Dagblaðið - 23.10.1981, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 23.10.1981, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1981 Verðlagsmálin: Lagasaf n hækkaði um 1000% á viku — „ílandi þar sem verðstöðvun er í gildi” Laganemi skrifar: Undanfarna daga hef ég staðið í miklum hlaupum tii þess að ná i islenzkt lagasafn sem ég þarf nauðsynlegt á að halda vegna náms míns. Lagasafnið fékkst ekki i Bóksölu stúdenta, en hjá bókaverzlun Lárusar Blöndal fékk ég þær upplýsingar að þeir hefðu fengið 10 „sett” sem kostuðu kr. 98,80 og seldust upp á einum degi og að dómsmála- ráðuneytið hefði ekki fengizt til þess að afhenda fleiri. Ég lallaði mér niður í ráðuneyti til þess að kanna hverju þetta sætti. Þar var mér tjáð að einhver ónafngreindur yfirmaður væri staddur erlendis og enginn gæti veitt leyfi til þess að afhenda fleiri „sett” fyrr en hann kæmi aftur, Ástæöan var sögð vera sú, að verið væri að íhuga að gefa 'út nýtt lagasafn, þar sem hið gamla er frá 1973. f dag, réttri viku eftir að 10 „settin” seldust upp hjá Blöndal, komu önnur 10 frá 1973, en nú kosta þau ekki kr. 98,80, heldur kr. 1.112,00. Hér er um meira en 1100% hækkun aðræða. Mér er spum: Er forsvaranlegt að slíkar hækkanir eigi sér stað i landi þar sem veröstöðvun er í gildi? Það skal tekið fram að laganemar njóta afsláttar frá áöurgreindu verði í Bóksölu stúdenta var mér tjáð að í dag væri verðið til stúdenta kr. 550 fyrir hvert „sett”. Einnig að Bóksalan hefði fengið 50 „sett”, en væru þau siðustu, sem seld yrðu af þessu gamla safni, þar eð nýtt væri i bigerð. Trúlega verður slegizt um þessi 50 „sett”, því fjöldi laganema á 1. ári skagar hátt upp i 9. tuginn. Rótt verð er kr. 988,00 Dagblaðið spurði Ólaf Walter Stefánsson, skrifstofustjóra í dóms- málaráöuneytinu, hvað ylli þessari miklu og skyndilegu hækkun á laga- safninu. „Það var ákveðið að hækka verðið á þvi litla magni, sem eftir er, m.a. vegna þess að töluverð bókbandshækkun átti sér stað á eftir- stöðvum upplags sem óbundið var. Rétt verð úr búð er kr. 988,00. Hin fjárhæðin mun vera byggð á mis- skilningi,” sagði Ólafur Walter. s -FG. Lagasafnið, sem hskkaðl úr Itr. 98,80 i kr. 1.112,00 á einni viku, átti aðhœkka 1988,00. DB-mynd: Kristján öm. Upp með diskóið og rokkið Reiður hluslandi skrifar: Mig langar til þess að koma smá- skömmum á framfæri. Ég sendi kveðjur í Lög unga fólksins og það eru þrjár vikur síðan ég sendi þær. Kveðjurnar hala ekk'. veriðlesnar ennþá. Ég hlusta alltaf á þennan þátt, sem er á mánudagskvöldum kl. 20. Mér finnst hart að fá ekki mína kveðju lesna, því ég hef oft sent kveðjur með þessu lagi, en svo eru allar mögulegar skrípakveðjur lesnar. Flestum þeirra finnst mér að ekki 'ætti að útvarpa, svo ekki sé nú minnzt á sumar þær hljómsveitir, sem þarna koma fram, og eru algjörir vitleysingar, svo ekki sé nú talað um lögin eftir þessa apaketti. Upp með diskóið og rokkið og niður með pönkið og nútíma jazz. Ég heyrði stjórnanda þáttarins segja, að maður ætti bara að skrifa aftur, ef'kveðjurnar. væru ekki lesnar. En maður getur ekki endalaust skrifað og skrifað kveðjur, sem aldrei eru lesnar, því það er bara frímerkjaeyðsla. 70—100 bróf berast fyrir hvern þátt „Það berast svona 70—100 bréf fyrir hvern þátt,” sagði Hildur Eiríksdóttir, stjórnandi Laga unga fólksins, „og það er ógerningur að taka nema lítinn hluta þeirra i hvert skipti. Hinum er hent. Ef fólk hefur skrifaö áður, verður það að taka það greinilega fram og hvenær. Viðvíkjandi lagavalinu, þá reyni ég að gera öllum jafnhátt undir höfði,” sagði Hildur. _fb. !