Dagblaðið - 10.10.1981, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 10.10.1981, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1981. á þessu glæsilega bordstofusettí sem er úr mass'rfri furu og fæst í Ijósum viðar lit eða brúnbæsað. TILBOÐIÐ GILDIR TIL 4. NÓV. Það er varla hægt að komast nær handverki en gert er í þessum húsgögnum Stærðirá borðunum eru 75 x 120 — 75 x 140 85 x 160 sm, hringborð 110 sm og sporöskjulagað borð 90 x 140 ipóstkröfu FURUHÚSIÐ H/F j£ 9nt L 86605 SUÐURLANDSBRAUT 30 « Wrtí i™ rf sími 86605 jm Kalla menn sína kvikindi og skepnur —og allt þar á milli, segir eiginkona akóhólista og er undrandi á skrif um kynsystra sinna Eiginkona alkóhólista skrifar: Ég er svo undrandi yfír skrifum kynsystra minna í Dagblaðinu 29. sept. og „Velvakanda” Morgun- blaðsins 4. okt. sl. að ég get ekki orða bundizt. Ekki það að ég sé hissa á skrifum þeirra um Kötlufellsmálið því sú kona á samúð mína alla og mér finnst að henni hefði átt að standa til boða læknishjálp frekar en fangelsis- vist. Undrun mín er fólgin í því hvernig þessar konur tala um alkóhólistana sína, kalla þá kvikindi, skepnur og allt þar á milli. Með allri þeirri fræðslu sem hægt er að fá nú til dags, ef viljinn er fyrir hendi, hélt ég að fólk almennt Uti á alkóhólisma sem sjúkdóm. Ef eiginmenn okkar væru haldnir sykursýki eða öðrum ólækn- andi sjúkdómi, sem þó mætti halda í skefjum með réttri meðferð, myndum við kalla þá aumingja og ræfla? Ég held ekki. Ég er sjálf búin að vera gift alkó- hólista í 26 ár og það var fyrst eftir að ég fór að skilja að hann væri sjúkur að ég fór að leita mér að fræðslu um þessi mál. Þá fyrst fór mér að líða betur og gekk betur að takast á við þau vandamál sem fylgja því að búa við áfengisvandamál. Og síðan alkóhólistinn minn fór í með- ferð við sjúkdómnum er lífið allt annað og ég er alltaf að sjá betur og betur hve mikinn mann hann hefur að geyma. Þess vegna vil ég segja við þessar konur: Aflið ykkur fræðslu um þessi mál. Farið á kynningar- fundi hjá SÁÁ, farið á Al-Anon fundi, en byrjið umfram allt á að hjálpa ykkur sjálfum því ekkert ástand er svo slæmt að ekki megi bæta það og ekkert er verra en sjálfs- vorkunn. Það læra börnin sem fyrir þeim er haft! Kona skrifar: Hvenær ætla íslendingar að skilja hvað barn er? Þar á ég við sérstaklega nú þegar þeim er leyft að hjóla á gangstéttum og víðar í umferðinni. Það er með eindæmum hvað við erum andvaralaus og sérstaklega er að börnum lýtur. Átta ára börn eru óábyrg gerða sinna og það er nú það, en því miður eru þau yngri líka á göt- unni á hjólum. Fimm til sex ára börn eru hjólandi á gangstéttum og á göt- unni, því miður er þetta sannleikur. Hvar á hin gangandi manneskja að hafa friðhelgi til að ganga, ekki eru allir á bílum, sem betur fer, þar sem um ofnotkun á þeim er að ræða hér í Reykjavík? Því er litill gaumur gefinn þótt einn og annar gefi hollar ábendingar. Forráðamenn ættu að taka af skarið og stoppa þetta ófremdarástand þótt þeim hafi orðiö á sá blindisleikur sem nú hefur verið leikinn í október. Einsdæmi í veröld- inni, kæruleysið með smælingjana. Æskan er dýrmæt eign þjóðarinnar og hana ber að vernda á eðlilegan hátt. Raddir lesenda . Alkóhól er undirrót þess sem eiginkona alkóhólista skrifar um i bréfi sfnu. Þessar tvær flöskur hafa verið tæmdar og e.t.v. var það kveikjan að alkóhóiisma þess er drakk. GOLA sportskór Stæröir 31—34 Stærðir 38-47 Verðkr. 145,10 RUCANOR Stærðir Verðkr. 112,00 PÓSTSENDUM Laugavegi 13. Sírm 13508. Allur akstur krefst varkárni Ytum ekkl bamavagni á undan okkur vlð aðstæður sem'þessar \__dœEROw Við kynnum nýja 'mTB sérverslun með FURU-^^T HÚSGÖGN og ^ rlJ bjóðum i þvi ^ Vj f tílefni sér- J^STAÐGREIÐS MEÐ r "15% STAÐGREIÐSLUAFSLÆTTI eða með aðeins Spurning Hefurðu sóð draug? Ásta Jóna Skúladóttir sjúkrallði: Nei, aldrei og trúi ekki á slikt. Thor VUhJálmsson rithöfundur: Mér finnst það ómögulegt að ég fari að hjálpa til að vekja upp drauga. Þið ætt- uð að ræða við mig eftir sosum 10 tima, þegar orðið er dimmt. Það er aldrei að vita nema ég gæti grafið upp draug þá. Annars er mikill drauga- gangur í blaðamennskunni núna, t.d. Svarthöfði. Það mætti að ósekju kveða hann niður. Aðalbjörg Haraldsdóttir ritari: Nei, það hef ég ekki en ég þori ekkert að fullyrða um hvort þeir eru til eða ekki. Guðlaugur Kristmanns skrifstofu- maður: Nei, ekki þá nema í sjónvarp- inu. Ingólfur Guðjónsson bilstjóri: Draug hef ég aldrei augum litið og ég á ekki von á aö sjá sllkt. Borgþór Jónsson neml: Það tel ég ekki. Nei, ég trúi ekki á slik fyrirbrigði.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.