helgina, boðizt til að
miðla málum í deilunni. Þau hafa látið
i ljós áhyggjur um að öryggi sé áfátt í
bandarískri lofthelgi vegna þess að þeir
er nú stjórni flugumferð þar kunni ekki
nægilega til verka.
40 PRÓSENT EIGINKVENNA
ÓTRÚ MÖNNUM SÍNUM
Iran:
500 manns
fyriraftöku-
sveitir
Átta stjómarandstæðingar og fjórir
aðrir afbrotamenn voru um helgina
leiddir fyrir aftökusveitir í fran, að því
er útvarpið í Teheran skýrði frá.
Alls hafa nú um 500 manns verið
leiddir fyrir aftökusveitir stjórnarinnar
á síðastliðnum tveimur mánuðum.
Haig vill mæta
Sovétmönnum
á „miðri leið”
Alexander Haig, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði í sjónvarpsviðtali
í gær að Bandaríkjastjórn sé reiðubúin
að niæta Sovétmönnum á miðri leið í
viðleitni til að bæta samskipti þessara
tveggjastórvelda.
Moskvubúar
fá kynlífs-
fræðslu
ífyrsta sinn
í næsta mánuði verður í fyrsta sinn
tekin upp fræðsla í kynlifsmálum í
skólum í Moskvu. Hér er um tilrauna-
kennslu að ræða, sem hefur að mark-
miði að brjóta niður þá andstöðumúra
sem verið hafa gegn þessari kennslu-
grein í Sovétríkjunum.
Eystrasaltslýðveldin eru eini hluti
Sovétríkjanna þar sem kynlífsfræðsla
hefur átt sér stað í skólum og mun
kennslan þar verða notuð sem fyrir-
mynd að þeirri kennslu sem nú á að
taka upp í Moskvu.
Muammar Gaddafi.
GADDAFIÁ
SKILIÐAÐ
VERDA TEK-
INN AF LÍFI
Anwar Sadat, forseti Egypta-
lands, hefur lýst því yfir að Mu-
ammar Gaddafi, leiðtogi Líbýu-
manna, eigi það skilið að verða
tekinn af lífi ef hann ber ábyrgð á
loftorrustu Bandaríkjamanna og
Líbýumanna yfir Miðjarðarhafi
í síðustu viku.
„Ef hann skipaði flugvélum
sinum að skjóta á bandarísku
þoturnar þá á hann skilið að
verða líflátinn fyrir þessa brjál-
æðislegu árás,” sagði Sadat í
viðtali við blaðið Mayo, sem er
málgagn fiokks hans.
Sadat sagði að í egypzka hern-
um væru hinar sovézku Sukoi Su-
22 vélar (þeirrar gerðar voru
líbýsku vélarnar sem áttu í orrust-
unni við Bandaríkjamenn) kall-
aðar „fljúgandi líkkistur” og það
væri hreinasta brjálæði að etja
þeim gegn bandarískum þotum.
Atef, bróðir Sadats forseta, lét
lífið í Sukoi-fiugvél á fyrsta degi
októberstríðsins við ísrael 1973.
Franskar kynlífsvenjur kannaðar:
Áhrif strangtrúaðra gyðinga hafa aukizt mjög i israelsku þjóðlifi eftir að Menachem Begin myndaði hina nýju rfkisstjórn
sina á dögunum. Likudbandalag Begins myndaði, sem kunnugt er, stjórn með stuðningi þriggja litilla flokka sem allir byggja
á trúarlegum grunni enda voru margar af kröfum þeirra f stjórnarmyndunarviðræðunum trúarlegs eðlis, svo sem um aukna
helgi hvildardagsins o.s.frv. Myndin er af hópi strangtrúaðra gyðinga.
meðaltali þriðja hvern sólarhring.
Aðeins tiu prósent kvenna eru giftar
þeim karlmanni sem þær sænguðu
fyrst með og meira en helmingur þeirra
karlmanna sem tóku þátt í könnuninni
kannaðist við að leita á fund skyndi-
kvenna að staðaldri.
látið gera varðandi kynlífsvenjur
frönsku þjóðarinnar.
Óvæntustu niðurstöðurnar eru vafa-
laust þær hversu margir iðka nú hóp-
kynlíf. Meðal þess sem síður kemur á
óvart í könnuninni má nefna að hún
sýnir að frönsk hjón hafa samfarir að
Fjörutíu prósent franskra eigin-
kvenna eru mönnum sinum ótrú.
Fimmti hluti kvenna og þriðjungur
karlmanna tekur þátt í hópkynlífi og
stúlkur á vinstri væng stjórnmálanna
missa meydóm sinn fyrr en hinar
íhaldssömu. Þetta kemur fram í könn-
un sem franska blaðið Le Matin hefur