Dagblaðið - 09.10.1981, Side 4

Dagblaðið - 09.10.1981, Side 4
4 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1981. DB á ne ytendamarkaði Dóra Stefánsdóttir Áhöld fyrír örvhenta Elsa Einarsdóltir hringdi: „Mig langar til þess að biðja ykkur að athuga eitt atriði fyrir mig en það er hvort nokkurs staðar eru á boðstólum hér áhöld fyrir örvhent fólk. Mér sýnist að öll áhöld, ‘em eru á boðstólum, séu fyrir þá sem eru rétt- hentir. Ég hef heyrt um að í Banda- ríkjunum séu til hvers konar heimilis- tæki sem sérstaklega eru ætluð fyrir örvhenta, eins og t.d. skæri, dósa- hnífar og alls konar smíðaáhöld, sem ég hef ekki getað fundið hér.” Svar: Við höfum einnig heyrt um að erlendis væri hægt að fá ýmiss konar eldhúsáhöld sem smiðuð eru sérstaklega fyrir örvhenta. Það eina sem við höfum rekizt á hér á landi, sem gæti verið fyrir örvhenta, eru spil sem eru með merkingum í öllum fjórum hornunum. Við lýsum hér með eftir upplýsingum um hvar áhöld fyrir örvhenta fást. Fjöldi heimilisfólks. iKostnaður í septembermánuði 1981 Matur og hreinlætisvörur kr. Annað kr. Alls kr. ttB vmw Enn minnkar smjörfjallið: Minna framleitt og meira selt Mjólkurmálin hjá þjóð vorri virðast vci a að l'arast hægt og hægt nær þvi marki.iiði að framleitt sé ofan í landsmenn en lítið sem ekkert þar. fyrir utan. Framleiðsla á mjólk hefur minnkað og salan aukizt þannig að minna er eftir til að búa til úr smjör og osta. Smjörfjallið hefur minnkað verulega og ostahóllinn einnig. Ekki spillir að sala á ostum hefur aukizt líka. í ágúst jókst reyndar mjólkur- framleiðsla um 2% frá því í fyrra. En ef litið er á allt síðasta verðlagsár (sem er miðað við 1. september núna og 31. ágúst í fyrra) hefur mjólkin minnkað um 8,4%. Sala á mjólk var jafnframt meiri. Það sem kemur ef til vill mest á óvart er að sala á rjóma hefur aukizt um 5,8% en aftur varð samdráttur í sölu á undanrennu um 7,2%. Sala á feitum ostum jókst einnig á kostnað hinna mögru. Heild- araukning ostasölunnar varð rúmlega 10%. Salan á smjöri jókst einnig og það um heil 13%. Smjörfjallið er því ekki nema 586 tonn núna í stað 1160 tonna sem til voru á sama tíma i fyrra. Salan varð þannig 5000 tonnum meiri en það sem framleitt var af smjöri þetta árið. -DS. Nýru í sérríi Við höldum okkur enn við uppskriftir gómsætra rétta úr innmat enda mikið framboð af honum núna. Uppskrift dagsins er af nýrum í sérríi og er úr nýju matreiðslu- bókinni Lostæti með lítilli fyrirhöfn. Efni: 12 lambanýru 60 g smjör 1 stór laukur smáskorinn rúm 20 g hveiti 1 hvítlauksrif flysjað 1 og 1/2 dl vatn auk þess 5 msk. vatn 1 súputeningur (nautakjöt) 9 msk. msk. sérrí (þurrt) 1 lárviðarlauf, salt og pipar 1 msk. smáskorin steinselja Undirbúningur 15 mínútur. Matreiðslutimi 15 mínútur. blandan er orðin jöfn og bættu þá í lárviðarlaufinu, salti og pipar eftir smekk. Hrærðu í og Iáttu suðuna koma upp, iáttu síðan smásjóða þar til sósan hefur þykknað. Settu nýrun og laukinn aftur á pönnuna, settu lokið á og láttu smá- sjóða í 5 mínútur, eða þangað til nýrun eru soðin. Taktu burt lár- Uppskrift dagsins || I, dagsins Þessar konur voru á mánudaginn komnar saman með handavinnuna sina. Þær hittast nú orðið ð húsi sem Húsmæðrafélagið hefur nýlega keypt á Baldursgötu 9. Jólasvunturnar sem konurnar fjærst á myndinni eru með eru þrjár þeirra sem fara á bas- arinn góða... DB-mynd Bj.Bj. Húsmæðrafélagið heimsótt: Kennd meðferð örbylgju- ofna, jólaföndur og f leira Taktu himnu og fitu af nýrum og skerðu þau í tvennt, langsum, og fjarlægðu miðbitann. Bræddu 30 g af smjörinu á pönnu og steiktu laukinn hægt þar til hann er orðinn linur og gullinn á lit. Bættu þá nýrunum við og steiktu þau í u.