Dagblaðið - 10.10.1981, Síða 23
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1981.
23
Sjónvarp
P
BARYSHNIKOV A BROADWAY - sjónvarp í kvSld kl. 21:
Sýnishom úr amerískum söngleikjum
Sjónvarpið sýnir í kvöld þátt með
sýnishornum úr bandarískum söng-
leikjum, eins og Oklahoma, The King
and I, Kiss me, Kate og Hello Dolly,
svo nokkrir séu nefndir.
Þátturinn er þannig uppbyggður
að Liza Minelli tekur dansarann
Baryshnikov frá Sovétrikjunum við
hönd sér og leiðir hann um Broad-
way, New York.
Baryshnikov er fæddur í Riga í
Lettlandi 1948 og stundaði strangt
ballettnám í Leningrad. Árið 1974,
þegar Bolshoiballettinn var á
sýningarferð um Norður-Ameríku,
baðst hann landvistarleyfis þar og
hefur síðan starfað í Bandaríkjunum.
Liza Minelli sýnir honum sem sagt
giansnúmer úr amerískum söngleikj-
um fyrr og síðar og öðru hvoru taka
þau þátt í skrautsýningunum með
söng og dansi.
Þessi þáttur hefur fengið ýmis
verðlaun. -IHH.
ÍSLENZK FRÆÐI í FLÓRENS — útvarp sunnudagsmorgun kl. 10,25:
Goðaveldi á Þingyöllum
og stjórnskipun í Flórens
—athuganir Einars Pálssonar
„f maí 1980 var ég í Flórens,”
sagði Einar Pálsson, ,,og fékk aðstoð
tveggja prófessora við háskólann þar
til að bera saman mörkun Alþingis á
Þingvöllum árið 930 og mörkun
borgríkja á miðöldum á Ítalíu. Mig
langaði að vita hvort sömu hug-
myndir hefðu legið þarna að baki. Ég
setti fram 24 tilgátur um þetta efni og
bar þær undir helztu hugmyndafræð-
inga í Flórens.
Ég komst að þeirri niðurstöðu að
nákvæmlega sömu þættir og hug-
myndafræði hefðu legið að baki
stofnunar goðaveldis á Þingvöllum
um 930 annars vegar og stjórnskip-
unar Flórens á miðöldum hins
vegar.”
Einar Pálsson hefur ritað bók á
ensku um ofangreindar rannsóknir
og nefnist hún „The Dome of
Heaven” (Hvolfþak himins) og kom
út siðastliðið vor. -IHH.
Einar Pálsson hefur skapað sitt eigið kenningakerfi unt heimspekilegar forsendur
islenzkrar menningar.
Rússneski dansarinn Baryshnikov og Liza Minelli eru eins konar leiðsögumenn i
þessum þætti sem sýnir stuttar glefsur úr mörgum Broadway-söngleikjum.
13.40 Líf og saga. Þættir um inn-
ienda og erlenda merkismenn og
samtíð þeirra. 8. þáttur: Snorri á
Húsafelli. Handritsgerð: Böðvar
Guðmundsson. Stjórnandi upp-
töku: Baldvin Halldórsson . Flytj-
endur: Hjalti Rögnvaidsson,
Gunnar Eyjóifsson, Rúrik
Haraldsson, Jón Júlíusson, Þóra
Friðriksdóttir, Árni Blandon,
Auður Guðmundsdóttir, Jónina
H. Jónsðóttir, Edda Björgvins-
dóttir og Böðvar Guðmundsson.
15.00 Miödegistónleikar. Hljómsveit
Hans Carstes leikur ýmis vinsæl
lög.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Staldraö við á Klaustri — 6. og
siðasti þáttur Jónasar Jónas-
sonar endurtekinn frá kvöldinu
áöur.
17.10 Á ferð. Óli H. Þórðarson
spjallar við vegfarendur.
17.15 Kórsöngur. Hamrahlíðar-
kórinn syngur íslensk og erlcnd
lög; Þorgerður Ingólfsdóttir stj.
17.35 „Skip hans hátignar, Baldur".
Finnbogi Hermannsson ræðir í
síðara sinn við Jón Magnússon frá
Sæborg í Aðalvík um viðskipti
hans við breska hernámsliðið
vestra.
18.05 Joe Loss og hljómsveit leika
létt lög. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 Um atburði í Póllandi í októ-
ber 1956. Dr. Arnór Hannibalsson
flytursíðara erindi sitt.
20.00 Harmonikuþáttur. Bjarni
Marteinsson kynnir.
Raddir fralsiaina, fyrsti þáttur. —
Hár verður Hannea H. Gissurarson
á ferð kl. 20.30 á sunnudagskvöld.
20.30 Raddir frelsisins — fyrsti
þáttur. Umsjónarmaður: Hannes
H. Gissurarson. Lesari Steinþór
A. Als.
21.00 Mannabörn eru merkileg”.
Steinunn Jóhannesdóttir les ljóð
ef'tir Halldór Laxness.
21.15 David Oislrakh leikur á fiðlu.
21.35 Að tafli. Guðmundur Arn-
laugsson flytur fyrri þátt sinn um
Bronstein.
