Dagblaðið - 09.10.1981, Blaðsíða 24
Flokksforingjarn-
ir misjafnlega
^ ánæeðir ^
Óumdeilanleg
fylgisaukning
— segir Birgir ísleifur
Gunnarsson
„Ég tel að Sjálfstæðisflokkurinn
fengi ekki svo mikið fylgi sem hann fær
í þessari skoðanakönnun ef til kosninga
kæmi nú,” sagði Birgir ísleifur Gunn-
arsson við DB i morgun.
„Hins vegar sýna þessar niðurstöður
óumdeilanlega fylgisaukningu
flokksins. Greinilegt er að almenningur
hefur trú á að Sjálfstæðisflokkurinn
komi heill og óskaddaður út úr þeim
átökum sem átt hafa sér stað innan
hans. Það er aftur á móti skoðun mín
að sá þriðjungur sem ekki svaraði í
skoðanakönnuninni sé sá hópur fólks
sem geri útslagið þegar til kosninga
kemur.” -SSv.
Tillaga um takmarkað prófkjör Sjálfstæðisflokksins samþykkt
á fulltrúaráðsfundi í gærkvöldi:
Hnefahögg í andlit
óflokksbundins fólks
— segir Albert Guðmundsson. Þeir sem ekki vilja gerast f lokksbundnir eiga
ekki að skipta sér af framboðsmálum flokksins, segir Jónas Elíasson
„Þetta er hnefahögg í andlitið á
óflokksbundnu fólki, tillagan er
óheppileg og ótímabær,” sagði
Albert Guðmundsson, borgarráðs-
maður og alþingismaður Sjálfstæðis-
flokksins, í morgun. Breytingartil-
laga frá Jónasi Elíassyni prófessor
um takmarkað prófkjör náði fram að
ganga með miklum meirihluta
atkvæða á almennum fundi fulltrúa-
ráðs sjálfstæðisfélaganna í gær.
Á fulltrúaráðsfundinum var sam-
þykkt að prófkjör skuli fara fram í
lok nóvember til þess að velja fram-
boðslista Sjálfstæðisflokksins við
borgarstjórnarkosningarnar í vor.
Atkvæðisrétt í prófkjörinu eiga
meðlimir sjálfstæðisfélaga í Reykja-
vík sem búsettir eru í kjördæminu og
náð hafa 16 ára aldri.
Fram hafði komið tillaga stjórnar
fulltrúaráðsins um að allir stuðnings-
menn Sjálfstæðisflokksins, sem eiga
munu kosningarétt við kosningarnar
í vor, hefðu atkvæðisrétt í próf-
kjörinu. Jónas Elíasson prófessor bar
þá fram breytingartillögu þess efnis,
að aðeins þeir stuðningsmenn Sjálf-
stæðisflokksins sem undirritað hefðu
inntökubeiðni í Sjálfstæðisfélag í
Reykjavík hefðu kosningarétt. Eftir
miklar umræður var breytingartil-
lagan samþykkt með 237 atkvæðum
gegn 80.
„Stærsti hluti kjósenda Sjálf-
stæðisflokksins er ekki flokksbundið
fólk,” sagði Albert Guðmundsson í
morgun. „Þessi tillaga takmarkar
rétt þessa fólks. Tillagan er ákaflega
lítið hugsuð og það á eftir að koma í
Ijós hve óheppileg hún er enda er
Jónas Elíasson ekki prófessor í póli-
tískum fræðum. Á fundinum í gær
var alltaf talað um að með tillögunni
væri verið að útiloka flokksbundna
menn í öðrum flokkum frá prófkjör-
inu, en þetta er misskilningur. Flestir
kjósendur í landinu eru óflokks-
bundnir og þeir hafa eflaust fagnað
því þegar prófkjör gerðu þeim fært
að velja menn á lista,” sagði Albert.
„Tillaga þessi er sett fram til þess
að gera andstæðingum okkar
erftðara fyrir að taka þátt i prófkjör-
inu,” sagði Jónas Elíasson í morgun.
„Hún hindrar alla þá sem ekki vilja
ganga í flokkinn í að taka þátt í próf-
kjörinu, hvort sem þeir eru kjósendur
Sjálfstæðisflokksins eða aflftarra
flokka.
Menn hafa ekki haft mikla ástæðu
til þess að gerast flokksbundnir í
Sjálfstæðisflokknum en jieir fá nú
hvatningu ef þeir vilja takaþátt ípróf-
kjörinu. Þeir sem ekki vilja gerast
flokksbundnir í Sjálfstæðisflokknum
hafa engan grundvöll til þess að
skipta sér af framboðsmálum hans,”
sagði Jónas.
