Dagblaðið - 10.10.1981, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 10.10.1981, Blaðsíða 14
14 DAGBLADID. LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1981. Ferðafólag íslands Dagsferðir sunnudaginn 11. okt. 1. kl. 10.30 Móskarðshnjúkar — Trana — Svína- skarfl. Ekið upp að Hrafnhólum, gengið þaðan á fjöllin og síðan yfir Svínaskarð og niður í Kjós. Far- arstjóri: Tryggvi Halldórsson. Verð kr. 80 gr.v/bílinn. 2. kl. 13.00 Kjósarskarfl — Þórufoss — Pokafoss. Ekið um Kjósarskarð, gengið niður með Laxá og fossarnir skoðaðir. Fararstjóri: Hjálmar Guð- mundsson. Verð kr. 80 gr. /bílinn. Ferðirnar eru farnar frá Umferðarmiðstöðinni að austanverðu. . ‘Þróttir : Frá handknattleiksdeild ÍR Aðalfundur deildarinnar verður haldinn miðvikudaginn 14. okt. í Greninu, Arnarbakka 2, kl. 21.00. Venjuleg aðalfundarstörf. Tónleikar Orgeltónleikar f Ffladelfiu- kirkjunni Laugardaginn 10. október nk. heldur Antonio Cor- veiras, organleikari viö Hallgrímskirkju, orgeltón- leika í Fíladelfíukirkjunni. Tónleikarnir hefjast klukkan 17.00 og á efnisskránni verða m.a. verk eftir Palestrina, Couperin, Pergolesi, Corrette og Cabena. Þetta eru aðrir tónleikarnir í röð þriggja.tónleika Antonio Corveiras í Fíladelfiukirkjunni nú í haust. Þriðju tónleikarnir veröa laugardaginn 17. október nk. á sama tíma og þá verða m.a. leikin verk eftir Frescobaldi, Heinrich Bach, Georg Muffat, Lang- lais, Mulet og Widor. Antonio Corveiras hefur verið búsettur hér á landi allmörg undanfarin ár og hefur lengst af starfað sem organleikari og kennari en hann hefur einnig gefið hér út bækur, bæði ritverk og Ijósmyndabækur frá heimahéraði sínu, Asturias á Norður-Spáni. Hann hefur viða farið og búiö, einkum 1 Rómönsku Ameríku, en bjó einnig lengi í París þar sem hann var við nám hjá hinum þekkta franska orgelsnillingi André Isoir, sem kom hingaö til lands í ár fyrir til- stuðlan Corveiras og hélt hér tónleika bæði í Reyx;a- vik og Skálholti. Pótur Jónasson gftarleikari á klassísku kvöldi að Hlíðar- enda Hlíðarendabændur bjóða upp á gítartónlist á klass- ísku kvöldunum tvo næstu sunnudaga. Það er Pétur Jónasson sem leikur bæði kvöldin. Á efnisskránni verða verk eftir Heitor Villa-Lobos, Isaac Albénig og Fransisco Tarrega. Þá leikur Pétur íslenzkt þjóð- lag i útsetningu Eyþórs Þorlákssonar. Pétur Jónasson hóf gítarnám sitt hjá Eyþóri Þor- lákssyni. Síðar fór hann í framhaldsnám til Mexikó- borgar. Þar stundaði hann nám hjá gitarleikaranum Manuel Lopez Ramos frá Argentinu. Pétur hefur haldiö einleikstónleika í Mexíkóborg. Einnig í Reykjavik, Akureyri, ísafirði og Hornafiröi. Hann hefur leikið í útvarpssal í Mexíkó og Reykjavík. Tónleikar Péturs á Hlíðarenda hefjast klukkan 21.30. Vfsnakvöld í Þjóð- leikhúskjallaranum Næsta vísnakvöld vetrarins verður mánudaginn 12. október kl. 20.30 1 Þjóðleikhúskjallaranum. Meðal þeirra sem fram koma verða Þorsteinn frá Hamri og Bryndís Júlíusdóttir. Einnig verður frjáls dagskrá og er fólk hvatt til að koma með efni. Vísnavinir. Mezzoforte í NEFSíkvöld Hljómsveitin MEZZOFORTE