Dagblaðið - 27.08.1981, Blaðsíða 12
35. thl. 43. ár«. 27. ágúst 1981 Verð 24 kr.
12
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1981.
ð
fþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Steve Ovett, Englandi, endurheimti
heimsmet sitt i miluhlaupi.
Heimsmet hjá Ovett
— í míluhlaupi í Koblenz í gærkvöld
Steve Ovett endurheimti heimsmet
sitt i miluhlaupi á frjáisiþróttamóti í
Koblenz i Vestur-Þýzkalandi i gær.
Hljóp á 3:48.40 min. og bætti heims-
met landa sins Sebastian Coe um
þrettán hundruðustu úr sekúndu. Coe
setti það fyrir viku, fyrra miðvikudag, i
Zúrich i Sviss.
Þeir eru hreint stórkostlegir þessir
ensku hlauparar og Ovett setti metið i
gær nær keppnislaust. Byrjunarhrað-
inn var gifurlegur, 55,63 sek. á fyrstu
400 m og 22 þúsund áhorfendur —
troðfullur vöilur — voru heldur betur
með á nótunum. Bon Benn var fyrstur
og Ovett fylgdi fast á eftir. Millitimi á
800 m var 1:53.59 min. og þá tók James
forustu í hlaupinu. Hann hélt henni
þar til 1100 m var lokið og þá tók Ovett
forustuna. Skildi hina beinlinis eftir.
Millitimi á 1200 m var 2:50.62 min.
Síöan geystist Ovett i mark og var sex
sekúndum á undan næsta manni, Craig
Masbach, USA, sem hljóp á 3:54.14
mín.
Þýzki stórhlauparinn Thomas Wess-
inghage ætlaði að reyna að setja nýtt
heimsmet i 1500 m á mótinu. Tókst
ekki og varð meira að segja að sætta sig
við annað sætið. Steve Scott, USA,
sigraði á frábærum tímaJJ:31.94 — 58
sekúndubrotum frá heimsmetinu, sem
Ovett á. Henry Rono, Kenya, náði
bezta heimstimanum i 5000 m hlaupi,
13:12.15 mín. Reyndar er heimsmet
Rono frá 1979 13:08.40 mín. eini betri
timinn sem náðst hefur á vegalengd-
inni. -hsim.
Ajax og AZ’67
efst íHollandi
Ajax og AZ ’67 Alkmaar eru efst og
jöfn i hollenzku 1. deildinni i knatt-
spyrnu með fimm stig að þremur um-
ferðum ioknum. í 3. umferð sigraði
Ajax PEC Zwolle 5—1 á heimavelli og
meistararnir frá Alkmaar unnu PSV
Eindhoven 2—4 á útivelli. Feyjenoord
gerði jafntefli við Groningen á útivelli
2—2.
BRÚÐKAUP
ALDARINNAR
Þorsteinn Bjarnason, markvörður — bezti maður íslands
á Idrætsparken.
Vafasöm
vftaspyrna
—sagði Allan Simonsen
Frá Ólafi Unnsteinssyni, Kaupmannahöfn.
,,Það var ekki mikill áhugi hjá minum mönnum á þessum
leik og sigurinn var léttur. Ég er ekki ánægður með leik
danska liðsins. Þar vantaði nokkra góða menn,” sagði Sepp
Piontek þjálfari Dana eftir landsleikinn og bætti við: „ís-
lenzku leikmennirnir voru harðir en léku drengiiega en mínir
menn voru greinilega hræddir við meiðsli. Vinstri armur
sóknarinnar var slakur í f.h. og leikur danska liðsins var
ekki góður í síðari hálfleik. Þá voru áhorfendur mjög
daufir. Markvörður íslands, Þorsteinn Bjarnason, var mjög
góður en ég bjóst við meiru af Atla Eðvaldssyni. Vítaspyrn-
an var réttilega dæmd. Vörn isl. liðsins var góð.”
