Dagblaðið - 09.10.1981, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 09.10.1981, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1981. 3 Bömin okkar em fjár- sjóður i umsjá okkar —segir í bréffi f rá móður sem ekki vildi fóma því að vera heima hjá bömum sfnum fyriratvinnu útiíbæ 5551—1071 skrifar: Mikið gladdi það mig að lesa grein frá 4192-7828 sem birtist í DB 2. október sl. Að sjá að það eru ein- hverjir í þessu þjóðfélagi sem bera hag barna okkar fyrir brjósti. Það berst allt of lítið af svona greinum, þ.e. hvað það er sem raunverulega skiptir máli í þessum erilsama þjóðfélagi. Mitt álit er það að Það hafi aldrei og muni aldrei verða gamaldags að vera heima og hugsa um börn og bú. Hvernig getur það talizt gamaldags að vilja hlúa að því sem manni þykir vænst um í heimi þessum. En þvi miður hefur þjóðfélagið eyðilagt svo margar konur (eða hafa þær kannski eyðilagt þjóðfélagið?) að þær fyrir- finnast varla sem nenna að vera heimavinnandi. Hún (4192-7828) bendir alveg réttilega á að konur fara allt of oft út á vinnumarkaðinn til að leita sér félagsskapar. Félagsskapar???? Er það ekki lengur talinn félagsskapur að vera nálægt börnum sínum. Ekkert er eins gefandi og þroskandi að mínu mati eins og að vera með og vinna með börnum sínum. En ef kona ekki nýtur þess að vera með þeim getur hún alveg eins komið sér út á vinnumarkaðinn. Sjálf er ég heimavinnandi með 4 börn. Ég hef mína menntun en ekkert fengi mig til að fara út á vinnu- markaðinn. Ég myndi einfaldlega Raddir lesenda RUCAIMOR Verðkr. 112,00 PÓSTSENDUM ekki tíma því sjálfrar mín vegna. Vildi ég óska þess að fleiri konur sneru aftur inn á heimilið því að eitt- hvað hlýtur að vera bogið við það að heimilin standi hálftóm allan daginn. Þó að ég vorkenni þeim konum sem ekki kunna að njóta þess að vera heima þá vorkenni ég þó öllu meira þeim fjölmörgu börnum, sem ekki mega vera heima hjá sér (því ekki eru þau látin vera ein) og þá vegna eigin- girni móðurinnar í nær öllum til- vikum. Oft hefur það hvarflað að mér að skömm sé frá að segja hvað það eru margir foreldrar sem ekki eiga skilið þann mikla fjársjóð sem þeim hefur hlotnazt, þ.e. börnin. Og munið það að við eigum ekki börnin. Þau eru í okkar umsjá. Það er í okkar valdi hvernig til tekst. Þessi tvö börn eru sæl og ánsgö meö tilveruna ef marka má andlitssvipinn. Hvort þau eru börn heimavinnandi eða úti- vinnandi húsmóöur er hins vegar ekki gott aö greina. Opið í öllum deiMum til ki. 22 í kvöld, laugardag kl. 9—12. mánudaga kl.9—18 miðvikudaga kl.9—18 þriðjudaga kl.9—18 fimmtudaga kl.9—20 á A ^ A A A m .p im Q □ C Zj EZ CJ Húsgagnadeild wM Jón Loftsson hf. HHHHringbraut 121 Símar 10600 og 286Q1 BORÐSTOFUHÚSGÖGN MIKIÐ ÚRVAL - GOTT VERÐ Spurning dagsins Hvernig brygðistu við ef kvenmaður rœki þór löðr- ung, fyrirvaralaust? Þorgrimur Sigfússon nemi: Það veit ég svei mér ekki. Ég myndi að sjálfsögðu spyrjast fyrir um hvers vegna, en slægi ekki til baka. Hörður Helgason kennari: Bjóða fram hina kinnina. Sigurður Lárusson skipasmiður: Ja, það væri nú gott að hafa reynslu í slikum málum. Ég yrði vafalitið mjög undrandi ef ég yrði iöðrungaður af kvenmanni án tilefnis. Sigurður Halldórsson húsasmiður: Eg gæfi honum létt spark í afturendann — utanfótar. Hilmar Garðarsson háskólanemi: Það byggðist mikið á því hvernig skapi ég væri í. Sennilega yrðu viðbrögðin þau sömu og ef karlmaður slægi mig — högg til baka. Gylfi Óskarsson bilstjóri: Ég hef nú ekki lent i því ennþá að vera sleginn af kvenmanni, en slægi ekki til baka.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.