Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 10.10.1981, Qupperneq 2

Dagblaðið - 10.10.1981, Qupperneq 2
2 MOSFELLSSVEIT OG NÁGRENNI DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1981. I NÝ OG SÓLUÐ VETRARDEKK. ALLAR HJÓLBARÐAVIÐGERÐIR. OPID ALLA DAGÆ DEKK SF. v/Bjarkarholt, Mosfellssveit Slmi 66858 og 66401. tæknrfræðingar Rafmagnsveitur ríkisins óska að ráða rafmagns- og bygg- ingarverkfræðinga eða tæknifræðinga til starfa. Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf berist fyrir 20. október nk. Raf magnsveitur ríkisins Laugavegi 118 — 105 Reykjavík. Rafmagnsveitur ríkisins óska að ráða skrifstofumann Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf berist fyrir 20. október nk. Rafmagnsveitur ríkisins Laugavegi 118 — 105 Reykjavik. Rafmagnsveitur ríkisins óska að ráða viðskipta- fræðing Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf berist fyrir 20. október nk. Rafmagnsveitur ríkisins Laugavegi 118 — 105 Reykjavik. • Spilar hvaða lag sem er með aðeins einum fingri. • Engin sérstök þjálfun eða hœfileiki nauðsynlegur Verð aðeins kr. 895,- Bankastræti 8 — Sími 27510 l-lljómsveitinGrafík'séridirfrásérsina ' fyrstu hljómplötu sem m.a. inniheldur lögin: Vktoó, Ímúmum og Guðjón Þorsteinsson brfreiðarstjóri ásamt fleiri góðum lögum Ut& og dreifingarsími: 29767-79971 r $slgæti er eitt af þvi sem börnin sækja mjög i. Nóg er úrvalið f þessari verzlun og freistingarnar þvi margar. Varið ykkur á óeðli- legum fjárráðum bama segir faðir sem varð fyrir því að sonur hans tók 500 kr ófrjáSsri hendi Faðir skrifar: Sonur minn, 8 ára gamall, tók í heimildarleysi úr veski mínu 500 kr. í heilum seðli. Nú skyldi maður ætla að fyrir 8 ára barn væri töluverðum erfiðleikum bundið að skipta svo miklum peningum til kaupa á þeim hlutum sem börn ásælast mest (leik- föng og sælgæti). Er ég lagði að drengnum að segja mér nú frá öllu og hann hafði viðurkennt fyrir mér verknaðinn spurði ég hann hvernig hann hefði varið peningunum sem á vantaði eftir að komið höfðu til skila 440 kr. af þessum 500 kr. Þá segir hann mér þá sögu að hann hafi farið í verzlun Kron við Völvu- fell í Breiðholti og keypt þar leikföng og sætindi og borgað með umrædd- um 500 króna seðli. Nú hélt ég í ein- feldni minni að fólk sem verzlar með umræddan varning væri á varðbergi gagnvárt börnum með óeðlilega mikla peninga. Ég fór því með dreng- inn minn til þess að ræða við verzlunarstjóra umræddar verzlunar og vænti þess að fá frambærilegar skýringar á atviki þessu. Þá skeður það undarlega að viðkomandi verzl- unarstjóri sér ekki neitt athugavert við þetta. Mér verður þá á að spyrja þann ágæta mann hvernig hann og hans starfsfólk myndi hafa brugðizt við fyrir 9 mánuðum siðan ef barn hefði komið með 10 x 5000 krónur, flett þeim í sundur fyrir framan viðkom- andi og keypt síðan sælgæti fyrir 1000 krónur. Þá fæ ég það svar frá þessum ágæta verzlunarstjóra að nú 9 mán. eftir gjaldmiðilsbreytinguna horfi þetta sko aldeilis öðruvísi við. „Peningarnir séu í einum seðli og það geri gæfumuninn.” Þegar verzlunar- maður í einu barnflesta hverfi borgarinnar, Breiðholti, getur gefið slik svör verður manni spurn. Er verðmætaskyn fólks orðið svo brenglað að mönnum finnist ekkert óeðlilegt að 8 ára barn komi með 3 daga laun verkamanns til sælgætis- kaupa. Þessar línur eru skrifaðar öðrum, sem hugsa máske eins og ég, til viðvörunar. Nú má segja að þetta sé uppeldislegt vandamál en þá vil ég segja frá því að ég á tvö eldri börn en þennan dreng, sem mér vitanlega hafa aldrei tekið neitt ófrjálsri hendi, en hafa þó hlotið sams konar upp- eldi. En freistingarnar eru margar og margt sem hugur ungs barns girnist af því sem sælgætis- og leikfanga- verzlanir selja. Það hlýtur að vera lágmarkskrafa uppalenda til verzl- unarfólks í slíkum verzlunum að það sé á verði gegn óeðlilegum fjárráðum barna. Ég skrifa þetta öðrum til viðvör- unar og vonandi er að verðmætaskyn þjóðarinnar sé ekki svo brenglað að þetta þyki öllum þorra fólks eðlilegt ástand. Þessar glæsilegu stúlkur starfa i veitingahúsinu Manhattan I Kópavogi. Spurningin er hins vegar hvort karlarnir sem þar vinna séu eins að neðan? Eru karlarnir eins að neðan? Nokkrar vinkonur hringdu: Við vildum nú bara fá að vita það hvort karlpeningurinn sem vinnur í nýja veitingahúsinu í Kópavogi, Manhattan, væri eins til fara neðan beltis og stúlkurnar sem þjóna þar. Klæðaburður þeirra er greinilega til þess eins að laða karlmenn að staðnum og okkur fínnst því ekki ósanngjarnt að þeir karlmenn sem þarna vinna verði eins klæddir. Ef svo er ætlum við að mæta galvaskar um næstu helgi. Raddir lesenda

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.