Dagblaðið - 09.10.1981, Side 5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1981.
5
Skiptístöð Strætísvagna Kópavogs við syðri brúna yfir gjána er aðskilur bæjar-
hlutana f Kópavogi.
Ólánleg staðsetning skiptistöðvar SVK:
Vagnstjórar vara
við slysahættu
við skiptistöðina
— Vélamiðstöð Kópavogs óskar eftir því að
bæjarverkfræðingur finni skjóta lausn á vandanum
Strætisvagnstjórar hjá Strætisvögn-
um Kópavogs telja mikla slysahættu
stafa af staðsetningu skiptistöðvar fyrir
vagnana en skiptistöðin er við syðri
brúna yfir gjána sem aðskilur austur-
og vesturbæ Kópavogs, þar sem
Borgarholtsbraut og Digranesvegur
mætast.
Tuttugu vagnstjórar hjá SVK sendu-
stjórn Vélamiðstöðvar Kópavogs bréf
þar sem eru „nokkrar vinsamlegar
ábendingar”, eins og þeir segja sjálfir.
í bréfinu segir svo:
„Vagnstjórar hjá SVK vilja benda á
hversu mikil slysahætta stafar af stað-
setningu skiptistöðvar SVK. Hættan
felst í vagnskiptum hjá farþegum, sem
þurfa að ganga yfir eina mestu um-
ferðaræð bæjarins, á u.þ.b.15 minútnu
fresti. Benda má á hversu ólánleg
staðsetning skiptistöðvar er. Einnig
vísum við til 51. greinar umferðarlaga
varðandi stöðu vagna.
Til lausnar þessum vanda leggjum
við til að skiptistöðin verði færð á auða
svæðið vestan gjár (Hafnarfjarðarveg-
ar) eða að SVK fengi nyrðri hluta brúar
til afnota, en teljum það hálfgerða
neyðarlausn.
Einnig má benda á að aðstaða fyrir
vagnstjóra er ekki nógu góð með tilliti
til loftmengunar frá vögnum, sem
standa þétt upp við húsið.
Öskum við eftir að heilbrigðisfulltrúi
geri úttekt á húsnæðinu. Engin hrein-
lætisaðstaða er fyrir farþega á skipti-
stöð.
Vagnstjórar óska eftir fundi með
umferðarnefnd Kópavogs, ef nefndin
sæi sér það fært, til að koma á fram-
færi ábendingum sem vagnstjórar hafa
og mættu að gagni koma.”
Stjórn Vélamiðstöðvarinnar tók
bréfið fyrir og styður ullögur vagn-
stjóranna og hefur óskað eftir því að
bæjarverkfræðingur Kópavogs finni
hið bráðasta lausn á þessum vanda.
-JH.
Forseti íslands fer í opinbera heimsókn til
Noregs og Svíþjóðar:
Sér meðal annars
sýningu fatlaðra barna
á Kardemommubænum
Vigdís Finnbogadóttir, forseti
íslands, fer í opinbera heimsókn til
Noregs og Svíþjóðar í lok þessa
mánaðar. Á dagskránni var einnig
heimsókn til Finnlands. Henni hefur
verið frestað vegna veikinda Kekkon-
ens forseta.
Heimsókn forsetans til Noregs hefst
miðvikudaginn 21. október. Þann dag
leggur hún blómsveig að minnisvarða
um Norðmenn sem féllu í seinni heims-
styrjöldinni. Síðdegis tekur forsetinn á
móti forstöðumönnum sendiráða í
konungshöllinni í Osló. Um kvöldið
heldur Noregskonungur veizlu í höll-
inni forseta íslands til heiðurs.
Daginn eftir verður Vigdísi Finn-
bogadóttur boðið að skoða Víkinga-
skipasafnið á Bygdö og Heine-Onstad
listasafnið á Hövikodden. Hádegis-
verður verður síðan í ráðhúsinu í boði
Oslóborgar. Síðdegis verður móttaka
fyrir íslendinga búsetta í Noregi á
Grand Hotel. Um kvöldið heldur ríkis-
Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands.
stjórn Noregs veizlu til heiðurs forseta
íslands.
Föstudaginn 23. október er á dag-
skránni heimsókn í Hadelands Glass-
verk í Jevnaker. Síðdegis verður forset-
inn svo við sýningu á Kardimommubæ
Thorbjörns Egners. Leikendurnir eru
að þessu sinni fötluð börn. Heimsókn-
inni til Noregs lýkur síðan um kvöldið
með veizlu sem haldin verður á Grand
Hotel Noregskonungi til heiðurs.
