Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 10.10.1981, Qupperneq 9

Dagblaðið - 10.10.1981, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1981. 9 JOHN NUNN REYNDIST OFJARL ÁSKORANDANS -á skákmótinu í Jóhannesarborg. Lokaæfing Kortsnoj fyrir heimsmeistaraeinvígið Jóhannesarborg í Suður-Afríku var síðasti viðkoraustaður Viktors Kortsnoj fyrir heimsmeistaraeinvígið sem nú stendur yfir í Meranó. Er skemmst frá því að segja að allt gekk á afturfótunum hjá áskorandanum í fyrri hluta mótsins og sá kvittur komst á kreik að nú væri hann end- anlega útbrunninn sem skákmaður. Eftir tvö töp gegn enska stórmeistar- anum John Nunn og eitt gegn Robert Hiibner var Kortsnoj neðstur, en þá fór loks að rofa til. í seinni hluta mótsins tefldi Kortsnoj af miklu öryggi og ef hann hefði náð að vinna Nunn í siðustu umferð hefði hann deilt efsta sæti með Ulf Andersson. Aðeins þessir fjórir stórmeistarar tefldu á mótinu, fjórfalda umferð. Meðaltal skákstiga þeirra er hvorki meira né minna en 2630, svo mótið var af styrkleikaflokki 16 — í fyrsta skipti í sögunni sem skákmót nær þeim gæðaflokki. Kortsnoj og Hiiþner fengu báðir 6 1/2 v. (af 12 mögulegum), en Anders- son var feti fremri með 7 v. Nunn rak lestina með 4 v., tapaði 1—3 fyrir Andersson og 1/2—3 1/2 fyrir Híibn- er, en vann Kortsnoj 2 1/2—1 1/2. Áskorandinn vann hins vegar báða hina andstæðinga sína með sömu vinningatölu, þótt ekki hafi blásið byrlega í byrjun. Árangur Kortsnoj í Jóhannesar- borg ætti að gefa „stuðningsmönn- um” hans í einvíginu við Sovétríkin í Meranó nýja von. Engu er líkara en að Kortsnoj þurfi nokkrar umferðir til að komast í gang, en eftir það fái fátt stöðvað hann, nema kannski Karpov. Taflmennska hans tók miklum stakkaskiptum er líða tók á mótið. Hilbner yfirspilaði áskorand- ann algjörlega í eftirlætisbyrjuninni, frönsku vörninni, og John Nunn reyndist vera ofjarl hans í taktískum vendingum. Síðan snerist dæmið við: Nunn fékk aðeins 1/2 v. út úr tveimur siðustu skákunum og Hiibn- er var tekinn eftirminnilega í karp- húsið í 3. umferð. HVÍTT: Viktor Kortsnoj SVART: Robert Hiibner DROTTNINGARINDVERK VÖRN 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. Rc3 Bb7 5. Bf4 Be7 Venjan er að leika 5. — Bb4, sem Kortsnoj svarar yfirleitt með 6. Db3. Þannig tefldi hann m.a. í fjölteflinu í sjónvarpinu gegn Gunnari Gunnars- syni. 6. Dc2!? Rh5 7. Bd2 d5 8. cxd5 exd5 9. g3 0-0 10. Bg2 Rf6 11. 0-0 He8 12. Re5 a6 13. Db3 Rbc7 14. Hadl b5? Það var engan veginn auðvelt að gera sér grein fyrir afleiðingum þessa leiks. Húbner hefur í hyggju að leika 15. — Rb6 og óttast ekki 15. Rxd5 Rxd5 16. Bxd5 Bxd5 17. Dxd5 Rxe5 18. Dxd8 (18. Dxe5 Bf6) 18. — Bxd8 19. dxe5 Hxe5 o.s.frv. En leikurinn býður upp á óvæntan möguleika . . . 