Gunnar Nu Hansen, útvarpsmaðurinn kunni: „Þetta
voru sanngjörn úrslit. Danska liðið betra. Atli Eðvaidsson
var einna beztur ísl. leikmannanna.”
Per Röntved, fyrirliði danska liðsins: „Ég er mjög
ánægður með leikinn. Þetta var drengilegur leikur og ég er
bjartsýnn á'góðan árangur í HM-leiknum við Júgóslava.
Ragnar Margeirsson kom mér sérstaklega á óvart í ísl. lið-
inu. Það var erfitt að gæta hans.”
Allan Simonsen minntist með gieði landsleiksins sem
hann lék við ísland i Reykjavik og sagði: „Ég er mjög
glaður að hafa skorað tvö mörk. Það hefur ekki oft skeð hjá
mér i landsleik. íslenzku Ieikmennirnir léku fast gegn mér en
voru drengilegir. Nei, ég vil ekkigera upp á milli einstakra
leikmanna ísl. iiðsins. Vitaspyrnan sem við fengum var
vafasöm að minu áliti. Ég hef oft verið leikinn verr i vítateig
en ekki fengið víti.”
Guðni Kjartansson landsliðsþjálfari íslands: „Ég er ekki
beint ánægður með úrslitin, því Danir fengu tvö mjög létt-
væg mörk. Ég er ekki óánægður með leikinn og isl. liðið átti
allgóðan leik i heild."
Atli Eðvaldsson: „Ég er ósáttur við tvö mörk Dana.
Fyrsta markið var skorað úr rangstöðu og vítiö var hrein
gjöf,” sagði Atli hress að vanda.
-ÓU/hsím.
St. Etienne náði
aðeins jöf nu 1-1
Christian Lopez, fyrirliði St. Etienne, skoraði sitt markið
hvorum megin á vellinum er St. Etienne og Dynamo Berlin
skildu jöfn 1—1 í undanieik fyrír Evrópukeppni meistara-
liöa í Frakklandi í gærkvöidi. Eftir þessi úrslit bendir allt til
þess að austur-þýzka liðið komist i 1. umferð keppninnar,
en siöari leikur liðanna verður i Berlín 1. september.
Lopez skoraði sjálfsmarkið á 25. mínútu er hann stýrði
skalla frá Schulz framhjá markmanni sinum. Stundarfjórð-
ungi fyrir Ieikslok bætti Lopez fyrir mistök sín er hann
potaði knettinum í mark Berlínarliðsins eftir mikla pressu
St. Etienne.
Stjörnuslagur
á Akranesi!
Það verður væntanlega mikið um að vera, a.m.k. mikið
fjör, á grasvellinum á Akranesi kl. 18.15 i dag er þar
mætast stjörnulið tveggja valinkunnra knattspyrnukappa.
Eigast þá við Stjörnulið Hermanns Gunnarssonar og
Stjörnulið Jóns Gunnlaugssonar. Lið Jóns verður að mestu
skipað leikmönnum sem gerðu garðinn frægan með Akra-
nessliðinu á árunum í kringum 1970. Má þar nefna menn á
borð við Einar Guðleifsson, Þröst Stefánsson, Harald
Sturlaugsson, Matthias Hallgrimsson, Jón Alfreðsson,
Eyleif Hafsteinsson o.fl.
-SSv.
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1981.
13
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
I
Ólaf ur Unnsteinsson símar f rá Kaupmannahöf n:
Sanngjarn sigur
en var í stærra
Frá Ólafi Unnsteinssyni, Kaup-
mannahöfn.
Danir unnu veröskuldaðan sigur á
tslandi i fjórtánda landsleik þjóðanna
að viðstöddum rúmiega 16 þúsund
áhorfendum á Idrætsparken i gær.
