Dagblaðið - 08.09.1981, Blaðsíða 6
6
Fjölbreytt og skemmtilegt tungumálanám
Enska, þýzka, franska, spánska
IMorðurlandamálin. íslenzka fyrir útlendinga.
Áherzla er lögð á létt og skemmtileg samtöl í kennslustundum.
Samtölin fara fram á þvi máli sem nemandinn er að læra, svo að
hann æfist i talmáli allt frá byrjun.
Síðdegistimar — kvöldtímar.
MimÍr, Brautarholti 4 — sími 10004 (kl.1-5 e.h.)
Sendill óskast
Utanríkisráðuneytið óskar að ráða pilt eða stúlku til
sendiferða hálfan daginn, fyrir hádegi, í vetur. Möguleikar
á fullu starfi í skólaleyfum og næsta sumar.
Nánari upplýsingar veittar í afgreiðslu ráðuneytisins.
Utanríkisráðuneytið.
SENDLAR ÓSKAST
Afgreiðsla Dagblaðsins óskar að ráða
sendla í vetur eftir hádegi. Þurfa að geta
byrjað strax. Upplýsingar ísíma 27022.
MWBIAÐW
HAFNARFJÖRÐUR
Blaðburðatfólk óskast strax í Hafiiar-
jjörð, sérstaklega Hvaleyrarholt og gamla
bceinn. Uppl. hjá umboðsmanni Dagblaðs-
ins, sími 51031.
MEBIAÐIÐ
BÍ LAMÁLAR AR
Aðstoðarmaður eða nemi óskast.
ÁFERÐ HF.,
Funahöfða 8, sími 85930, á kvöldin 75748.
---------VILLIBRAÐ--------------
Erum kaupendur að alls konar
villibráð
hreindýrakjöti,
gæsum,
rjúpum o.fl.
Allt greitt
í gjaldeyri.
Hafið samband við:
COCKPIT-INN
General Patton Blw. 43, Luxemburg
Sími 90-352-488-635
Til sölu
Njálsgata:
Risíbúð með sérinngangi, gæti losnað fljótlega. Verð kr.
380 þús., útb. 270 þús.
Suðurbær, Hafnarfirði:
Hæð og ris í tvíbýlishúsi, stór bílskúr fylgir. Möguleiki að
hafa tvær íbúðir. Verðtilboð óskast.
Norðurbær, Hafnarfirði:
Raðhús á einni hæð, ca 130 ferm. auk bílskúrs. Næstum
fullgerð eign. Skipti möguleg á 4—5 herb. íbúð. Verð 1050
þús.
Jón Rafnar heima 52844 Guðmundur Þórðarson hdl.
MWBOR6
faateignauUn i Kyja bi&húiinu Raykjavik
Símar 25590,21682
Erlent
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1981.
Erlent
Málefni Afganistan tekin fyrir hjá Sameinuðu þjóðunum í þessum mánuði:
Leita aðstoðar
hjá Indverjum
— Kabúlstjómin og Sovétmenn segjast tilbúnir til „sveigjanleika”
Stjórn Afganistan í Kabul hefur
beðið Indland um stuðning varðandi
umræður þær um landið er eiga að
fara fram hjá Sameinuðu þjóðunum
nú í september. ■»
Utanríkisráðherra Afganistan,
Shah Mohammad Dost, hefur af
undanfömu dvalið í Delhi til að skýra
Indverjum frá nýjum tillögum
stjórnar sinnar varðandi samninga.
Hann segir að Indlandi hafi
mikilvægu hlutverki að gegna við
samningana.
Dost átti fundi með Indiru Gandhi
og indverska utanríkisráðherranum
Narasimha i gær og sagði þeim að
Kabulstjórnin væri til með að sýna
sveigjanleika ef það mætti verða til
að finna lausn á vandamálum iands-
ins.
Talsmaður indversku stjómarinnar
sagðist álíta að sveigjanieikinn væri
m.a. fólginn í því að Afganistar væm
nú tilbúnir til að halda sameiginlegan
fund með nágrannalöndum sínum,
Pakistan og Iran, og sýna viðsýni i
afstöðu sinni til hlutverks Sameinuðu
þjóðanna í umræðunum.
Bæði Pakistan og íran hafa for-
dæmt innrás Sovétmanna í Afganist-
an og neita að viðurkenna leppstjórn
þeirra í Kabul. Þeir hafa því neitað
að ræða við fulltrúa slíkrar stjómar.
Afganskir embættismenn hafa
veríð mikið á ferðinni að undanförnu
og var Dost utanrikisráðherra m.a. I
heimsókn f Moskvu i síðasta mánuði.
Einnig hefur sovézki varautanríkis-
ráðherrann, Fyriubin, heimsótt
Pakistan og Indland, Fyriubin tókst
ekki að mýkja Pakistana, forseti
þeirra, Zia-Ul-Haq, viðurkenndi þó
að hinar nýju tillögur sýndu meiri
„sveigjanleika”.