15. Rxd5! Rxd5 16. Ba5!! Þar lá hundurinn grafinn. Svarti riddarinn er leppur í kross og getur sig hvergi hrært. 16. —R7 f6 17. e4 Hc8 Hótunin var 18. exd5 Rxd5 19. Bxc7! ogvinnurpeð. 18. Hcl! Rxe4 19.Bxe4g6? Hvítur stendur óneitanlega betur að vígi, en eftir 19. —Hf8! er ekki um neinn rakinn vinning að ræða. T.d.: a) 20. Bxc7 Hxc7 21. Hxc7 Rxc7 22. Bxb7 Dxd4. b) 20. Rc6 Bxc6 21. Hxc6 Rb6. c) 20. Hc6 Rf6 21. Hxf6 (eða 21. Rxf7 Hxf7 22. Hxf6 Bxf6 23. Bxb7 Bxd4) Bxe4 22. Hxf7 Bd5 23. Hxf8 Bxf7 og eftir atvikum má svart- ur vel við una. d) 20. Bg2 Ba8 o.s.frv. Best virðist 20. a4! og ljóst er að svartur er í úlfakreppu. 20. Hc6! Rf6 Eftir 20. — Bxc6 21. Rxc6 tapar svartur liði. 21. Rxf7 Dxd4 22. Rg5+ Kh8 23. Bc3 og Hiibner gafst upp. Hér kemur svo hin hliðin á Korts- noj — skák tefld í fyrri hluta móts- ins. Gamla reiknivélin stenst engan veginn samanburð við stærðfræði- snillinginn John Nunn, sem teflir gullfallega. HVÍTT: Viktor Kortsnoj SVART: John Nunn KÚNGSINDVERSK VÖRN 1. c4 Rf6 2. Rc3 g6 3. e4 d6 4. d4 Bg7 5. Be2 0-0 6. Rf3 Rbd7 7. 0-0 e5 8. Dc2. Þessum leik hefur sést bregða fyrir áður í skákum Kortsnoj. Algengast er 8. Hel, ásamt 9. Bfl o.s.frv. 8. — aS 9. Hdl exd4 10. Rxd4 Rc5 11. Rdb5 He8 12. Bg5 Bd7 13. f3 Re6 14. Be3 Rh5 15. Bfl f5! 16. exf5 gxf5 17. Bf2 Ekki 17. Dxf5 Ref4! og biskupinn á e3 verður ekki varinn. 17. — Hf8 18. g3 Rf6 19. DxfS? Kortsnoj hefði betur látið þetta peð ósnert, því Nunn hefur undirbúið magnaðframhald. 19. — Rg4!!20. Dxg4 Eða 20. Dd3 Re5 20. — Rg5! 21. Dh5 Be8! 22. Dxg5 Hvítu drottningunni varð ekki forðað. Ef 22. Dg4, þá 22. —h5! og 22. Dh4 er auðvitað svarað með 22. — Rxf3 + 22. — Dxg5 23. Rxc7 Hxf3! 24. Rxa8 Hxf2! 25. Kxf2 Dc5 + 26. Kg2 Eftir 26. Kel Bxc3 + 27. bxc3 De3 + 28. Be2 Bh5 29. Hd2 Bxe2 30. Hxe2 Dxc3+ og 31. — Dxal vinnur svartur. 26. — Bxc3 27. Rc7. Hvítur er varnarlaus. Ef 27. bxc3, þá 27. — Bc6+ 28. Kh3 Dh5 mát, eða 28. Hd5 Bxd5 + 29. cxd5 Dxc3 og skákar hrókinn af. 27. — Bg6 28. Rd5 Be4+ 29. Kh3 Bxb2 30. Habl Df2 31. Hxb2 Dxb2 32. Rf4 Bf5+ 33. g4 Df2! og Korts- noj gafst upp. Svo sannarlega kraft- mikil taflmennska af hálfu Nunn! Frá Taflfélagi Seltjarnarness Firmakeppni TS í hraðskák lauk 17.9. og tóku 73 fyrirtæki þátt. Þeim var skipt í 3 riðla og komust 5 úr hverjum riðli í úrslit: 1. Hlaðbær (Jón Úlfljótsson) 11 1/2 af 15. 