Úrslit 3—0 og öll mörkin voru skoruð i
fyrri hálfleik. Danska liðið þá áberandi
betra þó tvö mörk liðsins væru heldur
léttvæg. t siðari hálfleiknum jafnaðist
leikur mjög og þrír varamenn, sem
komu inn á hjá íslandi, Ragnar
Margeirsson, Ómar Torfason og Sigur-
lás Þorleifsson hleyptu miklu iffi i
islenzka liðið, einkum Ragnar. tslenzka
liðið fékk nokkur allgóð færi i leiknum
en Danir voru þó fremri á flestum
sviðum. Þorsteinn Bjarnason mark-
vörður var aðalmaður tslands i leikn-
um og bjargaði oft vel. Hjá Dönum var
Allan Simonsen frábær. Hreinn yfir-
burðamaður á vellinum hvað knatt-
tækni og sóknarieik viðkom en hann var
knattspyrnumaður Evrópu 1977. Eini
atvinnumaðurínn i danska liðinu. Þrátt
fyrir tapið má islenzka liðið allvei una
sínum hlut i leiknum. Vörnin yfirleitt
sterk og alltaf góð samvinna milii
sóknar og varnar. Þar slitnaði aidrei
neitt i sundur eins og oft hefur viljað
brenna við. En tsland fékk á sig tvö
slysaleg mörk og það gerði að úrslitin
voru óhagstæðari en efni stóðu til.
Allan Simonsen, sem dreif félaga sina i
danska liöinu áfram með stórieik
sínum, skoraði tvö af mörkum danska
liðsins.
AUir fjórir varamennirnir, sem nota
mátti, voru notaðir í íslenzka liðinu.
Viðar Halldórsson meiddist snemma
leiks og fékk aftur spark á 28. mín.
Varð þá að fara út af og kom Ólafur
Björnsson, Breiðabliki, inn á í hans
stað. Snemma í síðari hálfleik kom
Ragnar Margeirsson, Keflavík, í stað
Lárusar Guðmundssonar, Víking —
síðan kom Ómar Torfason, Víking, í
stað Árna Sveinssonar á 77. mín. og
Sigurlás Þorleifsson, ÍBV, i stað Péturs
Ormslev, Fram, á 82. mín.
Fyrsta markskotið
íslands
íslenzka liðið byrjaði ágætlega og
Magnús Bergs átti fyrsta markskotið á
2 min. Varið — en síðan fóru Danir að
láta meira að sér kveða. ísl. vörnin
stöðvaði þá þó og eitt sinn bjargaði
Sigurður Lárusson hættulegu skoti. Á
10.min. lék Pétur og Lárus skemmti-
lega saman en Dönum tókst að bjarga í
horn, sem ekki nýttist og aðeins síðar
fékk Viðar slæmt spark.
Danir náðu forustu á 12. mín. eftir
að Berthelsen hafði átt hörkuskot á
markið. Knötturinn hrökk af varnar-
mönnum til Lars Lindquist og hann
skoraöi frá vinstra vítateigshorninu.
Þorsteinn var úr jafnvægi eftir skot
JON PALL BÆTTI
EIGIÐ EVRÓPUMET
Jón Páll Sigmarsson KR setti i gær-
kvöldi nýtt Evrópumet i réttstöðulyftu
á kraftlyftingamóti i Jakabóli. Jón Páll
lyfti 360 kg og bætti þar með eigið met
um sjö og hálft kg. Gamla metið var
352,5 kg.
Undramark færði
Reyni 2-1 sigur
Ómar Björnsson skoraði svo sannar-
lega mark ársins i Sandgerði i gær-
kvöldi, þegar Reynismenn léku við
Fylki að nýju i 2. deildinni, en leik
þessara aðila var slitið á laugardaginn
vegna óveðurs. Ómar fékk knöttinn
fram við miðlinu þegar tvær minútur
voru til loka, spyrnti honum i blindni
aftur fyrir sig hátt i loft upp i áttina að
marki. Knötturinn féll mjög bratt niður
og smaug á milii handa Ögmundar
Kristinssonar markvarðar og þversláar-
innar og i netið. Sannkailað undramark
sem nægði Reynismönnum til sigurs,
þvi staðan var jöfn, 1—1, þegar þarna
var komið sögu.