Opinber heimsókn Vigdísar Finn-
bogadóttur til Sviþjóðar verður dagana
26.—29. október. Fyrsta daginn má
nefna það að hún skoðar víkinga-
sýninguna í Historiska Museet. Síðdeg-
is verður móttaka fyrir forstöðumenn
sendiráða í Stokkhólmi. Um kvöldið
halda sænsku konungshjónin veizlu
forseta íslands til heiðurs.
Þriðjudaginn 27. október verður
þinghúsið í Stokkhólmi sótt heim svo
og konunglega bókasafnið. Eftir
hádegi verður Vasaskipið skoðað.
Síðdegis tekur forseti á móti íslending-
um í Svíþjóð á Grand Hotel. Þar
verður um kvöldið haldin veizla
sænsku konungshjónunum til heiðurs.
Að morgni miðvikudagsins heldur
Vigdís Finnbogadóttir til Uppsala. Þar
heimsækir hún háskólann, hittir
íslendinga í Uppsölum og skoðar dóm-
kirkjuna. Síðar þann dag verður mót-
taka i Stokkhólmi á vegum íslenzkra
útflutningsfyrirtækja. Sænska ríkis-
stjórnin býður forseta um kvöldið á
sýningu á tveimur einþáttungum eftir
Strindberg.
Opinberri heimsókn forseta fslands
lýkur árla morguninn 29. október er
haldið verður áleiðis heim til íslands.
í fylgdarliði forseta verða Ólafur
Jóhannesson utanríkisráðherra og
Dóra Guðbjartsdóttir, Hörður Helga-
son, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðu-
neytinu, og Sarah Helgason, Halldór
Reynisson forsetaritari og Guðrún
Björnsdóttir og Vigdís Bjarnadóttir,
fulltrúi á skrifstofu forseta íslands.
FÖSTUDAGSKVÖLD
IJIS HUSINU11 Jli HUSINU
OPIÐ DEILDUM TIL KL.10 f KVÖLD
MATVÖRUR
FATNAÐUR
HÚSGÖGN
BYGGINGAVÖRUR
TEPPI
RAFTÆKI
RAFLJÓS
REIÐHJÖL
Ótrúlega hagstæðir
greiðsluskilmálar á
flestum vömflokkum.
Allt niður í 20% út-
borgun og lánstími allt
að 9 mánuðum.
Jón Loftsson hf.
/A A A A. A A v %
piiIiHISll?
liiij □ □ □ n □
IGGDG0 CJ unnOrrtZW*
Hringbraut 121 Sími 10600
Frá 1. okt. verður opið: Mánud.-miðvikud. 9—18, fimmtud.
9—20, föstud. 9—22 og laugard. 9—12.
TILKYNNING
TIL FRAMLEIÐENDA SEM
NOTIÐ HAFA ENDURKAUPALÁNA í US$
EN SELT HAFA í EVRÓPUMYNTUM
Seðlabanki íslands hefur nú ákveðið framkvæmd á endurgreiðslu vegna gengistaps á
endurkaupalánum sem þeirframleiðendurhafaoróiðfyrir sem tekið hafaendurkaupalán
í dollurum en selt framleiðslu sína í Evrópumyntum, sbr. fréttatilkynningu bankans dags.
22. septembers I.
Akveðið er að endurgreiðslan nái til gengistaps, á teknum endurkaupalánum, sem orðið
hefur vegna misgengis US$ og Evrópumynta frá 1. janúar 1981, og miðast við vörur sem
framleiddar voru fyrir 1. september 1981.
Framleiðendur, sem rétt eiga á endurgreiðslu og hennar óska, þurfa að skila sérstakri
skýrslu um útflutning sinn á þar til gerðum eyðublöðum Lánadeildar Seðlabanka íslands.
Skýrslunni skulu fylgja fullnægjandi fylgiskjöl að mati bankastofnunar.
Afurðalánadeildir viðskiptabanka og sparisjóða munu hafa alla milligöngu um endur-
greiðsluna og berframleiðendum að snúasér nú þegartil sinnar viðskiptabankastofnunar
varðandi ofangreind eyðublöð og leiðbeiningar um útfyllingu þeirra svo og frekari fram-
kvæmd.
Framleiðendursem flytjaút í Evrópumyntfyrirmilligöngu útflutningssamtakaeðaahnarra
útflytjenda þurfa að hafa samráð/samstarf við viðkomandi varðandi skýrslugerðina.
Seðlabankinn mun reikna út og endurgreiða umrætt gengistap (ásamt vöxtum) jafnóðum
og staðfestar skýrslur berast.
Gert er ráð fyrir að framleiðsla umrædds tímabils verði öll seld um n k. áramót, og verður
endurgreiðslu gengistaps hætt frá og með 31. desember 1981.
Vakin skal sérstök athygli á því að endurgreiðslan miðast einungis við gengistap á
endurkaupalánum.
ISLANDS
SEÐLABANKI