mun flytja blandað efni á tónleikum í Félagsstofnun stúdenta, laugar- daginn 10. október kl. 21—23. Hljómsveitin er nú nýkomin frá London þar sem hún vann við upptökur á þriðju plötu sinni. Eins og kunnugt er náði fyrri plata þeirra, ,,í Hakanum”, umtalsverðum vinsældum þar ytra, og komst meðal annars í 5, sæti á sölulista yfir diskótónlist. Segja má aö næsta plata þeirra sé í rökréttu framhaldi af „í Hakanum” en þeir eru trúir þeirri tónlistarstefnu sem þeir hafa getið sér gott orð fyrir, þ.e. jassrokk- bræðingnum, og kunnugir segja að nú sé bjartari tíð í vændum fyrir slíka tónlist. Undanfarna daga hafa strákarnir verið við æfing- ar á tónleikadagskrá sem þeir flytja í fyrsta sinn á laugardaginn í NEFS klúbbnum en síðan hyggjast þeir leggja land undir fót og heimsækja m.a. fram- haldsskólana viðs vegar um landið. Ekki er enn að fullu ákveðið hvar þeir koma fram, en unnið er að skipulagingu á því og þess má geta að umboðsmaður þeirra er Eiríkur Ingólfsson og hægt er að ná í hann í síma 28445. Sem fyrr segir hefjast tónleikarnir kl. 21 og reynsl- an hefur sýnt að það er vísast að mæta stundvíslega vegna hinnar miklu aðsóknar að klúbbnum. AA-samtökin í dag, laugardag, verða fundir á vegum AA-samtak-t* ’anna sem hér segir: Tjarnargata 5 (s. 91-12010),' græna húsið, kl. 14 og 16 (spoFafundur) Tjamargata 3 (91-16373), rauöa húsið, kl. 21, Langholtskirkja kl. 13, ölduselsskóli Breiðholti kl. 16. Akureyri (96-22373) Geislagata 39, kvennadeild, kl. 14.00 Akureyri (96-22373) Geislagata 39, kl. 16.00. Höfn Hornafiröi, Miötún 21, kl. 17.00. Staöarfell Dalasýslu (93-4290), StaðarfeU, kl. 19.00. Tálknafjörður, Þinghóll, kl. 13.00. Vestmannaeyjar (98-1140), Heimagata 24, opinn, kl. 17.00. , Á morgun, sunnudag, verða fundir sem hér segir: Tjarnargata 5, græna húsið, kl. 11, 14, 16 (spora- fundur) og 21 (framsögumaður). Tjarnargata 3, rauða húsið, kl. 21. Akureyri (96-22373), Geislagata 39, kl. 11.00. ísafjörður, Gúttó við Sólgötu, kl. 14.00. Kefiavik (92-1800), Klapparsíg7, kl. 11.00. Keflavík, ensk spor, kl. 21.00. Grindavik, barnaskólinn, kl. 14.00. Grundarfjörður, safnaðarheimili, kl. 17.00. Egilsstaðir, Furuvellir 10, kl. 17.00. Fáskrúðsfjörður, félagsheimiliö Skrúður, kl. 11.00. Reyðarfjörður, kaupfélagshúsið, kl. 11.00. Selfoss (99-1787), Selfossvegur 9, kl.,11.00. Staðarfell, Dalasýsla (93-4290), Staðarfell, kl. 21.00. Vopnafjörður, Heimabyggð4..kl. 16.00. Aðalfundur Kennarasambands Vestfjarða (KSV) Haustþing Kennarasambands Vestfjarða var haldið að Núpi í Dýrafirði dagana 24. og 25. sept. 1981. Þingið sóttu u.þ.b. 60 kennarar hvaðanæva af Vest- fjörðum og var dagskráin mjög fjölbreytt. Megin- viðfangsefnið var „Móðurmálskennsla” og fiuttu átta kennarar úr fræðsluumdæminu erindi sem síðan spruttu af fjörugar umræður. Dagskrá þessa skipulagði Anna Skarphéðinsdóttir námstjóri í íslenzku, en erindi fluttu: Aðalbjörg Sigurðardóttir ísafirði, Ásrún Kristjánsdóttir Patreksfirði, Björg Baldursdótir Hnífsdal, Elísabet Guðmundsdóttir Bolungarvík, Emil Hjartarson Flateyri, Gústaf