Dagblaðið - 27.08.1981, Blaðsíða 8
8
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1981.
Hellissandur
Dagblaðið óskar eftir umboðsmanni
á Heiiissandi.
Uppl. hjá umboðsmanni, sími93-6677
eða 91-27022.
mmiAÐw
„HIN LANGA ÞÖGN
HEFUR VERIÐ ROFIN”
segir séra Jón Bjarman fangapréstur um athugasemdir
vararannsóknarlögreglustjóraríkisins
„Ég fagna grein Þóris Oddssonar,,
vararannsóknarlögreglustjóra, sem
birtist í Morgunblaðinu á þriðjudaginn
var,” sagði sr. Jón Bjarman.”
I þessari grein fjallar Þórir Oddsson
um skoðanir sr. Jón Bjarmans. Eins og
fram hefur komið í Dagblaðinu, álítur
sr. Jón Bjarman að rannsókn á meintu
harðræði við fanga við yfirheyrslur í
Guðmundar- og Geirfinnsmálunum
árið 1976 hafi ekki verið nógu ítarleg.
Ennfremur telur séra Jón óheppilegt að
vararannsóknarlögreglustjóra skuli
hafa verið falið að kanna sakarefni á
yfirmann sinn og aðra samstarfsmenn.
Þórir segir í grein sinni að í tilvikum
sem þessum, þegar rannsóknarlög-
reglustjóri víkur sæti í máli beri dóms-
málaráðherra samkvæmt lögum nr.
108/1976 að skipa í hans stað „vara-
rannsóknarlögreglustjóra eða annan
löghæfan mann.”
Varðandi það hvort rannsókn hafi
verið nógu itarleg, segir Þórir í grein
sinni að ríkissaksóknari hafi afmarkað
sakarefnið.
Jón Bjarman sagðist mundu tjá sig
nánar um grein Þóris Oddssonar, áður
en langt um liði.
,,En ég fagna því að með þessari
grein má segja að hin langa þögn sé
rofin. Ég vænti þess að nú verði hægt
að ræða um þessi mál af hlutlægni og
umbótavilja,” sagði sr. Jón Bjarman.
-IHH.
„Ég vænti þess að nú verði bægt að ræða um þessi mál af hlutlægni og umbótavilja,”
segir sr. Jón Bjarman. DB-mynd: Gunnar Örn.
Audi 100LS árg. ’77, gullfallegur Ijós- Toyota Cressida station árg. ’80, ek-
blár gæðabill, framdrifinn, einstakir inn aðeins 6 þús. km. Nýr bill á góðu
eiginleikar í erfiðri færð. verði.
Ch. Chevy van 20 árg. ’79, sportfelgur, Datsun 180B árg. ’78, umgengni og
litað gler, silsalistar, krómtoppgrind, meðferð i sérflokki, endurryðvarinn,
pústflækjur, veltistýri, upphækkaður, upphækkaður að aftan, yfirfarinn
aukasæti. Bfll sem ekki á sinn likan. _ reglulega á 5 þús. km. fresti.
P.i! ii íl t
ilim
BILAKA.LjR
SKEIFAN 5 — SÍMAR 86010 og 86030
r
a
JŒZBQLLetCGkÓLÍ BÓnU
d
d
2
8
3
3
Suðurveri
Stigahlið 45,
simi 83730.
Bolholti 6,
simi 36645.
Dömur athugið!
Haustnámskeið hefst 31. ágúst
★ Líkamsrækt og megrun fyrir dömur á öllum aldri.
★ Tímar tvisvar eða fjórum sinnum í viku.
★ Morgun-, dag- og kvöldtímar.
★ Lausir tímar fyrir vaktavinnufólk.
★ Sérstakur matarkúr fyrir þær sem eru í megrun.
★ Sturtur — sauna — tæki — ljós.
Ath.
★ Nýju ljósabekkirnir eru í Bolholti 6.
★ Kennsla fer fram á báðum stöðum.
★ Hjá okkur skín sólin allan daginn alla daga.
★ Upplýsingar og innritun í síma 83730 og 36645.
N
E
1
8
2
Sl
E
8
njpa nQXQQQömoazzDr
VIL EKKISTANDAI
RITDEILUM UM LÖNGU
FLUTT OG DÆMD MÁL
—segir Þórður Björnsson ríkissaksóknari
„Þetta mál kom til mín þegar Jón
Oddsson, verjandi Sævars, sendi mér
bréf dags. 6. marz 1979, þar sem hann
óskaði eftir frekari rannsókn á kærum
Sævars, vegna harðræðis, sem hann
taldi sig hafa verið beittan í
gæzluvarðhaldinu í Síðumúla,” sagði
Þórður Björnsson saksóknari rikisins.
„Réttum mánuði síðar,” hélt
Þórður áfram, „hitti ég Sævar og
verjanda hans og óskaði þess þá að
Sævar setti nánar fram hvað það væri
sem hann óskaði eftir að væri
rannsakað. í framhaldi af viðræðum
okkar bárust þrjú bréf eða greinar-
gerðir um þetta efni frá Sævari.