^P"9,HNlll'*^■?i«, Jón Jakobsson telur störf húsmóður vera illilega vanmetin og þurfl afl bæta úr þvi hið bráðasta. DB-mynd: Hörflur. r „BARA HUSM0DIR” —er það matið, þegar a reynir? Jón Jakobsson hringdi: Ég hef stundum hneykslazt á þvi, þegar kona segist bara „vera húsmóðir”. Þá bar svo við að konan mín veiktist alvarlega og þurfti að liggja rúman mánuð á spítala. Siðan er talið að hún þurfi að vera frá vinnu eina 6—8 mánuði. Fyrir tilviljun frétti ég að hún ætti rétt á sjúkradagpeningum, bar það undir heimilislækninn minn sem sagði það rétt vera og skrifaði hann vottorð. í því sambandi vil ég geta þess að konan min lá á Land- spítalanum en þar var henni alls ekki bent á þetta, né senda þeir nein vottorð. Ég fór niður á Sjúkrasamlag með veikindavottorðiö. Þar var ég spurður hvort konan mín ynni úti og sagði ég hana ekki gera það. Þá sagði maðurinn: „Nú, er hún bara húsmóðir? Þá fær hún bara 1/4 sem eru kr. 20ádag meðeinu bami.” Mér finnst nauðsyn bera til þess að vekja athygli á þessu vanmati á störfum húsmóður og held ég að Jafnréttisráð, kvennasamtök og Alþingi ættu að gera hér bragarbót. Flugmálin: „ER FRJALS SAMKEPPNISIÐLEYSI?” —spyr stuðningsmaður Arnarf lugs f iRsWua M6U4/J! r-j ...........gtll....... Q £*>. „nífl V mmI rír'WífW ‘) „Það myndl á engan hátt draga úr verkefnum meðlima verkalýðsfélaga á Suðurnesjum, þótt Arnarflug fengi fastar áætlunar- lelðir,” segir áhugasamur. - Áhugasamur skrifar: Það virðist ætla að bögglast fyrir brjóstinu á stjórn Flugleiða, en ekki sízt forstjóra þeirra, sem einnig á sæti í stjórn Arnarflugs, að al- menningur í þessu landi er mjög hlynntur þvi, að Arnarflug fái sömu réttindi til farþegafiugs og Flugleiðir. Stjórn Flugleiða lætur öllum illum látum og forstjóri Flugleiða boðar til fundar með flugliðum tii þess að gera þeim grein fyrir því, að fái Arnarflug leyfi til áætlunarflugs muni þurfa að segja upp umtalsverðum hópi flugliða. Sennilega hefur tilgangurinn verið sá, að fá flugliða, einkum flugmenn til - skipulagðs andófs gegn samgönguráðherra, svo að hann sæi sér ekki annað fært en snúast á móti leyfum til Arnarflugs. Þetta hefur þó ekki tekizt að fullu, a.m.k. hefur FÍ'A, félag ísl. atvinnuflugmanna, ekki Ijáð nafn sitt til undirritunar fyrir þeim fundi, sem Starfsmannafélag Flugldða er knúiö til þess að halda og fá í lið með sér önnur félög, til þess að reyna að kné- setja samgönguráðherra, fimmtudags- kvöldið 8. þ.m. í salarkynnum Hótels Loftleiða. Er það mál manna, er voru á þessum fundi, aö samgönguráðherra haft farið með pálmann i höndunum af þessum fundi, þrátt fyrir tilraunir örfárra óttasleginna starfsmanna undir forystu starfsmannastjórans nýja, til þess að lýsa siðleysi og svikum vegna þeirra skoðana ráöherra og flestra landsmanna aö samkeppni i flugi sé jafnnauösynleg og i hverri annarri grein verzlunar og viðskipta i landinu. Einkennileg er afstaða þeirra Alþýöuflokksforsprakka, sem töldu rétt að leggja til atlögu gegn Arnar- flugs-framgangi á fundi þessum. Á Alþingi þvl er um Flugleiðamálið fjallaði sl. vetur voru þingmenn Álþ.flokks hvaö harðsnúnastir gegn Flugleiðum og töldu nauösynlegt að víkja stjórn Flugleiða frá og lögbinda þau skilyrði, sem sett voru fyrir fjár- hagsaðstoð til félagsins. Harðsnúnastir voru þeir Kjartan for- maður, Eiður alþingismaður og Karl Steinar, formaður Verkamannafélags Suðurnesja. Fimmtudaginn 8. október sl. voru þeir tveir síðastnefndu orðnir stuðningsmenn Flugleiða í þvi að hindra Arnarflug í að fá flugleyfi til áætlunarferða til nokkurra staða í Mið-Evrópu! Það myndi á engan hátt draga úr verkefnum meðlima verkalýðsfélaga á Suðurnesjum, þótt Arnarflug fengi fastar áætlunarleiðir. Ekki myndi ferðatöskum farþega fækka við þá ráðstöfun, né afgreiðslu- eða þjónustu við það flug á Keflavíkur- flugvelli. Og sannleikurinn er auðvitað sá, að Flugleiðir missa engan spón úr sínum aski, með tilkomu Arnarflugs, og þar af leiðandi eru rök fyrir uppsögnum starfsfólks Flugleiða með tilkomu þess fiugs ekki marktækar. En hver er þáttur og tilgangur forstjóra Flugleiða og stjómarmanns i Amarflugi i aðför að Arnarflugi? Svar blaðaf ulltrúa Flugleiða Bréf þetta var lesið fyrir Svein Sæmundsson, blaðafulltrúa Flugleiða, sem sagöl: „Eftir að hafa heyrt þetta bréf, bið ég kærlega að heilsa Geir Andersen.”

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.