22.00 Þorvaldur Halldórsson syngur
sjómannalög með hljómsveit Ingi-
mars Eydals.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 „Örlagabrot" eftir Ara
Arnalds. Einar Laxness les (9).
23.00 Danslög.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Laugardagur
10. október
17.00 íþróttir. Umsjón: Bjarni Felix-
son.
18.30 Kreppuárin. Sjötti þáttur.
Þetta er síðasti þátturinn frá
sænska sjónvarpinu um Kreppuna
og börnin. Næstu þættir veröa frá
danska sjónvarpinu. Þýðandi:
Jóhanna Jóhannsdóttir. Þulur:
Anna Hinriksdóttir. (Nordvision
— Sænska sjónvarpiö).
19.00 Enska knattspyrnan. Umsjón:
Bjarni Feiixson.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Ættarsetrið. Nýr flokkur.
Breskur gamanmyndaflokkur i sjö
þáttum um lafði fforbes-Hamil-
ton, yfirstéttarfrú af guös náð. I
fyrsta þætti verður lafðin lukkuleg
ekkja, en missir ættarsetrið í hend-
urnar á nýríkum ættleysingja, sem
er af útlendum uppruna í þokka-
bót. Meö aðalhlutverk fara Pene-
lope Keith sem Audrey fforbes-
Hamilton og Peter Bowles sem
Richard DeVere. Þýðandi: Guðni
Kolbeinsson.
21.00 Baryshnikov á Broadway.
Skemmtiþáttur með ballettdansar-
anum Baryshnikov og söngkonun-
um og leikurunum Nell Carter og
Lizu Minelli. í þættinum dansar
Baryshnikov við tónlist úr frægum
Broadway-söngleikjum, ásamt
Lizu Minelli. Baryshnikov er
Sovétmaður, sem flýði til Vestur-
landa áriö 1974. Honum hefur
verið lýst sem besta ballettdansara
klassiskra verka í heiminum, en i
þessum þætti bregður hann af al-
faraleið kiassiskra ballettdansara.
Þátturinn hlaut Emmy-verðlaunin
i Bandaríkjunum í fyrra og
Gullrósina í Montreux í ár. Þýð-
andi: ÞrándurThoroddsen.
21.50 Spítalasaga. (Hospital).
Bandarísk gamanmynd frá 1971.
Leikstjóri: Anhur Hiller. Aðal-
hlutverk: George C. Scott, Diana
Rigg og Barnard Hughes. Myndin
fjallar um spitalalíf á gamansaman
hátt. George C. Scott leikur yfir-
lækninn á spitalanum og hann er
jafnruglaður og aðrir daginn sem allt
fer úr böndunum. Þýðandi: Guðrún
Jörundsdóttir.
23.25 Dagskrárlok.
Sunnudagur
11.október
18.00 Sunnudagshugvekja. Séra Jón
Einarsson, sóknarprestur i Saurbæ
á Hvalfjarðarströnd, flytur.
18.10 Barbapabbi. Tveir þættir.
Þýðandi: Ragna Ragnars. Sögu-
maður: Guðni Kolbeinsson.
18.20 Humpty Dumpty. Bandarisk
teiknimynd fyrir börn. Þýðandi:
Ellert Sigurbjörnsson.
18.50 Fólk að leik. Þriðji' þáttur.
Myndaflokkur frá ýmsum þjóð-
löndum um tómstundir og íþrótta-
iðkanir. Þessi mynd er frá Guate-
mala. Þýðandi: Olöf Pétursdóttir.
Þulur: Guðni Kolbeinsson.
19.20 Karpov gegn Kortsnoj. Skák-
skýringarþáttur. Þessir þættir
verða á dagskrá á meðan heims-
meistaraeinvigi í skák stendur yfir.
19.40 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 SJónvarp næstu viku.
20.50 Tónlistarmaður mánaðarins.
Garðar Cortes, söngvari. Egill
Friðleifsson kynnir Garðar og
ræðir við hann.
21.30 Myndsjá. Nýr flokkur.
(Moviola). Fyrsti þáttur af þremur.
Bandarískar myndir um Holly-
wood-stjörnurnar Gretu Garbo og
Marilyn Monroe. Einnig er fjallað
um baráttuna um hlutverk Scarletl
O’Hara i „Gone With the Wind”.
Þöglu elskendurnir heitir fyrsta
myndin um Gretu Garbo, leið
hennar til frægð.ir og ástarævin-
týri hennar og John Gilberts. Leik-
stjóri: John Erntan. Greta Garbo:
Kristina Wayborn. John Gilbert:
Barry Bostwick. Þýðandi: Dóra
Hafsteinsdóttir.
23.05 Dagskrárlok.
^LI0AR€NDl
Klassískt
tónlistarkvöld
sunnudagskvöld 11. okt.
með Pétri Jónassyni.
Gítarleikur Péturs hefst
kl. 21.30, aðeins fyrir matargesti.
Borðapantanir frá kl. 2 í síma 11690.
Opið frá kl. 18.
Inngangur:
Restaurant
HORNIÐ
Hafnarstræti 15.