Fylkismenn léku undan nokkuð
sterkum vindi fyrri hálfleikinn en tókst
ekki, þrátt fyrir nokkurn sóknarþunga,
að skapa sér opin færi enda var Reynis-
vörnin mjög traust þar til á 43. mínútu.
Þá skoraði Loftur Ólafsson með koll-
spyrnu af markteig.
Seinni hálfleikinn hófu Fylkismenn
með mikilli snerpu. Reyndu að halda
knettinum við jörðina og spila stutt en
smám saman tóku heimamenn að færa
sig upp á skaftið og sóttu fast en tókst
ekki að nýta nema eitt margra gullinna
marktækifæra. Jón Gunnar Pétursson
skoraði þá með kollspyrnu eftir send-
ingu frá Ara Arasyni, rétt eftir miðjan
hálfleik.
Ómar skoraði svo sigurmarkið og
tryggði heimamönnum bæði stigin.
Dómari var Úlfar Steindórsson og
dæmdi prýðilega.
-emm.
Formaður KSI hindr-
aði f réttamann DB
— þegar Ólafur Unnsteinsson ætlaði
að ræða við leikmenn fsl. liðsins
Frá Ólafi Unnsteinssyni, Kaup-
mannahöfn.
Ég er ekki sáttur við það að for-
maður KSÍ og ritstjóri Vísis, Ellert B.
Schram, reyndi að hindra mig i starfi
eftir iandsleik Danmerkur og íslands
á Idrætsparken. Það var köld kveðja
eftir að Danir höfðu állt fyrir mig
viljað gera á vellinum enda var ég
með blaðamannapassa.
Þegar ég kom að dyrum búnings-
herbergis isl. liðsins hljóp Ellert’i veg
fyrir mig og meinaði mér inngöngu
— spurði hvaða erindi ég ætti, reyndi
beinlinis að hindra að ég gæti talað
við leikmenn ísl. liðsins. Margir
íslendingar urðu vitni að þessu og
urðu mjög hissa á framkomu for-
mannsins og ritstjórans. Fyrir náð og
miskunn fékk ég að tala við tvo menn
en ég hélt það værí einmitt áhugamál
Ellerts B. Schram að fréttir bærust
heim af landsleiknum. Ég er engan
veginn sáttur við framkomu hans.
-ÓU/hsím.
Berthelsen og tókst ekki að verja. Á
næstu mín. skiptust liðin á upphlaup-
um. Eftir samleik Viðars, Marteins og
Péturs átti Siggi Lár. skot rétt framhjá
á 20 mín. og á næstu mín. átti Lárus
skot, sem markvörður Dana varði.
Einnig eftir góðan samleik. Einnig var
varið frá Sigga Lár. á 20. mín. En
Danir voru þó sókndjarfari og Þor-
steinn hafði talsvert að gera í markinu.
Varði vel, einkum glæsilega frá Rönt-
ved. Síðan varð Viðar að yfirgefa völlinn
vegna meiðsla á 28. mín. en á þeirri 30.
hefði ísland átt að jafna. Árni gaf vel á
Atla inn í vitateiginn en Atli skallaði
rétt yfir markið úr góðu færi. Þá var
aftur hætta við danska markið aðeins
síðar, þegar Lárus gaf vel fyrir en
sóknarmönnunum tókst ekki að ná
knettinum. Svo var gert út um leikinn.
Það var á 36. mín. Danir sóttu upp
vinstra megin. Frank Olsen gaf fallega
sendingu á Allan Simonsen inn undir
vítateig, beint á tærnar á honum.
Simonsen lék á ísl. varnarmennina með
frábærri tækni, og skoraði með föstu
skoti. Virkilega fallegt mark, hið eina
fallega í leiknum. íslenzka liðið brotn-
aði ekki þó Danir kæmust í 2—0.
