Dagblaðið - 09.10.1981, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 09.10.1981, Blaðsíða 14
22 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1981. Björn Kr. Jónsson, Sólheimum 23 Reykjavík, lézt 1. október 1981. Hann var fæddur 24. nóvember 1911, sonur hjónanna Jakobínu Guð- mundsdóttur og Jóns Björnssonar, eignuðust þau sex börn. Björn var kvæntur Ingileif Káradóttur, eign- uðust þau þrjú börn. Björn fór ungur í menntaskóla. en síðar lagði hann fyrir sig verzlunarstörf. Björn verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30. Oddný Friöriksdóttir, Löngufit S Garðabæ, lézt 29. september 1981. Hún var fædd 3. maí 1928, að Felli á Langanesströnd. Ólst hún þar upp í Opnuö hefur veriö aö Laugavegi 41 ný verzlun, MARELLA, með svokallaða ,,hvítu línuna” í postulini. Hvítt postulín hefur átt miklum vinsældum að fagna um alla Evrópu undanfarið og má segja aö hviti tizkuliturinn i ár hafi aukið vinsældir þessar- ar vöru um allan helming. Postulínið er allt eldfast. Eigendur verzlunarinnar eru Elín Nóadóttir og Margrét Kjartansdóttir og hafa þær fengið einkaum- boð fyrir hið þekkta franska merki „PILLIVUYT”, sem þær flytja inn milliliðalaust beint frá verksmiðj- unni. Auk hvíta postulínsins mun MARELLA einnig selja belgísk glös á hagstæðu verði í fjölbreyttu úr- vali. Fjórir sœkja um Þing- valiaprestakall Umsóknarfrestur um prestaköllin á Þingvöllum og Skagaströnd rann út 1. október. |Vunnn00iirai Þrumuvagninn ÍNEFS íkvöld Þungarokkshljómsveitin Þrumuvagninn kemur fram í NEFS-klúbbnum í kvöld ásamt hljomsveit- inni Spilafifl. Á efnisskrá Þrumuvagnsins eru hressi- leg rokklög — öll íslenzk. Þrumuvagninn var stofnaður upp úr Tívolí, og er reyndar að 3/4 hlutum skipuð sömu mönnum. Aðeins trommuleikarinn, Sigurður Reynisson, hefur bætzt við. Aðrir meðlimir eru Eiður Eiðsson söngv- ari, Brynjólfur Stefánsson bassaleikari og Einar Jónsson gítarleikari. Hljómleikarnir í kvöld hefjast kl. 21. Marella — fyrsta sórverzlunin með hvítt postulín foreldrahúsum, voru systkinin tíu. For- eldrar hennar voru Heiga Sigurðardótt- ir og Friðrik Oddsson. Oddný gekk í húsmæðraskólann á Akureyri. Starfaði hún siðar við ráðskonustörf, á sauma- stofu og í verzlun. Hún giftist Sigurði Ólafssyni, bjuggu þau lengst af á Kleppsvegi 22 en fluttu í Garðabæ 1961. Þeim varð fjögurra barna auðið. Oddný verður jarðsungin í dag, 9. október, frá Fossvogskirkju kl. 13.30. Þorleifur Ólason lézt 4. október. Hann var fæddur 18. júli 1954. Foreldrar hans voru Elín Sigurbjörnsdóttir og Óli Bjarnason, eignuðust þau sjö börn. Þorleifur var kvæntur Margréti Gunnarsdóttur, eignuðust þau tvö börn. Þorleifur stundaði sjómennsku, m.a. loðnuveiðar og sildveiðar í Norðursjó. Hann gerði út vélbátinn Sigurbjörn með bróður sínum. Þorleifur verður jarðsunginn í dag, 9. október. Veðrið Gert er ráð fyrir áframhaldandil noröaustanátt ál á Noröur- og Auatur- landi en bjart veöur sunnan og vestanlands, hW um aða yflr frost- marki aö deglnum en nœturfrost Kl. 6 var í Raykjavflc láttskýjað, —1 Gufuskálar austan 6, skýjað 4, Akur- ayri, norðvestan 2, snjókoma —1,. Raufarhöfn norðaustan 4, snjóél —1, Dalatangi noröaustan 4, alskýjað 2, Hðfn norðan 5, alskýjað 3, Stórhöföl austnnröaustan 3, láttskýjað og 4. { I Þórshöfn var láattskýjað 7, Osló skýjað 1, Stokhólmur láttskýjað 5, London skýjað 15, Hamborg skýjað 11, Paris skýjað 12, Madrld skýjað 15, Lissabon léttskýjað 15, New York heiðrfkt 9. Andiát Kiri Haukur Sigurjónsson, Drápu- hlið 38 Reykjavík, lézt á Landakots- spítala 2. október. Hann var fæddur 4. júní 1911 í Winnipeg. Foreldrar hans voru hjónin Halldóra S. Magnúsdóttir og S. Pétur Sigurjónsson. Hann var kvæntur Þórdisi Matthiasdóttur en