Á fulltrúaráðsfundinum í gær-
kvöldi voru valdir 22 fulltrúar á
landsfund Sjálfstæðisflokksins.
-JH.
urmeð
niðurstöðuna
— segir Steingrímur
Hermannsson
„Ég er ekki óánægður með þessar
upplýsingar, sízt þegar óákveðna fylgið
er svona mikið,” sagði Steingrímur
Hermannsson, formaður Framsóknar-
flokksins.
„Fylgi stjórnar fer mjög eftir því
hvernig gengur í efnahags- og atvinnu-
málum. Eins og er syrtir í álinn i at-
vinnumálunum og hef ég af því þungar
áhyggjur. Smávægilegur samdráttur á
fylgi stjórnarinnar i heild er af þessum
sökum minni en búast mátti viö.
Ég er út af fyrir sig ánægður með
fylgi Framsóknarflokksins. Ég er sann-
færður um að ef tekst að halda mark-
aðri braut okkar og stefnu þá mun það
tryggja farsæla lausn i atvinnumálum
og flokkurinn nær aftur sama fylgi
eða meira en hann hafði,” sagði
Steingrímur. -A.St.
Tap Alþýðu-
bandalagsins
vekur mesta
athygli
— seglr Kjartan
Jóhannsson
„Samkvæmt þessum tölum vekur
hið mikla tap Alþýðubandalagsins sér-
staka athygli,” sagði Kjartan Jóhanns-
son, formaður Alþýðuflokksins.
„Ég átti ekki von á að staða okkar
batnaði eftir atburði sumarsins. Á hinn
bóginn verða menn að fara að hugsa
sinn gang þegar meira en helmingur
þeirra sem leitað er til svarar ekki. Þá
fer nú að verða minna mark takandi á
tölum sem byggjast einungis á þeim
sem taka afstöðu,” sagði Kjartan.
„Hinn mikli fjöldi þeirra sem ekki
taka afstöðu er jafnt íhugunarefni fyrir
Dagblaðið eins og stjórnmálaflokkana.
Spurningin er auðvitað líka, hvort
aðferð DB dugi ekki lengur.” -A.St.
Óeðlilega lágt
hlutfall hjá Al-
þýöubandalagi
- segir Svavar Gestsson
„í fljótu bragði sýnist mér þetta vera
fylgisaukning íhaldsins á okkar kostn-
að,” sagði Svavar Gestsson félagsmála-
ráðherra í morgun er Dagblaðið bar
niðurstöður könnunar um fylgi flokk-
anna undir hann.
„Annars finnst mér fylgi
Alþýðubandalagsins vera sláandi lítið
og sannast sagna finnst mér þetta vera
óeðlilega lágt hlutfall. Hins vegar eru
tölurnar varhugaverðar þegar búið er
að brjóta þær svo mikið niður. Því má
ekki gleyma að meira en þriðjungur að-
spurðra gerir ekki upp hug sinn,” sagði
Svavarennfremur. -SSv.
TVe/r ætluðu ísama bílastæðið
DB-mynd: Bj. Bj.
Keppni milli ökumanna er alþekkt
fyrirbrigði í höfuðborginni. Margir
gefa aldrei eftir og eru ákveðnir í að
láta engan vinna sigur á sér. í gær var
keppni um bílastæði eitt í Ármúla
orsök þess að fjórir bílar.eru meira og
minna skemmdir. Ætluðu tveir í sama
stæðið og lentu saman. Kastaðist annar
þeirra á kyrrstæðan Range Rover og
hann aftur á kyrrstæða fólksbifreið.
Eignatjónið nemur tugum þúsunda.
Enginn meiddist. -A.St.
Heitt í kolunum á fundi starfsmanna Flugleiða í gærkvöld:
Leyfi til Amarflugs
er siöleysi og svik
— segja starfsmenn Flugleiða
Það að veita Arnarflugi og Iscargo
leyfi til áætlunarflugs með farþega
milli landa er siðleysi gagnvart þeim
hluthöfum Flugfélags íslands og
Loftleiða sem stjórnvöld fengu til að
sameinast undir einn hatt árið 1973.
Stjórnvöld hafa þá svikið öll þau lof-
orð sem þá voru gefin um að hið nýja
flugfélag, Flugleiðir, fengi einkaleyfi
til áætlunarflugs milli landa, sérleyfi
á flugleiðum innanlands og gengi
fyrir um leiguflug.