Eftir að Þórir Oddsson hafði, að ósk
dómsmálaráðuneytis, tekið við
rannsókn á kvörtunarefnum Sævars
fékk hann bunka af öðrum skjölum,
þar á meðal bréf sr. Jóns Bjarmans,
ritað ári áður og bréf frá móður
Sævars. Þórir bar síðan undir mig, að
hvaða kæruefnum rannsóknin skyldi
beinast. Setti ég niðurstöður mínar
fram í ítarlegu bréfi til hans þann 23.
ágúst 1979.
Þar benti ég á að ýmis kæruefnanna
hefðu þegar verið rannsökuð af saka-
dómi, 1977. Voru þau skjöl og
framburðir lögð fram.
Ennfremur setti ég fram þá skoðun
mina að lýsingar Sævars á ástandi og
aðbúnaði gæzlufanga í Síðumúlafang-
elsi skyldu athugaðar nánar.
(Haustið 1978 haföi Ragnar Tómas-
son hrl. ritað borgarlækni vegna
skjólstæðings, sem ekki tengdist
Guðmundar- né Geirfinnsmálum. Ósk-
aði hann þar eftir því að athugað væri
hvort birta, loftræsting o. fl. gæti talizt
fullnægjandi til langvarandi dvalar
allan sólarhringinn, vikum og
mánuðum saman. Við athugun borgar-
læknis kom i ljós að sums staðar var
hiti og raki of mikill. Endurbætur voru
framkvæmdar sumarið 1979. — IHH).
Þórður Björnsson ríkissaksóknari:
„Hæstiréttur bendir á vissa hnökra I
formsatriðum við yfirheyrslur.”
DB-mynd: Bj. Bj.
Hœstiróttur
bendir á
vissa hnökra
„Þórir yfirheyrði síðan Hallvarð
Einvarðsson rannsóknarlögreglustjóra og
flestalla fangaverðina. Síðan sendi
hann mér öll gögnin aftur og ég útbjó
harðræðisskýrsluna, sem varð eitt
þeirra gagna, sem Hæstiréttur byggði
dóm sinn á. Sagði meðal annars í for-
sendum dómsins:
„Þegar hin rækilega rannsókn bæði
fyrir og eftir uppsögu héraðsdóms
varðandi meint harðræði og ólögmæta
rannsóknarhætti er virt verður ekki séð
að játningar ákærðu hafi verið fengnar
með ólögmætum aðferðum af hálfu
þeirra sem fóru með rannsókn
málsins.”
„Síðar í dómsforsendum segir svo:
„Rannsókn sakamáls þessa er hin
umfangsmesta á landi hér á siðari
árum. Rangir og reikulir framburðir
ýmissa þeirra, er rannsókn beindist
gegn, ollu þeim, sem með rannsóknina
fóru, miklum örðugleikum. Liggur
geysimikil vinna i rannsókn málsins, og
var m.a. freistað að beita þar ýmsum
tækniúrræðum, er að haldi mættu
koma. í fáein skipti verður eigi séð, að
þess hafi verið gætt að benda
sökuðum manni, sem yfirheyrður var
fyrir rannsóknarlögreglu, á ákvæði 1.
málsgr. 40. gr. laga nr. 74/1974, þ.e.
að honum er heimilt að neita að svara
undir vissum kringumstæðum, og við
hefur borið, að yfirheyrsla hafi staðið
samfellt lengur en 6 klukkustundir, sbr.
3. málsgr. 40. grl. sömu laga. Stöku
sinnum bera bókanir ekki með sér, að
reynt hafi verið að kveðja til
réttargæzlumenn eða verjendur við
yfirheyrslu, þar sem slíkt hefði verið
rétt. Vegna ummæla í málflutningi hér
fyrir dómi þykir ástæða til að taka
fram, að fangavörðum er eigi heimilt
að hafa afskipti af rannsókn opinbers
máls að eigin frumkvæði. Það er á-
mælisvert að fangavörður laust einn
hinna ákærðu kinnhest við yfirheyrslu,
en ráðið verður af gögnum máls, að
framkoma fangans við rannsóknar-
menn i umrætt skipti hafi veríð víta-
verð.” Sá sem Idnnhestinn gaf er nú
andaður.
„Hæstiréttur bendir á vissa hnökra
á formsatriðum vð yfirheyrslurnar. En
ég vil ekki fara að standa I ritdeilum um
gamalt mál sem löngu er flutt og
dæmt,” sagði Þórður Björnsson rikis-
saksóknari, að lokum.
-IHH.
Bíllinn maskbrotnaði á Ijósastaur
— ökumaður meðvitundarlaus í gjörgæzlu
Fólk vestan Ölfusár vaknaði við
mikinn skarkala um fjögurleytið,
aðfaranótt þriðjudags. Kom í ljós að
litill fólksblll hafði maskbrotnað á
ljósastaur vinstra megin í aksturs-
stefnu bílsins til Selfoss.
í bílnum var einn maður, 29 ára
gamall frá Njarðvíkum. Hann var
meðvitundarlaus er að var komið og
var enn í gærkvöld. Hann liggur í
gjörgæzlu Borgarspítalans og er
talinn í lífshættu.
Ekki er ljóst hvað þessu slysi olli.
-A.St.