Dagblaðið - 24.08.1981, Blaðsíða 9
9
Lögreglan i Suður-Afrfku lætur til skarar skrfða gegn fbúum hreysanna f Nyanga.
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 24. ÁGÚST 1981.
Erlent
Erlent
Erlent
HARKA STJÓRNVALDA
íS-AFRÍKU VEKUR
ÓHUG VÉÐÁ UM HEIM
Stefna stjómvalda í Suður-Afriku
gagnvart hinum hörundsdökka meiri-
hluta landsmanna hefur löngum valdið
fordæmingu umheimsins. Engu að
siður hefur fólk undrazt þá hörku sem
birtist i aðgerðum stjórnvalda gagnvart
allslausum blökkumönnum í Nyanga,
fyrir utan Höfðaborg, á dögunum.
Það var í dögun eftir eina af köld-
ustu nóttum vetrarins að vopnað
lögreglulið með hunda sér við hlið réðst
til atlögu gegn íbúum Nyanga og reif
niður hreysi þeirra sem mörg hver voru
aðeins úr plasti og öðru lauslegu sem
raðað hafði verið saman til að veita
ibúunum nokkurt skjól.
Sendinefnd bandarískra þingmanna
varð vitni að þessum atburðum og
blöskraði þingmönnunum aðfarirnar
gegn þeim fjögur hundruð blökku-
mönnum sem þarna höfðu leitað skjóls
enda var mikill fjöldi íbúanna konur og
börn. Lögreglan stöðvaði hóp sjálf-
boðaliða sem hugðust faera íbúunum
mat, ábreiður og lyf. Þingmönnum
bandarísku var einnig vísað frá, svo og
fréttamönnum.
Einn bandarísku þingmannanna,
Richard L. Ottinger frá New York,
sagðist hafa viðbjóð á hinu ómannúð-
legu aðgerðum lögreglunnar í Suður-
Afríku. ,,Eini valkostur íbúanna er nú
að snúa aftur til heimalands síns þar
sem þeir munu líklega svelta til bana.
Ég get ekki skilið stjórn sem leyfir slíkt,
hvað þá stjórn sem beinlínis beitir sér
fyrir slíku.”
Þingmaðurinn Shirley Chrisholm
klökknaði er hann sagði: ,,Ég hef
aldrei séð slika mannlega niðurlæg-
ingu. Þessar vesalings svörtu mæður og
börn þeirra.”
íbúarnir í hreysunum í Nyanga
höfðu komið ólöglega til Suður-Afríku
í von um að fá þar vinnu. Stjórnvöld
þar í landi hafa áður kynnzt vandamáli
þessarar tegundar og telja það svo stórt
í sniðum að ekki verði hjá því komizt
að sýna hörku. Umheiminum blöskrar
hins vegar það miskunnarleysi sem
konum og börnum var sýnt þarna og
hefur ekki orðið til að auka skilning á
aðskilnaðarstefnu stjórnvalda í S-
Afríku eða eins og bandaríski þing-
maðurinn Howard E. Wolpe sagði:
„Slíkir atburðir sýna að aðskilnaðar-
stefnan er sársaukafullt og ómannúð-
legt kerfi sem sviptir einstaklinga
grundvallarréttindum og mannlegri
reisn.”
MANNSKÆÐUR HVIRF-
ILVINDUR í JAPAN
—óttazt að 42 hafi farizt og 20
þúsund séu heimilislaus
Óttazt er að 42 hafi farizt um
helgina i öflugasta hvirfilvindi sem
herjað hefur á iðnaðarhéruð Japans í
tvö ár. Vindurinn olli mikilli skelf-
ingu á þéttbýlissvæðum í Japan.
Lögreglan segir að átján iík hafi
þegar fundizt. Meira en eitt hundrað
mannsslösuðust og a.m.k. 20 þúsund
eru heimilislaus.
Ár flæddu yfir bakka sína og flytja
varð um fimm þúsund fjölskyldur frá
heimilum sinum nærri borginni
Ryugasaki, sem er um 40 kílómetra
fráTókíó, vegna flóða í ánni Kokai.
í Suzaka, fyrir vestan höfuðborg-
ina, var óttazt aö tíu manns hefðu
drukknað á heimilum sínum. Margir
aðrir létu lífið annars staðar í landinu
af völdum hvirfilvindsins. Til dæmis
sópuðust sex litlir bátar beinlinis í
burtu þar sem þeir voru á siglingu úti
á vatni.
I morgun hafði dregið úr hvirfil-
vindinum er hann stefndi yfir
Okhtosk-haf í átt til Sovétríkjanna.
Vindurinn lamaði alla umferð í
Japan, hvort heldur það var flug,
járnbrautir eða ferjur og víða varð
umferðaröngþveiti á vegum er bif-
reiðir fólks sem var að snúa heim úr
helgarfríum stöðvuðust.
Mikil
UTSALA verðlækkun
,e*'(
Teg. 1804
Litir: fíautt leður eða blátt foður
Stærðir 37-41
Áður kr.JMW
Núkr. 89,95
Teg. 8058
Litur: fíautt leður
Stærðir 36-41
Áður kr. J&J.80
Núkr. 89,95
Litir: Svart, gritt, vínrautt eða rautt
rúskinn m/hrágúmmísóla
Stærðir 36-41
Áður kr. 228&0
Núkr. 99,95
Teg. 15
Litur: fíautt leður/rautt rúskinn
Stærðir 36—41
Áður kr.J88frtf
Nú kr. 149,95
Teg. 410
Utir: Svart, hvitt, rautt, blátt, beige,
brúnt leður.
Stærðir 36-41
Áður kr. JfS/OO
Núkr. 89,95
Teg. 4135
Litur: Svart rúskinn
Stærðir 36—41
Áður kr. 224fT&
Núkr. 129,95
Teg. 3401
Utur: Svart rúskinn
Stærðir 36—41
Áður kr. 22405'
Núkr. 129,95
Teg. 949
Litur: Brúnt leður
Stærðir 36—41
Áðurkr. J4tffff
Núkr. 89,95
Teg. 36004
Litir: Blátt eða bleikt
Stærðir 36—41
Áður kr.ja8&0
Núkr. 129,95
Teg. 1001
Litur: Blátt
Stærðir 36—41
Áður kr. J88&0
Nú kr. 89,95
Teg. 438
Litur: fíosa/hvítt
Stærðir 36-41
Áður kr. J86&0
Nú kr. 99,95
Teg. 646
Utur: Beige leður
Stærðir 36—41
Áður kr. JZkOff
Núkr. 79,95
Skóverzlun />.
Þórðar Péturssohar %,
Kirkjustræti 8 v/Austurvöll — Sími 14181