óskarsson ísafirði, Helga Svana Ólafsdóttir Bolungarvik og Sigríður Ragnar ísafirði. Sjö námstjórar voru með fundi og viðræður við kennara á þessu haustþingi, en þeir voru: Anna Skarphéðinsdóttir (ísl.), Hrólfur Kjartansson (líffræði), Hörður Bergmann (danska), Jacqueline Hannesson (enska), Páll ólafsson (íþróttir), Ragn- heiður Gunnarsdóttir (stærðfræði) og Þórir Sigurðs- son (mynd- og handmennt). Ása Guðmundsdóttir sálfræðingur við Fræðslu- skrifstofu Vestfjarða kynnti sálfræðiþjónustu í skólum á Vestfjörðum, Svavar Guðmundsson stýrði fræðslufundi um „Töflunýtingu” og Ragna Freyja Karlsdóttir fræðslufundi um „Hegðunarvandkvæði og fyrirbyggjandi aðgerðir”. Á aðalfundi KSV var stjórnin endurkjörin, en hana skipa: Jón Baldvin Hannesson formaður, Daði Ingimundarson gjaldkeri, Emil Hjartarson ritari, Þuríður Pétursdóttir, Björg Baldursdóttir og Sigurður Friðriksson. Fundur Alþýðusambands fslands 54 manna nefnd ASÍ samþykti á fundi sínum 6. októ’ber eftirfarandi skipan samninganefndar sambandsins í komandi kjarasamningum: Miðstjórn (15 manns) ásamt þeim formönnum landssambanda (2) og svæðasambanda (6) sem ekki eiga sæti 1 miðstjórn. Auk þess skipi landssamböndin fulltrúa sem hér segir: Verka- mannasamband íslands 14, Landssamband íslenzkra verzlunarmanna 10, Sjómannasamband íslands 4, Landssamband iðnverkafólks 4, Samband bygginga- manna 2, Málm- og skipasmiðasamband íslands 2, Rafiðnaðarsamband íslands 2, Landssamband vöru- bifreiðarstjóra 2 og miðstjóm ASÍ skipi 7 fulltrúa vegna félaga með beina aðild. Þá skipi Iðnnema- samband islands 2 fulltrúa. Samtals eru þetta 72 fulltrúar. Tilnefningaraðilar greiði hver um sig kostnað af sinum fulltrúum. Þá samþykkti fundur 54 manna nefndar að fyrsti fundur þessarar samninganefndar skyldi haldinn 20. október. Elias Valur Benediktsson verður jarð- sunginn í dag, 10. október, kl. 11 frá Selfosskirkju. Sigrún Einarsdóttir, Hofsstöðum Staf holtstungum, verður jarðsungin frá Gilsbakkakirkju i dag, 10. október, kl. 14.00. Bílferð frá Umferðarmiðstöð- inni kl. 11.00. Bjarni Ólafsson bifreiðarstjóri, Eyrar- vegi 14 Selfossi, verður jarðsunginn frá Selfosskirkju í dag, 10. október, kl. 16.00. *L Æ_____rin-ffl Þakkarávarp Hjartans þakkir til allra þeirra sem glöddu mig með gjöfum og skeytum á 85 ára afmæli minu. Lifiö heil. Kveðja, Elín Jónsdóttir frá Eskifirði. Basar Systrafé- lagsins Alfa verður að Hallveigarstöðum á morgun, sunnudag, 11. október kl. 14.00. Kvenfólag Óháða safnaðarins Kirkjudagur nk. sunnudag hefst með messu kl. 14.00. Sigurður Magnússon framkvæmdastjóri pre- dikar. Félagskonur eru góðfúslega beðnar að koma kökum til félagsins, laugardag frá kl. 13—16 og sunnudag frákl. 10—12. ^ Fréttatilkynning frá Jafnréttisráði Nokkurs misskilnings hefur að undanförnu gætt í lesendabréfum dagblaðanna um skipan Jafnréttis- ráðs. Vegna þessa vill ráðið taka eftirfarandi fram: Jafnréttisráð er opinber stofnun, sem starfar sam- kvæmt lögum, sem samþykkt voru á Alþingi 19. maí 1976. 