Magnús Bergs átti skot í hliðarnet
danska marksins og örn Óskarsson
spyrnti framhjá eftir aukaspyrnu áður
en rothöggið kom á 38. mín. Mannike
skallaði knöttinn til Simonsen, sem lék
á miklum hraöa inn í vitateiginn. Lenti
þar í árekstri við Ólaf Björnsson og lét
sig greinilega falla. Dómarinn féll á
bragðinu. Dæmdi umsvifalaust víta-
spyrnu, sem Simonsen sjálfur skoraði
úr.
Flóðljósin sett á
Flóðljósin voru sett á í siðari hálfleik
eftir að sólin hneig til viðar í loginu á
Idi ætsparken. Hálfleikurinn var miklu
belur leikinn af hálfu ísl. liðsins en sá
fyrri og átti Ragnar þátt i því, þegar
hann kom inn á á 53. mín. og lokakafl-
inn var beztur hjá íslandi í leiknum;
Danir voru þó oft hættulegir en Þor-
steinn varði allt, sem á markið kom.
Pétur var bókaður í leiknum og Danir
skiptu inn á þremur varamönnum 1 s.h.
eins og ísland. Lítið var um opin færi
hjá íslenzka liðinu en góð skot sáust.
Til dæmis átti örn hörkuskot rétt yfir á
63. mín. Siggi Lár. skallaöi yfir danska
markið og varið var frá Erni í lokin.
Mér fannst varamennirnir Ragnar,
Ómar og Sigurlás setja nýtt líf í
íslenzka liðið. En það fór þó ekki milli
mála að betra liðið sigraði í leiknum.
Verðskuldaður sigur Dana.
Hjá íslandi var Þorsteinn beztur,
öruggur og gat ekkert gert hvað mörk-
unum viðkom. En oft varði hann vel.
Vörnin var nokkuð sterk með Martein
Geirsson fyrirliða sem bezta mann,
Örn og Viðar voru traustir bakverðir.
Lárus og Pétur gerðu laglega hluti að
venju en mér fannst Atli ekki alveg
njóta sin í leiknum. Hann hefði átt að
leika framar. Ragnar Margeirsson kom
verulega á óvart með sterkum leik.
Ásgeir lék á miðjunni og var
hrósað mikið fyrir leik sinn
— Bayen sigraði Dusseldorf 1-2 á útivelli, og var Ásgeir óheppinn að skora ekki
Frá Viggó Sigurðssyni, Leverkusen.
Bayern Múnchen sigraði Fortúna
Dússeldorf 2—1 á útivelli i gærkvöldi
en þá var leikin heil umferð i Bundes-
ligunni. Ásgeir Sigurvinsson kom inn á
snemma í fyrri hálfleik og var látinn
leika á hægrí kantinum. Wolfgang
Kraus og Paul Breitner voru á miðj-
unni og tók Kraus stöðu Breitners.
Ásgeir átti mjög góðan leik og var
mikið hælt i sjónvarpi fyrir frammi-
stöðu sina. Hann var lika mun meira
með i leiknum en um daginn, var ekki
sveltur eins og þá.
DUsseldorf komst í 1—0 eftir 12
mínútur, en þá var Ásgeir kominn inn á
og skoraði Wenzel það mark. Kraus
jafnaði metin fyrir Bayem á 29. minútu
með þrumuskoti langt utan af velli og
Dieter Höness gerði sigurmarkið um
miðjan síðari hálfleik. Þetta var
fimmta mark Höness fjórum leikjum i
deildinni. Ásgeir Sigurvinsson var
óheppinn að skora ekki í leiknum,
hann átti hörkuskot rétt framhjá mark-
inu í síðari hálfleik. Annars þótti þessi
leikur ekkert sérstakur, en Bayem var
mun sterkara liöiö.