hún lézt 1968. Seinni kona hans var Sjöfn Jónasdóttir. Kári var meinatæknir, hann starfaði á Rannsóknarstofu Há- skólans. Hann verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag kl. 9.30. Tómleikpr w I GÆRKVÚLDI Prinsinn í f rosklíki og hækkun afnotagjalda Mikið eru þær hryllilega fyndnar Auður Haralds og Valdís Óskarsdótt- ir. Ég hló svo mikið að þættinum þeirra í gærkvöldi að ég fékk í mag- ann. Sérlega fannst mér þó fyndin út- færsla Auðar á Rauðhettu og ævin- týrinu um prinsinn í frosklíki. Mikið er ég fegin að við fáum fleiri þætti frá þeim stöllum. Mér fannst líka ósköp gaman að því að heyra útvarpað frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar í gær- kvöld. Ég gat setið inni í hlýrri stofu og hlustað á Jón Múla segja mér frá tilurð verkanna og síðan bárust Ijúfir tónar að eyrum. Eftir að útvarpið fór að senda út í stereó er allt annað og skemmtilegra að hlusta á sígilda tón- list í því. En margir eru þeir ugglaust sem samt hafa bölvað því að leggja bezta útvarpstíma vikunnar undir þessa tónlist. Á meðan leikritið var flutt slökkti ég og kveikti í staðinn á sjónvarpinu. Ég er ein þeirra mörgu sem geta horft á sjónvarp utan þess tíma sem það ís- lenzka sendir. Svonefnt videó kom í fjölbýlishúsið sem ég bý í rétt eftir að flutt var í það fyrir bráðum þrem árum. Nú er búið að sýna fleiri myndir í tækinu en Háskólabíó hefur sýnt á 10—20 árum. Vitaskuld eru þær misjafnar. Og eftir að videóið er orðið fastur liður velur maður og hafnar myndum í því rétt eins og hinum miðlinum. En hefur nokkur hugsað út í alla þá peninga sem í þetta fara? Ef ís- lenzka sjónvarpið fengi þó ekki væri nema brot af öllu því fé, sem lands- menn vilja greinilega svo gjarnan borga, væri hægt að auka sendingar um ábyggilega helming, jafnvel meira. En einhverjir menn sem eru að passa upp á verðbólguna segja að ekki megi hækka afnotagjöldin, þá verði að hækka kaupið og þá náttúr- lega hækkar allt. Er 'ekki eitthvað pínulítið bogið við þ»tta kerfi? -DS. Þingvallaprestakall er tengt starfi þjóðgarðs- varðar og veitist af ráðherra að fenginni umsögn biskups og Þingvallanefndar. Umsækjendur eru 4: sr. Heimir Steinsson, rektor i Skálholti, sr. Hörður Þ. Ásbjörnsson, Reykjavík, sr. Kristján Róbertsson, prestur Frikirkju- safnaðarins í Reykjavík. sr. Valdemar Hreiðarsson prestur að Reykhólum. Undanfarin 20 ár hefur sr. Eiríkur J. Eiriksson prófastur gegnt þessu embætti en hann lætur af störfum vegna aldurs. Höfðakaupstaöarprestakall, almennt er staðurinn kallaöur Skagaströnd, hefur haft þjónustu sr. Péturs Ingjaldssonar prófasts í 40 ár, allt frá þvi að hann vígðist’1941 þar til hann lætur nú af störfum vegna aldurs. Umsækjendur um prestakalliö eru tveir: sr. Kolbeinn Þorleifsson, Reykjavík, Oddur Einars- son cand. theol, sem lauk guðfræðiprófi nú í vor. Ekki er enn ljóst hvenær kosning fer þar fram. Vígslubiskup Hólastrftis kjörinn í október Sóknarprestar Hólastiftis hins forna, 29 að tölu, munu nú i októbermánuði kjósa næsta vigslubiskup Hólastiftis i stað herra Péturs Sigurgeirssonar biskups íslands. Eitt af fyrstu embættisverkum Péturs biskups var að senda prestum nyrðra bréf og óska eftir tilnefn- ingu þeirra til þessa embættis. Tilnefningamar verða að hafa borizt fyrir 1. nóv. og verður sá skip- aður vigslubiskup sem fiest atkvæði eða tilnefningar hlýtur. Hér er því um leynilega, bréflega atkvæða- greiðslu að ræða. Má því vænta þess að Hólastiftismenn fái sinn vígslubiskup á þessu ári. Afmæli 90 ára er i dag Ásgerður Jensdóttir frá Hnifsdal, nú vistkona á Dvalarheimil- inu Höfða á Akranesi. Hún tekur á móti gestum á heimili sonar sína og tengdadóttur á Suðurgötu 109, Akra- nesi, á morgun, laugardaginn 10. októ- ber, frákl. 