Dagblaðið - 24.08.1981, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 24. ÁGÚST 1981.
DB á ne ytendamarkaði
ANNA
BJARNASON
Kflóverð á pakkavöru liggur
ekki alltaf í augum uppi
Kartöf lumús getur kostaö f rá 94 aurum upp í 2,58 kr. hver skammtur
Þegar pakkamatur er keyptur getur
verið dálítið erfitt að átta sig á hvert
verðið raunverulega er. Mismunandi
magn er í pökkunum og verðið að
sjálfsögðu mismunandi. Fæstir eru
með reiknivélar á sér til þess að
reikna út einingaverð, þótt algengara
sé orðið nú en áður að sjá fólk með
litlar vasareiknivélar í matvöruverzl-
unum.
Neytendasíðan hefur áður tekið
ómakið af neytendum og reiknað
fyrir þá út einingaverð á ýmsum mat-
vörutegundum. í dag skulum við at-
huga kartöflumús í pökkum.
í þremur verzlunum
Við lögðum leið okkar í þrjár stór-
verzlanir, Hagkaup, SS Glæsibæ og
Stórmarkað KRON á Skemmuvegin-
um. Úrvalið var áberandi minnst í
Hagkaup en mjög gott úrval bæði í
SS og Kron. Ekki var teljandi munur
á verðinu í heild, þótt það væri hæst í
SSáfleiritegundum.
í ljós kom að hægt er að fá kart-
öflumús á 2,58 pr. skammt og allt
niður í 0,94 kr. Dýrasti skammturinn
var Mills, bragðbætt með ýmsu góð-
gæti, í litlum, þriggja skammta
pökkum sem kosta frá 7,30 upp í 7,75
pakkinn.
Ódýrasti skammturinn, sem Neyt-
endasíðan rakst á, var stór pakki með
60 skömmtum frá Hungry Jack sem
kostaði 53,80 í Kron. Hungry Jack er
einnig til í 40 skammta pakka á 38,20
kr. (Kron) og 40,55 (SS). Maggí
reyndist næstódýrast í stórri, 75
skammta pakkningu sem kostaði
70,90 kr. bæði í Kron og Hagkaup.
Hver skammtur kostaði því 0,94 kr.
Við fundum kartöflumús í tólf
vörumerkjum í þessum þremur stór-
verzlunum, sem við lögðum leið
okkar í. Það eru raunar fleiri en tólf
tegundir því í a.m.k. tveimur vöru-
merkjunum voru ti! fleiri en ein
tegund af kartöflumús (með púr-
lauksbragði, hvítlauks, selleríbragði
o.s.frv.).-Fara hér á eftir töflur yfir
útreikninga okkar.
- A.Bj.
Neytendasíðan fór i kartöflumúsleið-
angur og sá ódýrasti sem varð á vegi
var Hungry Jack i stórri pakkningu.
DB-mynd Bjarnleifur.
Stórmarkaður KR0N:
Gott úrval og hagstætt verð
Vöruúrval almennt er mjög gott i
Stórmarkaði Kron á Skemmuvegin-
um. Þar voru fimm vörumerki og
nokkrar tegundir innan eins merkisins
eins og í Glæsibæ. Þarna var ódýrasta
kartöfiumúsin sem við fundum, stór
60 skammta Hungry Jack pakki á
53,80, eða 89 aura hver skammtur.
Hungry Jack er mjög góð vara sem við
höfum oft notað og ekki nauðsynlegt
að mæla svo nákvæmlega það sem út í
pottinn fer.
Hagkaup:
Aðeins tvær tegundir
t Hagkaup fundum við ekki nema tvær tegundir, Maggí og Erin, en tvær
stærðir af Maggí.
Tegundarheiti
Fyrir hve
marga
Verð
Verð pr.
mann
Maggi 4 7,00 1,75
Maggí 75 70,60 0,94
Erin 34J 39,60 1,15
Að vísu stóð ekki utan á Erin pakk-
anum fyrir hve marga hann væri
ætlaður. En samkvæmt því sem var í
stóru Maggí dósinni ættu að vera 34,3
skammtar í Erin pakkanum.
Leiðbeiningarnar á Maggí dósunum
eru á hollenzku, en ekki á íslenzku
eins og lögboðið er. íslendingar eru
kannski svo klárir í tungumálum að
þeir geti alveg klárað sig af hollenzk-
um leiðbeiningum utan á matvælum.
Tegundarheiti Fyrir hve marga Verð Verð pr. skammtur
Hungry Jack 60 53,80 0,89
Hungry Jack 40 38,20 0,95
Mills 6 13,65 2,27
Mills m/bragði 3 7,30 2,43
Mills vanal. 3 6,65 2^1
Coop 5-6 7,25 1,20-1,45
Brugsen 6 7,15 1,19
Maggi 75 70,90 0,94
SS Glæsibæ:
til samanbunðar á heimiliskostnaði
Hvað kostar heimilishaldið?
G0TT URVAL ENI
DÝRARIKANTINUM
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak-
andi í upplýsingamiðlun mcðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar
I fjölskyldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki cigið þér von um að fá nytsamt heimilis-
1 tæki.
1 Nafn áskrifanda
,----------------------------------------------------------------
Heimili
interRent
car rental
Bílaleiga Akureyrar
Akureyri: Tryggvabr 14 - S. 21715, 23515
Reykjavík: Skeifan 9 - S. 31615, 86915
Mesta úrvalið, besta þjónustan
Við útvegum yður afslátt
á bílaleigubílum erlendis
Hjá SS í Glæsibæ fundum við eftirfarandi tegundir:
•I
i Sími
l--------
J
Tegundarheiti
Fyrir hve
marga
l Fjöldi heimilisfólks.
Verð
Verð pr.
mann
Mills m/bragði 3 7,75 2,58
Mills venjul. 6 14,50 2,41
Bordens 8 9,25 1,15
Hungry Jack 40 40,55 1,01
Lidano (extra) 6-8 12,20 1,52-2,03
Lidano (mild) 6-8 11,50 1,91-1,43
Maggi 4 7,80 1,95
1 Kostnaður í júlímánuði 1981
i Matur og hreinlætisvörur kr.
i Annaö kr.
Alls kr.
w nií t v
t