Dagblaðið - 10.10.1981, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 10.10.1981, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1981. 13 Lokastund módelkeppni Vikunnar: Og nú er þaö heimsborgin sem bíöur Þau hlutu ferð til New York, Gunnlaugur Carl Nialsen og Sigríður Stan/oysdáttir. Þá mun þeim einnig veröa konM á framfæri erlendis. Þó að stóra stundin væri & næsta lerti mátti akki sýna taugatitring á meóan tizkusýningin fór fram enda lót enginn sltt eftir Hggja að gera sem bezt, þrátt fyrir allan áhorfendafjöldann. Það ríkti sannkölluð spenna meðal keppendanna tíu i keppninni „Vikan velur módel” á miðvikudagskvöldið. Keppendurnir eru búnir að ganga i gegnum margvíslegar þrautir síðan þeir voru valdir úr þrjátíu manna hópi í júní til að keppa til úrslita. Og þegar stóra stundin var að renna upp var ekki laust við að titr- ingur gerði örlítið vart við sig. Verðlaunin voru heldur ekki af verra taginu, vikudvöl í heimsborginni New York. Þar fyrir utan mun verðlaunahöfunum verða komið á framfæri við þekkta tízkukónga. Unnur Arngrímsdóttir hefur í haust þjálfar upp krakkana og á miðviku- dagskvöldið sýndu þeir mörg hundruð boðsgestum í Hollywood að reynslan hefur sannarlega komið þeim til góða. Tizkusýning þeirra tókst með afbrigðum vel. Eftir sýninguna kom Graham Smith með fiðluna sína og lék nokkur vel valin lög með aðstoð Herdísar Hallvarðsdóttur sem þekkt er úr hljómsveitinni Grýlunum. Að því búnu voru keppendur kallaðir fram og þeim afhentir blómvendir frá að- standendum keppninnar, fatnaður frá verzluninni Sonju og Lancome snyrtivörur frá Rolf Johansen sem Svava Johansen afhenti. Þá voru úrslitin kynnt, fyrst nafn herrans, Gunnlaugs Carls Nielsen, og síðan dömunnar, Sigríðar Stanleys- dóttur. Þeim var báðum fagnað óspart með lófaklappi og á næstunni fáum við væntanlega að sjá sigurveg- arana á tízkusýningum Módelsam- takanna og vonandi hina kepp- endurna líka. -ELA. Tízkusýning fró verzlununum Sonju og Henahúslnu. MódeHn sýndu og sönnuðu að þau eru öll hæf í sýningarsamtök og ar vonrndi að viðfóum að sjó ftau aftur ó þeim vettvangi. Ounnlaugur fagnar sigri og á næstunni hekJur hann til heimsborgarinnar ósamt Slgriðl og BorghHdi önnu, blaðamanni Vikunnar, sem verður loið- sögumaður þeirra. Graham Smith og Herdís Hallvarðsdóttir láku nokkur val vaHn kjg vlð mikinn fögnuð, en sam kunnugt er hefur Graham nýlega sant fró sór hljómplötu með íslenzkum ktgum. HrafnhUdur Sveinsdóttir blaðamaður á Vikunni færir keppendunum blómvönd fró aðstandendum keppninnar. Þær Borghildur Anna Jónsdóttir blaðamaður ó Vikunni og Unnur Am- grimsdóttir hafa haft vag og vanda af framkvæmd kappninnar og færði Sigurður Hreiðar ritstjóri Vikunnar þeim þakklætisvott fyrir vel unnin störf. Það vlrtist koma Slgriðl gjörsamlega á óvart jtegar Sigurður Hreiðar kallaði nafh hannar sem sigurvegara. Hór takur hún við skjali sinu fró rit- stjóranum. DB-myndir Einar Ólason.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.