9. grein jafnréttislaganna hljóðar svo: „Jafnréttisráð skal annast framkvæmd laga þessara. Jafnréttisráð skal skipað 5 mönnum til þriggja ára í senn og skulu þeir ásamt varamönnum skipaðir þannig: einn skipaður af Hæstarétti og er hann formaður ráðsins og skal hafa lokið embættis- prófi í lögum, einn skipaður af félagsmálaráðherra, einn skipaður af Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, einn skipaður af Alþýðusambandi fslands og einn skipaður af Vinnuveitendasambandi íslands Jafnréttisráð hefur skrifstofu og ræður fram- kvæmdastjóra til að veita henni forstöðu. Kostn- aðurgiciðist úr ríkissjóði.” Eftirtaldir adilar eiga nú sæti í Jafnréttisráði: Guðríður Þorsteinsdóttir, formaður tilnefnd af Hæstarétti, Ásthildur Ólafsdóttir, tilnefnd af félags- málaráðherra, Gunnar Gunnarsson, tilnefndur af BSRB. Kristin Guðmundsdóttir, tilnefnd af ASÍ. Einar Árnason, tilnefndur af VSÍ. Gjafir og áheit sem borizt hafa Landakirkju í Vestmannaeyjum Frá síðustu áramótum hafa gjafir og áheit borizt Landakirkju, einnig var, söfnunarkistill í anddyri kirkjunnar tæmdur, voru í honum kr. 1.651,15. .Fyrstu níu mánuði ársins hafa því Landakirkju borizt kr. 29.247,15 í áheitum og gjöfum. Sóknar- nefnd Landakirkju færir öllum gefendum fjær og nær beztu þakkir. íslandsdeild norrænu lögfræðiþinganna Norrænt lögfræðingaþing var haldið í Stokkhólmi 19.—21. ágúst sl. Var það hið tuttugasta og niunda í röðinni, en fyrsta norræna lögfræðingaþingið var haldið í Kaupmannahöfn árið 1872. Á þinginu í Stokkhólmi voru til umræðu mörg lögfræðileg mál-. efni, sem ofarlega éru á baugi, þ.á.m. löggjöf og lagareglur um fjármál hjóna og sambúðarfólks, tjáningarfrelsi og þagnarskyldu opinberra starfs- manna, um vinnustaði og vinnuvemd, um réttindi sjúklinga, um úrlausn smærri einkamála, um al- menningsréttindi og um refsiviðauka og réttarvitund almennings. Þá var rætt efnið frelsi, réttaröryggi og virk samfélagsstjórn. Þrír íslenzkir lögfræðingar voru meðal frummælenda, þau Guðrún Erlends- dóttir dósent, Guðmundur I. Sigurðsson hæsta- réttarlögmaður og Ragnhildur Helgadóttir, fyrrv. alþingismaður, en alls tóku rösklega þrjátíu isl. lög- fræðingar þátt í þinginu. Á norræna lögfræðinga- þinginu var í fyrsta sinni úthlutað norrænum verð- launum til vísindamanns í lögfræði, og hlaut próf- essor Johs. Andenæs í Osló, sem íslendingum er að góðu kunnur, þau verðlaun. Næsta norræna lög- fræðingaþing verður haldið í Osló 1984. í stjórn íslandsdeildar norrænu lögfræðinga- þinganna eru dr. Ármann Snævarr, hæstaréttar- dómari, Árni Kolbeinsson deildarstjóri, Baldur Möller ráðuneytisstjóri, Benedikt Blöndal hæsta- réttarlögmaður, Björn Sveinbjömsson hæstaréttar- forseti, Guðmundur Ingvi Sigurösson hæstaréttar- lögmaður, Guðrún Erlendsdóttir dósent, Hrafn Bragason borgardómari, Jón E. Ragnarsson hæsta- réttarlögmaður og Þór Vilhjálmsson hæstaréttar- dómari. Kvenfélag Kópavogs gengst fyrir almennri hressingarleikfimi kvenna. Kennt er í Kópavogsskóla mánudaga kl. 19.00 og miðvikudaga kl. 21.15. Upplýsingar ísíma40729. Bókabúfl Suðurvers opnar laugardag kl. 16.30 