Dagblaðið - 23.10.1981, Page 14
22
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1981
Veðríð
Gert er ráð fyrir suðvestanátt um j
allt land, skúrum, á Vesturlandi, þurru
á Norðausturiandi.
Kl. 6 var í Reykjavflc suðvastan 2,'
skýjað og 3, Gufuskálar suðvestan 4, í
skýjað og 3, Galtarviti suðvastan 1,
skýjað og 5, Akgreyrl sunnan 2.
skýjað og 5, Raufarhöfn, hœgviðri, |
skýjað og 2, Daiatangi hœgviðri, súld
og 6, Höfn norðangola, skýjað og 3,
Stórhöfði suðvestan 4, láttskýjað og
í Þórshöfn var súid og 9,
Kaupmannahöfn þokumóða og 5,
Osló hoiðskírt og -4, Stokkhólmi
skýjað og 2, London láttskýjað og 6,
Hamborg þokumóða og —1, París |
rigning og 3, Madrid heiðskfrt og 1,
Lissabon heiðskirt og 7, New York
skýjaðog 19.
Andlát
............. .^
Krístinn Helgason, Jórufelli 6, lézt 13.
október 1981. Hann var fæddur 15.
desember 1958, sonur hjónanna Birthe
Petersen og Helga Kristinssonar. Var
Kristinn næstelztur fimm systkina.
Hann var við nám í bifvélavirkjun hjá
Ræsi hf. Kristinn verður jarðsettur í
dag frá Fossvogskirkju kl. 14.
Sumarliði Krístjánsson, Laugalæk 17,
lézt 16. október 1981. Hann var fædd-
ur 9. október 1913 að Fremri-Hunda-
dal i Dalasýslu. Foreldrar hans voru
Ágústína ögmundsdóttir og Kristján
Nikulásson, eignuðust þau þrjú börn.
Hann var kvæntur Þorbjörgu Einars-
dóttur, eignuðust þau 5 börn. Sumar-
liði starfaði hjá Steiniðjunni um árabil,
síðan hóf hann störf hjá Vegagerð
ríkisins og starfaði þar til dauðadags.
Benedikt Benediktsson, Skólagötu 8,
ísafirði, verður jarðsunginn frá ísa-
fjarðarkirkju laugardaginn 24. október
kl. 14.00.
Krístinn Jónsson, fyrrverandi fiski-
matsmaður, frá Brekku, Grindavík,
verður jarðsunginn frá Grindavíkur-
kirkju laugardaginn 24. október kl. 14.
Sólborg Guðríður Bogadóttir, fyrrv.
yfirhjúkrunarkona, sem lézt föstudag-
inn 16. okt. verður jarðsungin í Akra-
neskirkju laugardaginn 24. okt. kl.
14.15.
Sölvi Kristján Sigurgeirsson, Ásbraut 6
Keflavik, er lézt að Elliheimilinu Grund
11. þ.m. verður jarðsunginn frá
Keflavíkurkirkju laugardaginn 24.
þ.m. kl. 14.
Fundarherferð BSRB
Neskaupstaður
fimmtudagur 22. okt. kl. 21. Egilsbúð.
Reyflarfjörflur
Föstudagur 23. okt. kl. 17. Grunnskólinn.
Seyflisfjörflur
Laugardagur 24. okt. kl. 14. Barnaskólinn.
Egilsstaflir
Sunnudagur 25. okt. kl. 14. Egilsstaðaskóli.
Hvammstangi
Föstudagur 23. okt. kl. 17. Grunnskólinn.
Blönduós
Föstudagur 23. okt. kl. 21. Grunnskólinn.
Sauflárkrókur
Laugardagur 24. okt. kl. 16. Safnahúsið.
Ólafsvik
Laugardagur 24. okt. kl. 13. Grunnskólinn.
Stykkishólmur.
Laugardagur 24. okt. kl. 17. Barnaskólinn.
Borgarnes
Sunnudagur 25. okt. kl. 14. Grunnskólinn.
Siglufjörflur
Sunnudagur 25. okt. kl. 14.00. Hótel Höfn.
Kvenfólagi
Bústaðasóknar
er boöið á fund til Kvenfélags Garðabæjar bnðju-
daginn 3. nóvember nk. Vinsamlegast tilkynniö
þátttöku fyrir 24. október í síma 36212 hjá Dagmar
eða 33675 hjáStellu.
