Dagblaðið - 09.10.1981, Blaðsíða 23

Dagblaðið - 09.10.1981, Blaðsíða 23
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1981. 0 31 Útvarp Sjónvarp i Vetrardagskrá yngstu hlustendanna —f ramhaldsleikrit á laugardagsmorgnum —nýr þáttur á föstudögum: „Á f ramandi slóðunT —bamaefni f rá kl. 16,20-17 alla daga nema sunnudaga... Þegar vetrardagskráin hefst í lok október verður sá háttur tekinn upp að á hverjum degi, nema sunnudaga, verður útvarpað efni fyrir börn á tima- bilinu frá kl. 16.20—17. Á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum verður fyrrihluta þessa tíma varið til að lesa framhaldssögu. Fyrsta sagan verður Niður um stromp- inn eftir Ármann Kr. Einarsson og les hann sjálfur. Seinni helming tímans verður Litli barnatiminn á dagskrá mánudaga og miðvikudaga en á þriðjudögum tón- listarþáttur fyrir yngstu kynslóðina. Á fimmtudögum verður óskalaga- þátturinn Lagið mitt á dagskrá á þessum tíma. Þessi þáttur er orðinn átta ára gamall og alltaf jafn vinsæll. Hann er nú í umsjón Helgu Þ. Step- hensen leikkonu. Á föstudögum verður svo nýjum þætti hleypt af stokkunum. Nefnist hann Á framandi slóðum og kemur þangað ýmislegt ágætisfólk og segir frá. Fyrst þeirra verður Oddný Thor- steinsson og segir frá Austurlöndum fjær og spilar tónlist þaðan. Hún hefur heimsótt Japan, Kína, Thailand og mörg önnur ríki hinum megin á hnettinum. Á laugardögum kl. 16.20 verða siðan þrír þættir til skiptis. Sá fyrsti, Hrímgrund, undir stjórn Ásu Helgu Ragnarsdóttur, er eiginlega útvarp barnanna. Þar er reynt að gefa sem flestum börnum tækifæri til að tjá sig og flytja það efni sem þau óska eftir sjálf. Hrímgrund verður annan hvein laugardag en hina laugardagana verður ýmist þátturinn Bókahornið í umsjá Sigríðar Eyþórsdóttur eða Klippt og skorið í umsjá Jóninu H. Jónsdóttur. Á sunnudögum er ekkert sérstakt barnaefni í útvarpinu. En Morgunsaga barnanna verður lesin kl. 9.05 virka daga eins og verið hefur. Á laugardags- morgnum koma svo barnaleikrit. Það fyrsta verður eftir Valdisi Óskars- dóttur og heitir Fiss og fuss. En þangað til það hefst, einhvern síöasta laugar- dag í mánuðinum, eru Silja Aðalsteins- dóttir og Kjartan Valgarðsson með blandaðan þátt á þessum tíma (þ.e. kl. 11.20 á laugardögum ). Heitir hann Október og ku vera anzi hress. -IHH HUSID VK> EPLAGÖTU—sjónvarp íkvöld kl. 22,10: MIKIÐ BLÓD HVAR ER LÍKIÐ? Myndin í kvöld er fremur óhugnanleg, og ekki fyrir böm né aðrar viðkvæmar sálir. í húsi við hina friðsælu Eplagötu viröist hafa verið framið óhugnan- legt morð. Þegar lannsóknar- lögreglumaðurinn Dan August kemur á staðinn ásami Wilentz Úr sakamálamyndinni, um óhugnanlega atburði i húsi við Eplagötu, sem sjónvarpið sýnir í kvöld. aðstoðarmanni sínum er þar ljótt um að litast. Svo er að sjá sem einhver hafi veriö myrtur í eldhúsinu, því þar er allt útatað í blóði. Þama búa hjónin Marian og George Ord og níu ára gömul dóttir þeirra, Margaret. Eiginmaðurinn hefur verið á söluferðalagi og konan sést hvergi, hvorki lífs né liðin. Þvi þótt eldhúsið sé blóðugt er ekkert lík að finna. Það virðist ekki ólíklegt að eigin- maðurinn hafi myrt konu sína. Þegar lögreglumennirnir fara að skoða híbýlin virðist þeim hann gæti hafa haft ýmsar ástæður til þess. Það versta er kannske ekki að ísskápurinn er tómur en klæðaskáp- arnir troðfullir af dýrum fötum, nei, þeir finna Ijósmyndir af frúnni sem. . . . ja, það er bezt að ljóstra engu upp strax. -IHH. ALLT í GAMNIMEÐ HAR0LD LL0YD - sjónvarp í kvöld kl. 20,50: Einn bezti gamanleik- ari þöglu myndanna Sjónvarpið hefur öðru hvoru undanfarið sýnt kafla úr myndum með Harold Lloyd, og einn slíkur er á dagskránni í kvöld. Á blómaskeiði þöglu myndanna, milli 1920 og 30, var Harold Lloyd einn alvinsælasti gamanleikarinn. Hann sló þeim Charlie Chaplin og Buster Keaton við í vinsældum og það þurfti mikiö til þess. Harold Lloyd gei ði fyrst einar 100 stuttar myndir um náunga sem hann kallaði Lonesome Luke (Einmana Láka) og seinna fjölmargar myndir um háskólastrák sem hann vanalega kallaði gleraugnastrákinn sinn. Þessar myndir enduðu oftast á einn veg, Harold lenti í einhverjum ógur- legum þrengingum, var bundinn, læstur inni eða ofsóttur af ótrúleg- ustu fyrirbrigðum. Eitt atriði sem gerði mikla lukku hjá honum var að klifra upp skýja- kljúfa og endurtók hann það í mörgum myndum. -IHH. Gunnvör Braga hefur nóg að gera þvi á hennar herðum hvilir það að sjá um að alltaf sé eitthvað spennandi á boðstólum fyrir yngri hlutstendurna. „En það er löngu liðin tið að útvarpið borgi minna fyrir barnaefni en fullorðins” tilkynnir hún ánægð. DB-mynd: KÖE. VIDEO Video — Tæki — Fiimur Leiga — Sala — Skipti Kvikmyndamarkaðurinn — bimi 15480. Skólavörðustig 19 (Klapparstigsmegin). KVIKMYNDIR Fyrirgreiðsla Leysum vörur úr tolli og banka með greiðslufresti. Lysthafendur leggi inn nöfn til Dagblaðsins fyrir 12. okt. merkt „Fyrirgreiðsla”. Dodge Ramcharger árg. '78, ekinn 33 þús.km. Sem nýr bill, tvilitur brúnn, breið Tracker dekk og krómfelgur, silsalistar. Sklptl möguleg. SÍSijK’ Bronco árg. '73, 8 cyl., belnskiptur í gólfi, svartur, brelð dekk og felgur, klæddur, útvarp og segulband. Skipli á ódýrari. Upphækkaður. •V< Dodge Aspen árg. ’79, special edition, aðeins ekinn 16 þús. km. Sætin djúpbólstruð, rafmagn i rúðum, 6 cyl., sjálfskiptur með öllu. Glæsllegur, svo til ónotaður bill. Sklpti möguleg og verðið aðelns kr. 130 þús. International árg. '68, fallegur og gagntekinn bill, með sætl fyrir 10 far- þega, 6 cyl., beinskiptur. Ný Lapp- lander dekk, vökvastýri og nýtt lakk, útvarp og segulband. Skipti á ódýrari. Verð kr. 70 þús. BJLA.KA.UR . SKEIFAN 5 — SlMAR 86010 og 86030

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.