10. október verðúr opnuð i Suðurveri ný og glæsileg bókabúð undir nafninu Bókabúð Suðurvers. Þar verða til sölu allar nýjustu bækur, ritsöfn, ritföng, innlend og erlend blöð og allavega skólavömr. Framkvæmdastjórar eru Bjarni Á. Friðriksson íslandsmeistari í júdó og Bragi Sveinsson, báðir kunnir bókasölumenn. Eigandi er Kver sf. sem er sameignarfélag þeirra félaga. Verzlunarstjóri er Jóhanna Jóhannsdóttir sem hefur margra ára starfs- reynslu á þvi sviði. Á myndina vantar Bjarna Á. Friðriksson. Jóhann, Bragi og Bryndís i Bókabúfl Suflurvers. Saab og Subaru meðal vinninga Krabbameinsfélagið er nú farið af stað með haust- happdrætti sitt þetta árið og miðar hafa verið sendir út með venjulegum hætti. Aðalvinningarnir eru að þessu sinni tveir mjög eftirsóttir bílar, Saab 900 GLS og Subaru „station”, fjórhjóladrifinn með háu og lágu drifi, báðir árg. ’82. Þriöji vinningurinn er bif- reið að eigin vali fyrir 80 þúsund krónur. Þá eru í boði þrjú Grundig myndsegulbandstæki og sex Finlux litsjónvarpstæki. Heildarverðmæti þessara 12vinningaerum 520 þúsund krónur. Miðinn kostar nú 20 krónur en hverjum viðtak- anda eru sendir tveir miðar áfastir við gíróseðil. Dregið verður 24. desember en félaginu kemur vel að fá miðana greidda sem fyrst. Félag járniðnaðarmanna vill skipaverkstöð Á félagsfundi í Félagijárniðnaöarmannasem haldinn var 28.09 sl. var samþykkt samhljóða að segja upp kjarasamningum við samtök atvinnurekenda og að hafa samstarf við sambandsfélög Málm- og skipa- smíðasambands íslands varðandi komandi kjara- samningagerð, svo og ASÍ að því er varðar félags- leg réttindamál, verðtryggingu launa og átak í at- vinnu-uppbyggingu. Jafnframt var samþykkt á félagsfundinum eftir- farandi ályktun sem send verður viðkomandi stjórn- völdum. „Félagsfundur í Félagi járniðnaðarmanna hald- inn 28. sept. 1981 fagnar samþykkt hafnarstjómar frá 28. ágúst sem staðfest var á borgarstjórnarfundi 3. sept. sl. varðandi byggingu skipaverkstöðvar í Kleppsvík. Félag járniðnaðarmanna vill í framhaldi af sam- þykkt hafnarstjórnar og borgarstjómar beina því eindregið til iðnaðarráðherra og Samgönguráðu- neytis að stutt verði sérstaklega við framkvænd samþykktarinnar varðandi byggingu skipaverk- stöðvarinnar, í samræmi við ákvæði í stjórnarsátt- mála ríkisstjórnarinnar, í kafla um eflingu atvinnu- veganna III. lið um iðnað, þar sem segir svo: „Stuðlað verði að byggingu skipaverkstöðvar í Reykjavík”. Félag járniðnaðarmanna væntir þess að ríkis- stjórnin framkvæmi þettayfirlýsta stefnumið sitt í samstarfi við hafnarstjórn og borgarstjórn Reykja- víkur, á grundvelli samþykkta þessara aðila.” Kirkjukaffi, basar og söngur í Bústaðakirkju Lengi þótti það sjálfsagður þáttur kirkjugöngu að halda inn í prestssetrið eða bæ kirkjubónda og þiggja góðgjörðir eftir messu. Minna mun nú um slíkt, og alveg niðurfallið í þéttbýli. Þó er viss eftir- sjá að þessu þar sem viðkynningin yfir kaffibolla var mikils virði og jók samfélagskennd og vináttu. Á sunnudaginn gefst kirkjugestum þó kostur á því að ganga í safnaðarsal Bústaðakirkju eftir messuna kl. 2 og setjast að borðum, njóta góðra veitinga, sem Kvenfélag Bústaðasóknar reiðir fram gegn vægu gjaldi. Og einnig er hægt að hafa með sér heim vistir þar sem konurnar verða með margs konar kökur og slíkt góðgæti á basarborðum.’ En til að auka enn frekar á ánægjuna munu tvær listagóðar söngkonur gleöja kirkju- og kaffigesti með flujningi sínum á ýmsum þekktum tónverkum. Eru þær báðar að góðu kunnar, ekki aðeins i Bú- staðakirkju heldur hvarvetna þar sem fólk kann að meta góðan söng. Eru þetta söngkonurnar frú Ingi- björg Marteinsdóttir og frú Ingveldur Hjaltested óperusöngkona. En við pianóið verður eins og við orgelið í messunni Guöni Þ. Guðmundsson, sem á þaö til að krydda söng og hljóðfæraleik með smelln- um gamansöng og öðru því sem eykur á léttleika og samhygð. Við vonum að sem flestir leggi leið sína 1 Bústaða- kirkju á sunnudaginn, fyrst i messuna og síðan i kirkjukaffið. Og um leið viljum við benda á það að barnastarfið er nú hafið með guðsþjónustum kl. 11 árdegis. Rafmagnstœki og fegrun, — og notagildi snyrtivara — brezkur sfnafrnðingur og skólastjóri snyrti- frœðingaskóla heidur fyrirlestur hér. Störf snyrtifræðinga hér á landi hafa aukizt að mun á undanfömum árum. Má eflaust þakka það al- mennari áhuga bæði karla og kvenna á líkamsrækt og vemdun heilsu sinnar. í Félagi íslenzkra snyrti- fræðinga em rúmlega 230 félagar, að vísu ekki allir í starfi. Margar nýjungar er að finna í þessari starfsgrein og félagar í Félagi ísl. snyrtifræðinga fylgjast vel með því sem er að gerast í rannsóknum og almenn- um framförum á sinu sviði. Um þessa helgi er gestur félagsins Kenneth Morris og eiginkona hans. Morris er efnafræðingur að mennt og hefur sérhæft sig í efnafræði snyrtivara. Hann er skólastjóri og einn eigenda London Insti- tute of Beauty Culture, gjaldkeri alþjóðasamtaka snyrtifræðinga og formaður fræðslunefndar brezka snyrti fræðingafélagsins. Á sunnudaginn kl. 14 heldur Kenneth Morris fyrirlestur í Átthagasal Hótel Sögu. Fjallar hann þar um tvö málefni, notkun ýmissa rafmagnstækja 1 fegrunarmeðferðum og hina efnafræðilegu samsetn- ingu og notagildi snyrtivara, m.a. um virk efni 1 þeim, sýmstig og lausnir. Bikarkeppni BSÍ Úrslitaleikurinn i bikarkeppni BSÍ verður haldinn á Hótel Loftleiðum laugardaginn 10. október. Til úr- slita keppa sveitir Egils Guðjohnsen og Amar Arn- þórssonar. Úrslitaleikurinn er alls 64 spil en aðstaða fyrir áhorfendur verður ekki sett upp fyrr en að loknum 16 spilum, eða klukkan 13.00. Þá verða spilin sem eftir em sýnd á sýningartjaldi. Aðgangs- eyrir verður 25 krónur. Sveit Egils Guðjohnsen skipa auk hans: Stefán Guðjohnsen, Guðmundur Pétursson, Sigtryggur Sigurðsson, Óli Már Guðmundsson, og Þórarinn Sigþórsson. Sveit Arnar Amþórssonar skipa auk hans: Guðlaugur R. Jóhannsson, Hörður Arnþórsson, Jón Hjaltason, Jón Ásbjömsson og Símon Símonarsson. Keppnisstjóri er Guðmundur Sv. Hermannsson. Hluti setn- ingar f éll úr Úr frétt í blaðinu í gær, um eignar- rétt að Sandskeiði, féll niður setningar- hluti sem varð