Dagblaðið - 09.10.1981, Blaðsíða 8
8
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1981.
Jón L. Arnason skrirar um 4. einvígisskákina:
STAÐA KARPOVS
SIGURSTRANGLEG
— „Ef Kortsnoj tapar þessari skák á hann enga
von” — sagði Robert Byme
Flestir skáksérfræðingar í Meranó
á Ítalíu skynjuðu nærveru jafnteflis-
dauðans er leiknir höfðu verið 20
leikir í 4. einvígisskák Karpovs og
Kortsnoj. Kortsnoj, sem hafði svart,
beitti hinni alræmdu Petrovs-vörn
sem þekkt er fyrir rólyndi sitt og
friðarvilja. Nýr leikur hans virtist
setja heimsmeistarann úr jafnvægi
því hann gerði enga tilraun til þess að
hrifsa til sin frumkvæðið. Eftir mikil
mannakaup var öllum ljóst að skákin
var að koðna niður í jafntefli en
Kortsnoj vildi greinilega vinna. í stað
þess að leita eftir frekari uppskiptum
lagði ham allt á eitt spil: Óð fram
með peð sín kóngsmegin í þeirri von
aö fá -kíö athafnafrelsiog sókn gegn
hvua kónginum. Með þessu tók hann
verulega áhættu því kóngsstaða
hans sjálfs opnaðist upp á gátt. Menn
Karpovs voru óðar komnir í árásar-
stöður og með rökréttri taflmennsku
jók heimsmeistarinn yfirburðina
smám saman. Skákin fór í bið en
aðeins kraftaverk fær bjargað Kort-
snoj.
Þróun þessarar skákar hlýtur að
vera mikið áfall fyrir áskorandann og
menn hans. Tapi Kortsnoj skák-
inni.sem allar líkur virðast benda til,
er hann orðinn þremur vinningum
undir í einvíginu eftir aðeins 4 skákir.
Þann mun verður erfitt að vinna upp.
Robert Byrne, bandaríski stór-
meistarinn og skákskýrandi ,,New
York Times”, hafði þetta um skák-
ina að segja: „Kortsnoj fékk
auðveldustu byrjunarstöðu á svart
sem hann mun nokkurn tíma fá í
einvíginu. — Ef hann tapar þessari
skák á hann enga von.”
Hvítt: Anatoly Karpov
Svart: Viktor Kortsnoj
Petrovs-vörn.
1. e4 e5 2. Rf3Rf6!
Loksins hittir Kortsnoj á rétta
svarið við kóngspeðsbyrjun Karpovs.
Petrovs-vörnin hefur verið eitt skæð-
asta vopn jafntefliskónga í langan
tíma, eða allt frá því Petrov og
Jánisch rannsökuðu hana um 1830 og
bentu umheiminum á ágæti hennar.
Nú í seinni tið hafa fundist margar
nýjar jafnteflisleiðir fyrir svartan í
Petrovs-vörninni sem telja verður
meðal traustustu skákbyrjana. Það er
engin tilviljun að menn eins og
Hubner, Larsen, Hort, Smyslov,
Portisch og meira að segja Karpov
sjálfur geymi hana í vopnabúri sínu.
í mikilvægum einvígjum er einmitt
rétta aðferðin að gera jafntefli með
svörtu mönnunum en freista þess að
vinna með hvítu. Þó hefur Kortsnoj
að líkindum aðeins einu sinni áður
beitt þessu skæða jafnteflisvopni— í
6. einvígisskákinni gegn Karpov
1974. Kortsnoj tapaði þeirri
skák.. . .
3. Rxe5 d6 4. Rf3 Rxe4 5. d4 d5 6.
Bd3 Be7 7. 0-0 Rc6 8. Hel Bf5 9.
Bb5!7
Hugmynd hollenska stórmeistar-
ans Timman sem tefldi þannig gegn
Portisch á stórmótinu i Moskv^i í ár
— þar sem Karpov var meðal þátt-
takenda. Leikurinn er skarpari en 9.