2. Ríkisspítalar (Sævar Bjarnason) 11 v. 3. Verkamannabústaðir (Jón Þor- steinsson) 10 v. 4. Kjörsmíði (Ögmundur Kristins- son)10 v. 5. Nesval (Páll L. Jónsson) 10 v. Hinu árlega Grohe-móti lauk 22.9. og voru keppendur 16. Úrslit urðu þessi: 1. Ögmundur Kristinsson 8 v. af 9 2. Hilmar Karlsson 8 v. (lægri á stigum) 3. Guðmundur Halldórsson 7 v. 4. Páll L. Jónsson 6 v. 5. ValdimarElíasson4 1/2v. o.s.frv. í hraðskákinni sigraði Guðmundur Halldórsson með 15 v. af 17 mögu- legum. Bridge- fréttir Bridgeklúbbur Akraness Aðalfundur Bridgeklúbbs Akraness var haldinn fimmtudaginn 17. septem- ber sl. í stjórn voru kosnir: formaður Eiríkur Jónsson, gjaldkeri Ba.ldur Ólafsson og ritari Bjarni Guðmunds- son. Fráfarandi stjórn voru þökkuð vel unnin störf sem voru venju fremur fjöl- breytt og unnin af miklum glæsibrag. Firmakeppni hófst síðan 24. septem- ber og var spilað tvö kvöld. Úrslit urðu sem hér segir: stia 1. Skagaradíó, spilari Jósef Fransson 113 2. *5. Skartgrípaverzl. Helga Júlíussonar, spilarí Björgvin Bjamason 109 Álmennar tryggingar, spilarí Guðjón Guðmundsson 109 Síldar- og fiskimjölsverksmiðjan hf., spilari Oliver Krístófersson 109 Stillholt, spilari Vigfús Sigurðsson 109 Meðalskor var 90 stig. Firmakeppnin var jafnframt ein- menningskeppni og urðu úrslit þessi: stig 1. Jósef Fransson 216 2. -3. Björgvin Bjarnason 206 Guðjón Guðmundsson 206 4.-5. Björgúlfur Einarsson 206 Vigfús Sigurðsson 204 Bridgefélag Breiðholts Staðan í hausttvímenningi félagsins eftir fyrsta kvöldið er þessi: slig 1. Rafn — Þorsteinn 269 2. Tryggvi — GuðlaugurN. 265 3. Guðjón — Ingólfur 249 4. Þórarínn — GuðlaugurG. 235 5. Stefán — Guðmundur 234 Næstkomandi þriðjudag verður keppni haldið áfram í húsi Kjöts og fisks, Seljabraut 54, kl. 7.30 stundvís- lega. Bridgefélög Hreyfils, Bæjarleiða og BSR Félögin hófu vetrarstarf sitt mánu- daginn 5. okt. sl. með fimm kvölda tví- menningskeppni. Spilað er í samkomu- sal Hreyfils að Fellsmúla 24—26. Tíu efstu pörin urðu sem hér segir: stig 1. Flosi Ólafsson, Sveinbjörn Krístinsson 134 2. Gunnar Oddsson, Tómas Sigurðsson 133 3. -4. Anton Guðjónsson, Stefán Guðjónsson 126 3.-4. Hallgr. Antonsson, Guðm. Hafsteinsson 126 126 5. Jón Sigurðsson, Vilhjálmur Guðmundsson 122 6. -10. Guðm. Agnarsson, Gísli Sigurtryggvas. 120 — Ellert Olafsson, Krístján Jóhannesson 120 — Skjöldur Eyfjörö, Jón Magnússon 120 — Reynir Haraldsson, Mikael Gabríelsson 120 — Guðni Skúlason, Haildór Magnússon 120 Meðalskor llOstig. Næsta umferð verður mánudaginn 12. okt. Bridgedeild Barð- strendingafélagsins Mánudaginn 28. september hófst tví- menningskeppni. Spilað er í tveim 12 para riðlum. Staðan eftir 2 umferðir: L Helgi — Málfríður stig 274 2. Sigurjón — Halldór 258 3. Vlggó — Jónas 251 4. Gróa — Valgerður 246 5. Viðar — Pétur 242 6. Ragnar — Eggert 226 7. Jón — Kristján 222 8. Ólafía —Jón . 220 Bridgefélag Reykjavíkur Önnur umferð í hausttvímenningi Bridgefélags Reykjavíkur var spiluð síðastliðinn miðvikudag. Þessi pör fengu hæsta skor: slig 1. Gestur Jónsson, Sverrir Krístinsson 207 2. -3. Jón Baldursson, Valur Sigurðsson 204 2.