þ.b. 2 mínútur hvorum megin þar til þau eru orðin þétt fyrir og eru byrjuð að brúnast. Taktu laukinn og nýrun af pönnunni og haltu þeim heitum. Bræddu smjörið sem eftir er á pönnunni og hrærðu hveitið út í. Bættu við hvítlauksrifinu, vatni, súputeningi og sérríi. Hrærðu í þar til viðarlaufið og bættu við kryddi ef þarf. Komdu þessu fyrir á matarfati, helltu sósunni yfir og skreyttu með steinseljunni. Nægir fjórum. Húsráð: Soðin hrísgrjón henta vel með þessum rétti. Til hagræðis er gott að sjóða hýðislaus, löng hrísgrjón og sjóða þau þar til þau byrja að verða meyr, í u.þ.b. 12 mínútur. Rétt er að áætla 30—60 g á mann. ,,Það eru um 300 konur í Hús- mæðrafélaginu og auðvitað mis- jafnlega virkar eins og gengur. Við viljum endilega hvetja fleiri konur til að koma til liðs við okkur. Þær geta byrjað með því að koma hingað til okkar á mánudögum. Þá er alltaf opið hús eftir klukkan hálftvö og þá komum við saman með handa- vinnuna okkar og vinnum auk þess að spjalla saman,” sagði Steinunn Jónsdóttir formaður Húsmæðra- félags Reykjavíkur. Við Bjarnleifur litum inn einn mánudaginn og heilsuðum upp á konurnar sem þá sátu og prjónuðu og saumuðu. Verið var að búa til muni á árlegan basar félagsins sem verður laugardaginn 31. október. Þar eru að vanda seldir ýmsir nytjamunir eins og sokkar og vettlingar, sitthvað sem nota má til jólagjafa, eins og til dæmis fallegar útsaumaðar jóla- svuntur og svo skrautmunir sem púðar og myndir. Allir eru þessir munir unnir i höndum og úr vönduðum efnum, sem félagskonur ýmist leggja til eða félagið kaupir. Ágóðanum af basarnum er varið til líknarmála. Einu sinni í mánuði á veturna eru haldin ýmis námskeið á vegum Hús- mæðrafélagsins. Hið fyrsta var á fimmtudaginn (8. október) í meðferð og matreiðslu fyrir örbylgjuofan. Sú merka nýjung var kynnt og það hvernig bezta nýtingu má fá út úr henni. i nóvember verður kennt að föndra fyrir jólin og jólafundur verður í desember. Sá fundur er jafnan hinn stærsti sem Húsmæðra- félagið heldur. Þá er gjarnan brugðið á leik eins og til dæmis í fyrra þegar félagskonur héldu tízkusýningu á fötum úr ýmsum verzlunum. í stað þess að fá sýningarstúlkur brugðu nokkrar félagskvenna sér sjálfar i fötin og báru sig að sögn þeirra sem til sáu að eins og vönustu sýningar- dömur. Eftir jólin er dagskráin ekki alveg ákveðin ennþá en vitað er að i janúar verður skemmtifundur, í febrúar fræðslufundur. 1 marz og apríl verða sýnikennslustundir í mat- reiðslu. í júní verður svo farið í árlega sumarferð. Þær konur sem núna eru sem óðast að vinna munu fá umbun erfiðisins í janúar. Þá verðum þeim boðið í hátíðakaffi að launum. Á meðan ég staldraði við var verið að ræða um ýmsar nýjungar sem til greina koma í starfseminni. Leikhús- ferðir eða utanlandsferðir bar þar hæst. En það fer auðvitað eftir áhuganum hvert verður farið. -DS. Upplýsingaseðill til saman’uurðar á heimiliskostnaði Hvað kostar heimilishaldið? Vinsamlvga scndið okkur þcnnan svarseðil. Þannig cruð þér orðinn virkur þátttak- andi i upplýsingamiðlun mcðal almcnnings um hvert sé mcðaltal hcimiliskostnaðar fjölskyldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki eigið þcr von um að fá nytsamt heimilis- tæki. Nafn áskrifanda Heimili Sími

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.