Rbd2 Rxd2 10. Dxd2 Bxd3 11. Dxd3
0-0 en þannig hafa margar skákir
orðið jafntefli, t.d. 8. og 10. skákin í
einvígi Adorjan og Hiibner og skákin
Kasparov — Karpov, sveitakeppni í
Sovétl981. • ,
9. — Bf6!
Þennan leik verður að hrópmerkja
þar til annað kemur i ljós. Hér er á
ferðinni endurbót Kortsnojs á áður-
nefndri skák Timman og Portisch,
þar sem tefldist 9. — 0-0 10. Bxc6
bxc6 11. Re5 Bh4? 12. Be3! Dd6 13.
Dh5! Df6 14. Rf3! g5 15. Rbd2 og
peðstap verður ekki umflúið.
10. Rbd2
Skarpara er 10. Re5 Bxe5 11.
Bxc6+ bxc6 12. dxe5 0-0 13. f3 Rc5
14. Be3 De7 en svartur er mjög
nálægt því að hafa fyllilega jafnað
taflið.
10. — 0-0 11. Rfl Re7 12. c3 Rg6 13.
Bd3 Rd6 14. Bxf5 Rxf5 15. Db3 b6
16. Db5 a6 17. Dd3 Dd7 18. Rg3
Rxg3 19. hxg3 a5 20. Bg5 Bxg5 21.
Rxg5.
Taflmennska Karpovs í þessari
skák bendir glöggt til að hann gerir
sig ánægðan með skiptan hlut.
Eflaust felur hann aðstoðarmönnum
sínum það verkefni að finna gegnum-
brotsleið gegn Petrovsvörninni. Von-
andi bendir einhver gáfaður maður
honum á byrjun sem heitir kóngs-
bragð.
21. — Hfe8 22. b3 Had8
22. — Hxel 23. Hxel He8 leiðir til
frekari einföldunar á stöðunni og
ekki er annað sýnna en að jafnteflið
blasi viö.
23. Rf3 f6 24. Rd2 Kf7 25. Rfl
abcdefgh
25. — h5?
En nú leggur Kortsnoj allt of mikið
á stöðuna. Hann vonast til þess að
vinna landrými á kóngsvæng og hefja
peðasókn gegn hvíta kónginum en
áætlunin snýst honum í óhag; veik-
leikar myndast i peðastöðunni sem
Karpov notfærir sér af miklu hyggju-
viti. Enn var 25. — Hxel + 26. Hxel
He8 mögulegt og svartur getur ekki
tapað.
26. Hxe8 Hxe8 27. Df3! Hh8 28. Re3
Re7 29. Hel g6 30. Df4! Kg7 31. g4!
Með nokkrum hnitmiðuðum leikj-
um hefur Karpov náð undirtökunum.
Núer31. — h4 svarað með 32. g5! og
ef 31. — hxg4, 32. Rxg4 Rf5, þá 33.
Rxf6! Kxf6 34. De5 + og hrókurinn
fellur. Kortsnoj verður að veikja
kóngsstöðu sína enn frekar.
31. —g5 32. Df3hxg4
E.t.v. eru meiri björgunarmögu-
leikar fólgnir í 32. — h4.
33. Rxg4 Dd6 34. g3 c6 35. c4!
Karpov teflir listavel. Auðvitað
opnar hann stöðuna á drottningar-
væng því kóngsstaða svarts er
varhugaverð.
35. — f5?! 36. De3!
öflugur leikur! Svar Kortsnojs er
þvingað því 36. — fxg4 37. Dxe7
Dxe7 38. Hxe7 Kf6 39. Hc7 er
vonlaust.
36. — Rg6 37. c5! Dd8 38. Re5 bxc5
39. Rxc6 I)f6 40. De6 cxd4 41. Dxd5.
Hér fór skákin i bið og verður tefld
áfram í dag. Kortsnoj lék biðleik.