Ársfundur Hafnasambands
sveitarfélaga
í vikunni
Tólfti ársfundur Hafnasambands sveitarfélaga
verður haldinn i Reykjavik og á Akranesi í dag og á,
morgun, laugardag. Formaður sambandsins,
Gunnar B. Guðmundsson, hafnarstjóri í Reykjavík
setur fundinn á Hótel Sögu kl. 9.00 árdegis, en síðan
fiytur Steingrímur Hermannsson,
samgönguráðherra ávarp. Síðar um daginn flytja
framsöguerindi Aðalsteinn Júlíusson, hafnamála-
stjóri, sem talar um fjögurra ára áætlun um hafnar-
gerðir, Ólafur Steinar Valdimarsson, skrif-
stofustjóri í samgönguráðuneytinu, sem fjallar um
endurskoðun hafnalaga, og Gylfi ísaksson,
verkfræðingur, sem ræðir fjárhagsstöðu og gjald-
skrár hafna.
Fundarstörf síðari daginn fara fram á Akranesi
og um borð í m/s Akraborg. Þar fiytja
framsöguerindi Gísli Viggósson, deildar-
verkfræðingur, er talar um hönnun grjótgarða, og
Njörður Tryggvason, verkfræðingur, sem skýrir frá
byggingu hafnargarðsins á Akranesi. Magnús
Oddsson, bæjarstjóri á Akranesi, mun á fundinum
þar fiytja framsöguerindi um hafnamál á Akranesi,
hafnarmannvirkin verða skcðuð og sýnd kvikmynd
af þeim. Á heimleið frá Akranesi munu fundarmenn
skoða hafnarmannvirki á Grundartanga og járn-
blendiverksmiðjuna þar.
í Hafnasambandi sveitarfélaga eru 58 hafnir.
.......^
Æfingatafla körfudeildar
Fram veturinn 1981—1982
Meistaraflokkur
mánudagar 19.40—21.20 Álftamýrarskóli
fimmtudagar 18.00—19.40 Hliöaskóli
föstudagar 20.30—21.45 Hagaskóli
I. flokkur
mánudagar 21.20—23.00 Vörðuskóli.
II. flokkur
mánudagar 22.10—23.00 Álftamýrarskóli
þriðjudagar 21.45 —23.00 Hagaskóli
miðvikudagar 22.00—23.00 Vörðuskóli
III. flokkur
mánudagar 21.20—22.10 Álftamýrarskóli
þriðjudagar 21.45—23.00 Hagaskóli
miðvikudagar 21.00—22.00 Vörðuskóli
IV. flokkur
sunnudagar 17.10—18.50 Álftamýrarskóli
miövikudagar 20.10—21.00 Vörðuskóli
V. flokkur
sunnudagar 16.20—17.10. Álftamýrarskóli
þriðjudagar 20.05—21.20 Laugarnesskóli
Minni-bolti
þriðjudagar 18.50—20.05 Laugarnesskóli
Athugasemd frá Islenzka Álfélaginu hf
Hringt til Raf magns-
eftirlitsins er vinna
hófst þar á mánudag
Á þriðjudag birtist á forsíðu Dag-
blaðsins frétt um atvik í kerskála í
Straumsvík á mánudagsmorguninn (í
blaðinu segir sunnudagsmorgun), er
tveir menn fengu í sig rafstraum. Sem
betur fer leiddi þetta ekki til slyss á
mönnunum.
í fréttinni kemur fram sú alvarlega
ásökun á stjórnendur hjá ÍSAL að at-
vikið hafi hvorki verið tilkynnt Vinnu-
eftirliti né Rafmagnseftirliti ríkisins.
Hið rétta er, að hringt var i Rafmagns-
eftirlit ríkisins strax og vinna hófst þar
á mánudagsmorgun. Samband náðist
þá ekki við tengilið stofnunarinnar við
ÍSAL og skilaboð virðist hann ekki
hafa fengið, en starfsmaður ÍSAL náði
loks sambandi við hann á þriðjudags-
morgun. Jafnframt hófst strax á mánu-
dagsmorgun könnun innan fyrirtækis-
ins á því hvað hefði valdið því að
mennirnir fengu í sig rafstrauminn.
Ráðstafanir hafa nú verið gerðar til að'
útiloka algjörlega að slikur atburður
geti endurtekið sig, jafnvel þótt fyllstu
aðgæzlu sé ekki gætt.
Að endingu viljum við láta koma
fram að maðurinn sem fyrir aðal-
straumnum varð þurfti ekki að fara úr
vinnu.