-3. Sævar Þorbjörnsson, Þorlákur Jónsson 204 4. Jón Ásbjörnsson, Símon Símonarson 193 5. Siguröur Sverrisson, Þorgeir Eyjólfsson 190 6. Guðl. R. Jóhannsson, Örn Arnþórsson 185 Röð efstu para eftir tvær umferðir er þessi: stig 1. Sævar Þorbiörnsson, Þorlákur Jónsson 396 2. -3. Gestur Jónsson, Sverrir Krístinsson 375 2.-3. Jón Baldursson, Valur Sigurðsson 375 4. Jónas P. Erlingsson, Þórir Sigursteinsson 365 5. Guðlaugur Jóhannsson, Örn Arnþórsson 359 6. Ásmundur Pálsson, Karl Sigurhjartarson 354 7. Gísli Hafliöason, Gylfi Báldursson 353 8. Sigurður Sverrisson, Þorgeir P. Eyjólfsson 348 9. Ágúst Helgasoh, Hannes Jónsson 346 10. Guðmundur Pétursson, Hörður Blöndal 344 11. Bjarni Sveinsson, Sigmundur Stefánsson 343 Þriðja umferð verður spiluð í Domus Medica nk. miðvikudag kl. 19.30 stundvíslega. Reykjanesmót Tvímenningskeppni Reykjanesmóts- ins lauk 3. okt. í efstu sætunum voru: stlg 1. Ragnar Magnússon-Sævar Björnsson 92 2. Árni Björnsson-Heimir Tryggvason 37 3. Jón Hilmarsson-Guðbrandur Sigurbergsson 34 4. Aðalst. Jörgensen-Ásgeir Ásgeirsson 33 Bridgefélag Kópavogs Eftir tvær umferðir af fimm i aðaltví- mennskeppninni er staða efstu para þessi: stig 1. Georg-Rúnar 261 2. Böður-Ragnar 253 3. Haukur-Valdimar 251 4. Gísli-Tryggvi 245 5. Aöalsteinn-Stefán 240 6. Bjarni-Guðmundur 237 7. Sverrir-Haukur 233 8. Jónatan-Þórir 214 Meðalskor 216stig Þriðja umferðin verður spiluð fimmtudaginn 15. okt. í Hamraborg 11 og hefst keppni kl. 20 stundvíslega. Bridgefélag V-Húnv Hvammstanga Vetrarstarf félagsins hófst 29 sept. með eins kvölds tvímenningi. 8 pör mættu til leiks og urðu úrslit þessi: slig 1. Eggert Karlsson-Sverrir Hjaltason 102 2. Eyjólfur Magnússon-Rúnar Ragnarsson 102 3. Flemming Jessen og Hrafnkell Óskarsson 87 4. Karl Sigurösson-Kristján Björnsson 87 Meðalskor 84 slig Hið árlega Guðmundarmót félagsins verður haldið laugardaginn 17. okt. og hefst kl. 13. — Spilaður verður baró- meter-tvimenningur, 23 umferðir, keppnisstjóri Guðmundur Sigurðsson. Boðið er til mólsins úr eftirlöldum bridgefélögum: Borgarnesi, Hólmavík, Blönduósi, Skagaströnd, Sauðárkróki, Fljótum og Siglufirði. Spilað verður um silfurstig. Einnig verða veitt verðlaun fyrir 3 el'slu sætin, gefin af Kaupfélagi V-Húnvetninga. Fyrirgreiðsla Leysum vörur úr tolli og banka með greiðslufresti. Lysthafendur leggi inn nöfn til Dagblaðsins fyrir 12. okt. merkt „Fyrirgreiðsla”. Til sölu BMW518 BMW320 BMW316 BMW320 BMW318 BMW318 BMW320 árg. 1980 árg. 1980 árg. 1980 árg. 1979 árg. 1978 árg. 1978 árg. 1977 Renault 20 TL Renault 18 TS Renault 12 TS Renault 14 TL Renault 14 TL Renault4 VAN F6 Renault4 VANF6 árg. 1978 árg. 1979 árg. 1978 árg. 1S79 árg. 1978 ár 1979 árg. 1978 Opiö laugardaga frá kl. 1—6.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.