Broshýrir Sovéthermenn ásamt innfæddum, eða eins og Sovétstjórnin auglýsir
innrásina f Afganistan.
Guatemala slítur stjórnmálasambandi við Bretland:
Astæðan ágrein-
ingur um Belize
Bretar halda þó áfram að undirbúa sjálfstæði landsins
Guatemala hefur slitið stjóm-
málasambandi við Bretland, aðeins
tveimur vikum áður en brezka Mið-
Ameríku nýlendan Beiize fær sjálf-
stæði.
Talsmaður forsetans, Carlos Toledo
Vielman, sagði blaðamönnum að
ákvörðunin hefði verið tekin vegna
þess að Bretland tryggði Belize „ein-
hliða” sjálfstæði.
Stjórnin lét loka tveimur ræðis-
mannsskrifstofum sínum í Belize og
öUum brezkum ræðismannsskrifstof-
um í Guatemala. Einnig var sUtið öUu
viðskiptasambandi við BeUze.
Ástæðan er sú að Guatemala gerir
kröfur til þessa nágrannalands síns en
þar hafa Bretar haft 1.600 manna her-
Uð í þrjár aldir.
Utanríkisráðherra Guatemala, Rafa-
el Castíllo, segir að land hans muni
ekki reyna að leggja undir sig Belize
eftír að sjálfstæði þess er endurheimt
21. september.
Talsmaður brezka utanríkisráðu-
neytisins í London segir að þeir muni
halda áfram með að undirbúa sjálf-
stæði BeUze.
— Við höfum alls ekki í hyggju að
styrkja vamarUð okkar í BeUze, bættí
hann við.
Sovétríkin:
Hvatt til
bameigna
— Fólksfækkun er stjórnvöldum áhyggjuefni
Stjórn Sovétríkjanna hefur nú
hækkað mæðralaunin til að örva konur
tU barneigna, en hún hefur miklar
áhyggjur af sifeUt lækkandi fæðingar-
tölum.
Málgagn kommúnistaflokksins,
Pravda, segir að með þessu nýja fyrir-
komulagi fái konur mánaðargreiðslur
að upphæð 50 rúblur (66 dollarar) í
heilt ár eftir fæðingu barns síns. Þar til
nú hafa konur að vísu fengið ársfrí eftir
hverja barnsfæðingu en án launa.
Pravda segir ennfremur að 50
rúblnareglan gildi aðeins um konur i
Síberiu og hefjist greiðslur þar í
nóvember. Á öðmm landsvæðum
verða mæðralaunin 35 rúblur (47
dollarar) á mánuði og hefst útborgun á
þeim árið 1982 á evrópskum land-
svæðum en 1983 i rússnesku Asiu.
Stjórnvöld tilkynntu lika að konur
fengju eina heildargreiðslu eftir hvern
barnsburð. Fá þær þannig 50 rúblur
fyrir fyrsta barn, en 100 rúblur fyrir öll
börn sem á eftir koma.
Barnsfæðingum hefur á síðustuárum
fækkað mjög á Evrópusvæðunum en
aftur á móti fjölgað í Mið-Asíu.
Að óbreyttri þróun mun Rússum
innan Sovétríkjanna hafa fækkað um
50% við næstu aldamót og er stjórn-
völdum mjög í mun að hamla á móti
því.
Samkvæmt nýju reglugerðinni
verða einstæðrum mæðrum greidd sér-
stök mánaðarlaun frá og með ára-
mótum og verða þau 20 rúblur (27
dollarar) með hverju barni. Áður voru
laun einstæöra mæöra aðeins fjóröi
hluti þessarar upphæðar.
Ellilaun hækka örlítið en stjórnvöld
tilkynntu ennfremur að konur sem
ættu fimm börn eða fleiri ættu í
framtíðinni rétt á fullum elUlaunum,
hvort sem þær hafi unnið utan heimilis
eðaekki.
Félagsmálapakki þessi mun kosta
Sovétríkin um 2,5 billjónir rúblna á ári,
eða 3,3 billjónir doUara.
Hinckley:
—Éger
saklaus
John Hinckley jr., sem sést hér á
myndinni, hefur lýst sig saklauan af
ákærunni vegna banatilræðis við
Ronald Reagan forseta. Hann er
jafnframt ákærður fyrir að hafa sært
þrjá aðra lífshættulega. Reynt var að
tryggja öryggi sakborningsins tU hins
ýtrasta þegar hann var leiddur fyrir
dómstól í Washington. Vopnaðir verðir
gættu réttarsalarins og sjálfur var
Hinckley í skotheldu vesti.
Hinckley var heldur óupplitsdjarfur
en lýsti sig samt saklausan af ákærunni
sem er í 13 Uðum. Barington Parker
dómari tilkynnti að Hinckley væri full-
komlega sakhæfur og undirbúningur
réttarhaldanna heldur því áfram.