Dagblaðið - 23.10.1981, Qupperneq 9

Dagblaðið - 23.10.1981, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1981 (§ 7 3 Erlent Erlent Erlent Erlent Breytingar á Kabúlstjórn Mohammed Yusif Farand, fyrrum háttsettur embættismaður í Kabui- stjórninni íAfganistan, sem nýlega flúði til Pakistan, segir að pólitískt, efna- hagslegt og stjórnsýslukerfi landsins sé að hruni komið. Hann segir ennfremur að sterkur orðrómur sé nú á kreiki í Kabul um fyrirhugaðar breytingar á stjórninni. Samkvæmt honum verður Babarak Karmal brátt vikið frá völdum, en annar tryggur fylgismaður kommúnista látinn taka við. Farand segir að stjórnin sé alveg hætt að innheimta tekjuskatt og að aðeins einni tegund iðnaðar sé sinnt í landinu: Útflutningi á jarðgasi til Sovétríkjanna. Farand var fyrir flótta sinn ráðgjafí í viðskiptamálaráðuneyt- Snuðaðir í mannaskiptum Vestur-Þjóðverjar virðast hafa látið Austur-Þjóðverja snuða sig í sambandi við skipti á njósnurum á milli landanna. Austur-þýzk yfirvöld hafa aðeins látið 9 njósnara og pólitíska fanga lausa af þeim 34 sem V-Þjóðverjum bar að fá í skiptum fyrir súpernjósnarann Gúnter Guillaume ásamt þremur öðrum a-þýzkum njósnurum, hand- teknum í V-Þýzkalandi. Peningafölsun ístórumstfl íDanmörku Tveir menn hafa nú setið inni í Dan- mörku í tæpt ár vegna fölsunar á pen- ingum í stórum stil. Eru þeir álitnir fé- lagar í glæpahring sem stendur að baki framleiðslu á fölskum dollaraseðlum að andvirði 30 milljónir nkr. Sá þriðji siturífangelsiáTenerife á Kanaríeyj- um. Hann er 31 árs gamall og var hand- tekinn í nóvember í fyrra. Spænska lögreglan fann 700.000 falska dollara um borð í bát sem hann átti. Allir eru mennirnir danskir og vonast yfirvöld Danmerkur eftir að fá fangann á Kan- aríeyjum framseldan. Réttarhöld hafa farið fram yfir þeim í Svendborg fyrir lokuðum dyrum og eru yfirvöld mjög treg til að gefa upplýsingar um málið. Lögreglan komst á snoðir um pen- ingafölsunina í sambandi við eiturlyfja- mál í Svendborg. Hún fann fleiri milljónir af fölskum dollurum undir gólffjölum i húsi einu í nágrenni Kaupmannahafnar. Ríkissak- sóknarinn á Sjálandi vill þó ekki skýra frá nákvæmri upphæð. Mennirnir þrír höfðu útvegað sér pappírinn erlendis en seðlarnir voru framleiddir í Kaupmannahöfn. Lögreglan álítur að mönnunum hafi ekki tekizt að koma seðlunum, sem voru að upphæð 100 dollarar, í um- ferð. Rannsóknarlögreglan gerði því tilraun til að skipta peningunum í bönkum og tókst það án þess að nokkr- ar grunsemdir vöknuðu hjá starfsfólk- Erlendar fréttir REUTER D 13 mánudum eftir valdatöku herforingjastjómar í Tyrklandi: Herforingjastjómin myndar ráðgjafarþing — stjómmálaf lokkamir bannaðir og stjómarandstæðingar lögsóttir Tyrkneska herforingjastjórnin sem setið hefur að völdum i þrettán mán- uði, hefur nú ákveðið að endurreisa þing í stað þess sem leyst var upp við valdatöku hennar. Herforingja- stjórnin mun þó sjálf velja þingmenn til setu á þinginu og það verður aðeins ráðgefandi en ekki löggjafar- þing. Þingið mun hefja störf í dag og til setu á því hefur herforingjastjórn- in einkum valið sérfræðinga og emb- ættismenn sína og hermenn sem hættirerustörfum. Talsmenn herforingjastjórnarinnar hafa sagt að þingið sé upphafið að Evren hershöfðingi, forsætisráðherra herforingjastjórnarinnar. þeirri viðleitni að koma aftur á lýð- ræði í landinu. En trú vestrænna bandamanna tyrknesku stjórnarinnar á iýðræðisþróunina í landinu mun þó byggjast fremur á framvindu tveggja annarra þátta en stofnun hins 160 manna ráðgjafarþings. Þessir þættir eru annars vegar sú ákvörðun her- foringjastjórnarinnar að banna starf- semi allra stjórnmálaflokka í landinu í síðustu viku og hins vegar að láta sækja Bulent Ecevit fyrrum forsætis- ráðherra til saka fyrir herdómstóli fyrir gagnrýni á stjórnarfarið í land- inu. Þessa þætti munu vestrænir bandamenn Tyrkja taka til greina þegar þeir meta störf þingsins, en því er ætlað að gera tillögur að nýrri stjórnarskrá og nýjum kosninga- lögum. Evren hershöfðingi, forsætisráð- herra herforingjastjórnarinnar, þykir hafa sýnt æ meira_tómlæti um hvaða álit bandamenn hans í Atlantshafs- bandalaginu hafa á stjórn hans. Hann hefur sagt að hann liti á alla gagnrýni og þrýsting erlendis frá sem afskipti af innanríkismálum Tyrk- lands. Ef erlend ríki reyna að þvinga fram breytingar á stjórnarfarinu, segir hann, munum við segja þeim að halda efnahagsaðstoð sinni fyrir sjálfa sig og að við munum bjargast af eigin rammleik. Tyrkland hefur þegið milljarða dollara í efnahagsað- stoðáári hverju. Herforingjastjórnin bannaði í síðustu viku starfsemi allra 18 stjórn- málaflokka í landinu. Talsmenn stjórnarinnar sögðu að það væri einn liður i því að koma á lýðræði í land- inu, þar sem stjórnmálaflokkarnir hefðu kynt undir deilur og ofbeldi svo minnstu munaði að til borgara- styrjaldar kæmi í landinu. Evren hershöfðingi sagði, er hann tilkynnti þessa ákvörðun, að leiðtogar flokk- anna settu eigin hagsmuni framar þjóðarhagsmunum. Bulent Ecevit, sem kemur fyrir herrétt innan skamms, var leiðtogi Sósialdemó- krataflokksins og eini stjórnmála- maðurinn sem haldið hefur uppi gagnrýni á herforingjastjórnina. Ecevit fyrrum forsætisráðherra. Sóttur til saka fyrir stjórnarand- stöðu. O Laugardag og sunnudag. Kanadísku framtíðar tímburhúsin Sýning fyrir almenning verður á laugardag og sunnudag ki. 2—5 á fullbyggðu kanadísku timburhúsi að Reykjabyggð7 Mosfe/lssvert ■— — (sjá kort)—^ Framtíðarhús Temp/arasundi 3, símar 11614 og 11616

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.