til þess að merkingin skildist ekki eða mátti skilja á rangan hátt. í miðri fréttinni segir: „Þegar Seltjarnarnes- hreppur stofnaður, árið 1947, hafi Sandskeiðinu verið skipt til helminga á milli hreppanna. . .” Á eftir „Seltjarnarnes-” vantar setn- ingarhluta. Rétt hljóðar þetta svona: „Þegar Seltjarnarneshreppi hafi verið skiot og Kópavogshreppur stofnaður, árið 1947, hafi Sandskeiðinu verið skipt til helminga á milli hreppanna -KMU. Fermingar Neskirkja Fnrmingarbörn 11. október kl. 2 e.h. Prestur: Sóra Frank M. Halldórsson. STÚLKUR Brynhildur Ingadóttir, Tómasarhaga 34. Gróa Maria Þórflardóttir, Skildinganesi 4. Helga Ólafsdóttir, Vallarbraut 7, Seltjarnarnesi. Sólveig Lilja Einarsdóttir, Flókagötu 63. Unnur Orrádóttir, Hagamel 8. Þorbjörg Sigurflardóttir, Kaplaskjólsvegi 51. DRENGIR Alf Wardum, Geitlandi 35. Gísli Heimir Jóhannsson, Breiðvangi 2, Hafnarfirfli. Halldór Jónasson, Melabraut 63, Seltj., Halldór Guðjón Jónasson, Melbæ 43. Sigurflur Valtýsson, Kaplaskjólsvegi 65. Sigurjón Ólafsson, Vallarbraut 7, Seltjarnarnesi. Fríkirkjan Fermingarbörn 11. okt. kl. 2. Prestur: Sóra Kristjón Róbertsson DRENGIR Hermann Haukur Jónsson, Melseli 20. Hrafnkell Þorsteinsson, Stufllaseli 24. Leander Hilmarsson, Mosgerfli 25. Safnaðarheimili Árbæjarsóknar Fermingarguösþjónusta og altaris- ganga sunnudaginn 11. október kl. 2 e.h. Prestur: Sóra Guðmundur Þorsteins- son. Fermd verfla eftirtalin börn: Birna Methúsalemsdóttir, Deildarási 6. Dagbjört Lára Helgadóttir, Hraunbæ 180, Guðmundur Jónsson, Deildarási 3, Hlynur Sigurflarson, Hraunbæ 130. Grensáskirkja Fermingarbörn 11. okt. kl. 2. Prestur: Sóra Halldór S. Gröndal. Klara Björg Jakobsdóttir, Þinghólsbraut 80, Kópav., Stefán Stefánsson, Stóragerði 31. Þorvaldur Skúlason, Stóragerfli 15. Kópavogskirkja Fermingarbörn 11. okt. kl. 2. Prestur: Sóra Árni Pálsson. Berglind Pálsdóttir, Háteigsvegi 1, Reykjavík. Hafdis Hafsteinsdóttir, Melgerfli 2. Vilborg Víðisdóttlr, Austurgerði 2. Guflmundur Helgi Önundarson, Kársnesbraut 79. Jóhann Tómas Axelsson, Kópavogsbraut 99. Matthias Björnsson, Þinghólsbraut 50. Ósvaldur Þorgrimsson, Hraunbraut 12. GENGIÐ GENGISSKRÁNING NR. 192 9. OKTÓBER1981 , Ferflamanna- gjaldeyrir Einingkl. 12.00 Kaup Sala Sala 1 Bandarikjadollar 1J5ÍJ2 7,594 8,353 1 Staríingspund 14,447 14,489 15,937 1 Kanadadollar , 6,323 6,341 6,975 1 Dönsk króna 1,0737 1,0768 1,1845 1 Norskkróna 1,3100 1,3138 1,4452 1 Ssansk króna 1,3895 1,3935 1,5329 1 Finnskt mark 1,7483 1,7534 1,9287 1 Franskur franki 1,3755 1,3795 1,5175 1 Belg. franki 0,2056 0,2082 0,2268 1 Svissn. f ranki 4,0819 4,0938 4,5032 1 Hollenzk florina 3,1148 3,1238 3,4362 1 V.-þýzktmark 3,4497 3,4597 3,8057 1 (tölsklfra 0,00649 0,00651 0,00716 1 Austurr. Sch. 0,4926 0,4941 0,5435 1 Portug. Escudo 0,1200 0,1203 0,1323 1 Spénskur peseti 0,0807 0,0810 0,0891 1 Japanskt yen 0,03319 0,03329 0,03661 1 írsktDund 12,229 12,264 13,490 SDR (sérstök dréttarréttlndi) 01/09 8,8807 8,9063 Slmavari vagna ganglaakránlngar 22190.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.