3 e.h. 75 ára er í dag Haflifli Gislason leigu- bílstjóri, Stórholti 20 Reykjavík. Haf- liði ekur á Bæjarleiðastöð. Hann verður að heiman. r Góður gestur hjá Islenzk- ameríska: Pulitzer-verðlauna- hafi í heimsókn hér Kvenfólag Bústaðasóknar heldur markað (kökusala og fleira) í safnaðarheimili Bústaðakirkju sunnud. 11. október að lokinni messu, kl. 15. Einnig verða á boðstólum kaffiveit- ingar og heitar vöfflur ásamt skemmtiatriðum. Markaðsvörum veitt móttaka milli kl. 16 og 18 á laugardag og frá kl. 10 á sunnudag. Stjórnmálasamband við Kólombfu Ríkisstjórnir íslands og Kólombíu hafa tekið upp stjórnmálasamband. Ekki hefur verið ákveðið hvenær skipzt verður á sendiherrum. Iþróttlr Einherjar GR Einherjakeppnin verður haldin laugardaginn 10. október og hefst klukkan 10. Veski með gjaldeyri stolið úr tösku flugfreyju Ein af flugfreyjum Flugleiða, sem var að hefja utanlandsferð í fyrradag, varð fyrir tilfinnanlegu tjóni í þeirri flugstöð Flugleiða á Reykjavíkurflug- velli er Flugfélag íslands hafði áður. Var peningaveski stolið úr tösku hennar með miklum fjármunum, ásamt öllum hennar skilríkjum. I veskinu voru 20 þúsund belgískir frankar, um 400 dollarar, nokkur hundruð danskar krónur, um 30 v-þýzk mörk, nokkur sterlingspund og auk þess nokkrar gjaldeyrisávísanir sem stílaðar voru á nafn flugfreyjunnar. Þá voru í veskinu, sem fyrr segir, öll skil- ríki flugfreyjunnar. Rannsóknarlögreglan fékk málið til meðferðar í gærmorgun og var unnið aðrannsóknþessígær. .ASt. Harrison E. Salisbury, fyrrum að- stoðarritstjóri New York Times og Pulitzer-verðlaunahafi fyrir alþjóðlega fréttamennsku, kemur til íslands á morgun og verður heiðursgestur á árs- hátíð Íslenzk-ameríska félagsins annað kvöld. Harrison Evans Salisbury er einn af litríkustu og frægustu fréttamönnum Bandaríkjanna og hefur verið heiðr- aður fyrir störf sin bæði heima og er- lendis. Auk blaðaskrifa hefur hann skrifað bækur, m.a. kunna bók um Kína fyrir 14 árum, Orbit of China. Salisbury er tæpra 73 ára gamall og hefur verið blaðamaður í liðlega hálfa öld. Hann starfaði um árabil fyrir United Press-fréttastofuna (sem síðar varð UPI) og var forstöðumaður hennar í Moskvu og London. Lengst af hefur hann unnið fyrir New York Times og hafa greinar hans birzt í blöð- um um allan heim. Enn skrifar Salis- bury í blöð og tímarit. Hann er frá Minneapolis í Minnesota og kynntist þar ýmsum íslenzkum námsmönnum. Meðal þeirra er Valdi- mar Björnsson, fyrrum fjármálaráð- herra Minnesotafylkis, en hann og félagar hans sæmdu Salisbury nafnbót- inni „Honorary Icelander” í góðu gamni fyrir mörgum árum. Harrison Salisbury verður hérlendis fram yfir helgi og mun m.a. á mánudag hitta íslenzka starfsbræður sína að máli á hádegisverðarfundi í Blaða- mannafélagi íslands. GENGIÐ GENGISSKRÁNING NR. 192 Ferðamanna- 9. OKTÓBER1981 gjaldeyrir Eining kl. 12.00 Kaup Sala Sala 1 Bandarikjadoilar 7fi72 7,594 8,353 1 Stariingspund 14,447 14,489 15,937 1 Kanadadoiiar 6,323 8,341 6,975 1 Dönsk króna 1,0737 1,0768 1,1845 1 Norskkróna 1,3100 1,3138 1,4452 1 Saanskkróna 1,3895 U935 1,5329 1 Finnsktmark 1,7483 1,7634 1,9287 1 Franskur franki 1,3755 1,3795 1,5175 1 Balg. franki 0,2056 0,2062 0,2268 1 Svissn. franki 4,0819 4,0938 4,5032 1 Hollenzk florina 3,1148 3,1238 3,4362 1 V.-þýzkt mark 3,4497 3,4597 3,8057 1 Itölsk líra 0,00649 0,00651 0,00716 1 Austurr. Sch. 0,4926 0,4941 0,5435 1 Portug. Escudo 0,1200 0,1203 0,1323 1 Spánskur peseti 0,0807 0,0810 0,0891 1 Japanskt yen > 0,03319 0,03329 0,03661 1 IrsktDund 12,229 12,264 13,490 8DR Uératflk dráttarréttindl) 01/09 8'8807 8,9063 Sfmsvari vegna genglsskránlngar 22190.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.