Köln sigraði Eintracht Frankfurt á
heimavelli 2—0 og skoraði Tony
Woodcock fyrra mark Kölnar í fyrri
hálfleik. Rainer Bonhof bætti síðara
markinu við í síðari hálfleik er hann
skoraði úr vítaspyrnu. í síðari hálfleik
fékk Frankfurt einnig vítaspyrnu en
Harald Schumacher markvörður Köln-
ar varði spyrnu Bernd Nickel. Þetta er
áttunda vítið af níu sem Schumacher
hefur varið í deilda- og vináttuleikjum í
sumar.
Hamburg lék á útivelli gegn Niirn-
berg og sigraði 3—0. Liðið átti mjög
góðan leik og er allt annað að sjá það
eftir að Ernst Happel þjálfari tók við
því. Hamburg leikur nú stórskemmti-
lega sóknarknattspymu. Daninn Lars
Bastrup lék með liðinu og átti skínandi
leik.
Önnur úrslit í 4. umferð Bundeslíg-
unnar urðu þessi:
Werder Bremen-Bayer LeverkusenO—0
Eintracht Brunschw.,-Mönchenglb.0-1
Kaiserslautern-Stuttgart 3—2
Darmstadt-Bochum 2—0
Borussia Dortmund-Duisburg 2—1
Karlsruher-Arminia Bielefeld 2—1
Eftir þessa leiki er Bayern Múnchen
eitt í efsta sæti með fullt hús stiga eða
átta. Stuttgart og Bochum töpuðu nú
bæði sínum fyrsta leik. -VS/SA
Olafur'Jnnsteinsson,
fréttamaður DB
á landsleiknum
Íslenzku leikmennirnir þurfa alls ekki
að vera óánægðir með frammistöðu
sína. Sigur danska liðsins, sem hefur
mörgum góðum leikmönnum á að
skipa auk Simonsen og þar var Rönt-
ved fremstur, í stærra Iagi. Margir
íslenzkir áhorfendur voru á leiknum og
hvöttu landann. Þeir gátu alveg
ófeimnir litið framan í Dani eftir
leikinn. ÓU/hsim.
Guðrún Ingólfsdóttir — fimmta
íslandsmetið i ár.
íslandsmet
Guðrúnar
Guðrún Ingólfsdóttir, KR, setti nýtt
íslandsmet í kúluvarpi á kastmóti á
Laugardalsvelli á þriðjudag. Varpaði
14,21 m en eldra íslandsmet hennar var
14,11 m. Sett fyrr i sumar. Á móti á
Selfossi sl. sunnudag varpaði Soffía
Gestsdóttir, HSK, 13,19 metra. Bætti
sinn bezta árangur verulega. Átti 12,60
m áður.
-hsím.
Afrekskeppni
Flugleiða
á Nesvelli
Hin áriega afrekskeppni Fiugleiða i
golfi verður haldin á Nesvelli helgina
29. og 30. ágúst nk. Keppnin er ein sú
sterkasta sem haldin er hérlendis þvi
þátttökurétt eiga einungis meistarar
golfklúbba sem hafa meistaraflokk,
sigurvegarar i opnum stigamótum GSI
auk íslandsmeistara og unglingameist-
ara.
Eftirtaldir eiga rétt á þátttöku:
Sigurður Pétursson GR
Gylfi Kristinsson GS
Þorbjörn Kjærbo GS
Sigurjón R. Gíslason GK
Ómar örn Ragnarsson GL
Sveinn Sigurbergsson GK
— RagnarÓlafssonGR
— Páll Ketilsson GS
— Sigbjörn Óskarsson GV
— Jón Haukur Guðlaugsson NK
— Geir Svansson GR
— Jón Þór Gunnarsson GA
Eins og sjá má á þessari upptalningu
er hópurinn geysisterkur og má gera
ráð fyrir hörku keppni. Keppnin er
höggleikur, 72 holur, og verða leiknar
36 holur hvorn dag og hefst keppni kl.
10 á laugardag.