Þetta var megintónninn í ræðum
þeirra starfsmanna Flugleiða sem til
máls tóku á fjölmennum fundi á
Loftleiðahótelinu í gærkvöldi. Krist-
alssalur hótelsins var þéttskipaöur
auk þess sem fjöldi manns var á
göngum. Ekki er fráleitt að áætla að
um 400 manns hafi sótt fundinn en til
hans höfðu Starfsmannafélag Flug-
leiða og fleiri stéttarfélög starfs-
manna, sem að flugrekstri starfa,
boðað til að ræða umræðuefnið
„stefnumörkun í flugmálum”.
Leyfisveiting til Evrópuflugs Arn-
arflugs varð þó aðalmál fundarins og
var hiti í mönnum, aðallega starfs-
mönnum Flugleiða.
Steingrimur Hermannsson sam-
gönguráðherra lýsti á fundinum
þeirri skoðun sinni að hann væri and-
vígur einokun nema í algerri neyð.
Sagðist hann á sínum tlma hafa verið
mótfallinn sameiningu flugfélaganna
og að þróunin siðan hefði ekki verið
æskileg. Sagði hann að frammámenn
i hótelrekstri, öðrum en Flugleiða,
ferðaskrifstofumenn og fleiri aðilar
hefðu lýst verulegum áhyggjum með
að aðeins eitt flugfélag hefði mcð
höndum farþegaflug.
Sagöi Steingrímur að Flugleiðir
ættu að vera hinn stóri og sterki aðili
i millilandaflugi en algjör einokun
væri ekki æskileg. Teldi hann rétt að
annað flugfélag væri einnig rekið sem
aðallega annaðist leiguflug en hefði
auk þess eina áætlunarleið eða svo til
að styrkja rekstrargrundvöllinn.
Um innanlandsflugið sagði
Steingrímur að þar ættu Flugleiðir að
bera höfuð og herðar yfir aðra en
síðan væri mikil þörf fyrir lítil lands-
hlutaflugfélög sem æskilegt væri aö
tengja flugi Flugleiða. Veðurfargerði
slíkt hins vegar erfitt.
I lok fundarins var samþykkt
ályktun, fyrst og fremst með at-
kvæðum starfsmanna Flugleiða, sem
þarna voru I yfirgnæfandi meiri-
hluta, gegn atkvæðum þeirra Arnar-
flugsmanna sem fundinn sátu. Geng-
ur ályktunin út á það að millilanda-
flugi sé bezt borgið i höndum eins
innlends flugfélags. -KMU.
frýáJst, nháð dagblað
FÖSTUDAGUR 9. OKT. 1981.
Þrumustuð
hjá Platters
Söngflokkurinn Platters fékk frá-
bærar viðtökur á tónleikum sínum í
Háskólabíói í gærkvöld. Söngvararnir
voru þrisvar sinnum klappaðir fram að
tónleikunum loknum og urðu meira að
segja að syngja lítt æft lag í endann. —
Dagskráin samanstóð að sjálfsögðu
aðallega af gömlu klassikerunum, Only
You og svo framvegis en einnig var
kryddað inn í nýrri lögum sem hafa
notið vinsælda upp á síðkastið. Og frá
upphafi til enda runnu brandararnir
upp úr söngfólkinu svo að jafnvel
menn á miðjum aldri hóstuðu upp
fermingarkvefinu.
-ÁT/DB-mynd. EÓ.
Gefur Friðrik
kost á sér?
Sterkar líkur eru taldar á því að
Friðrik Sophusson lýsi yfir því á fundi
stjórnarandstöðuþingmanna Sjálf-
stæðisflokksins í dag að hann muni
gefa kost á sér til varaformanns í Sjálf-
stæðisflokknum. Kosið verður á lands-
fundi í lok mánaðarins. Friðrik vildi
hvorki játa þessu né neita í morgun,
sagði að menn yrðu að bíða fundarins.
-JH.
7? tr
SZ. VIN m e m
IVIKU HVERRI
Áskrifendur
DB athugið
Vinningur I þessari viku er (Jt-
sýnarferð til St. Petersborg beach
með ferðaskrifstofunni Otsýn,
Austurstrœti 17, Reykjavlk, og
hefur hann verið dreginn út. Nœsti
vinningur verður kynntur I blaðinu
ú múnudaginn.
Nýir vinningar verða dregnir út
vikulega nœstu múnuði.
hressir betur.