MITTÁMILLI-VETTV ANGUR
Dagskrá útvarpsins í gærkvöldi
fór að mestu leyti undir stefnuræðu
Gunnars Thoroddsen for-
sætisráðherra og umræðum um hana
á eftir. Þeim skoðanaskiptum eru
gerð skil annars staðar í blaðinu í
dag. Þá er í rauninni ekki annað eftir
en að fetta fingur út í Daglegt mál,
Vettvangur og Kvöldtónleikar frá
tónlistarhátíðinni í Schwetzingen
síðastliðiðvor.
mr
I
GÆRKVÖLDI
Vettvangur Sigmars með aðstoð
Arnþrúðar var ósköp svona mitt á
milli í gærkvöld. Sigrún Björnsdóttir
hrósaði kabarettréviu Breiðholtsieik-
hússins, bæjarstjóri Hafnarfjarðar
hrósaði bænum sínum og í lokin . . .
æ, ég man bara ekki hvað kom í
lokin. Þar var fjallað eitthvað um
konur og þá lokast eyru mín því
miður sjálfkrafa núorðið. Við
karlfólkið erum nú orðnir slíku og
þvíliku misrétti beittir að ekki er
seinna vænna að snúa vörn í sókn.
Eitt man ég þó úr þessum síðasta
hluta Vettvangs. Arnþrúður Karls-
dóttir er orðinn mjög öruggur
spyrjandi. í upphafi var hún dálítið
óörugg, með hljóðnemaskrekk.
Hann hefur nú alveg horfið heyrist
mér. Arnþrúður hefur haft það að at-
vinnu árum saman að spyrja fólk
útúr, það er yfirheyra það, svo að
tæpast á hún eftir að lenda á gati á
næstunni þó að hún lendi á móti
erfiðum kjaftaski. -ÁT-
Arnþrúður Karlsdóttir er orðin
öruggur spyrjandi.
Innanhússœfingar íþrótta-
fólagsins Leiknis í knatt-
spyrnu
1. og 2. fiokkur sunnudaga kl. 17.00 3. flokkur
sunnudaga kl. 15.30. 4. flokkur miðvikudaga kl.
19.10. 5. fiokkur laugardaga kl. 15.30.
IKvennaknattspyrna laugardaga kl. 13.50. 6. flokkur
isunnudaga kl. 13.10.
Aðalfundur RKÍ
á Akureyri
Dagana 23. til 25. okt. verður aðalfundur Rauða
kross íslands haldinn að Akureyri. Það veröur
fertugasti aðalfundur RKÍ. Að undanfömu hafa
aðalfundir RKÍ verið haldnir annaðhvert ár.
Formannafundir hafa verið haldnir milli aðalfunda.
Að þessu sinni verða helztu viðfangsefni
Akureyrarfundarins, auk venjulegra aðalfundar-
starfa.eftirgreind: Staða RKÍ, fræðsla, útbreiðsla.
Um þetta flytja framsöguerindi þau Friðrik Guöni
Þórleisson kennari og Hólmfríður Gísladóttir deild-
arstjóri.
Aöalfundurinn, haldinn að Möðmvöllum, húsa-
kynnum M.A., verður settur kl. 18:00 á föstudag af
stjórnarformanni RKÍ, Ólafi Mbca lækni. Þá mun
forseti bæjarstjórnar Akureyrar, Sigurjón
Jóhannesson, flytja ávarp. Að því loknu hefjast.
aðalfundarstörf.
Fundir verða allan laugardaginn fram til kl.
19.00. Daginn eftir verður fundinum fram haldið til
hádegis.
Aðalfundinum lýkur með guðsþjónustu í Akur-
eyrarkirkju kl. 14.00 á sunnudag. Þar mun séra
Birgir Snæbjörnsson prédika.
Ekið á hest
í Holtahreppi
Maður sá sem ók á leirljósan hest á hraðbrautinni
milli Lyngáss og Rauðalækjar i Holtahreppi (eöa
þar í grennd) i októbermánuöi, er beðinn að hafa
samband við Jón Þorgilsson sveitarstjóra Rangár-
vallahrepps eða eiganda hestsins, Gyðu Þorsteins-
dóttur, Hlíðarbraut 8, Hafnarfirði, sími 50776.
J.C. Haf narfjörður
Hjólreiðakeppni
J.C. Hafnarfjörður heldur á sínum vegum
hjólreiðakeppni laugardaginn 24. okt. kl. 10 f.h. við
Lækjarskóla fyrir hafnfirzk skólabörn á aldrinum
9—12 ára.
Verkefni þetta er í tengslum við J.C. daginn og
hefur nefnd innan J.C. Hafnarfjörður starfað að
þessu verkefni og öðrum í sambandi við öryggismál
hjólreiðamanna um nokkurt skeið.
Haustgleði Skíðaskólans
í Kerlingarfjöllum
Hin árlega haustgleöi Skíðaskólans 1 Kerlingar-
fjöllum verður á Hótel Sögu í kvöld, föstudag. Þar
verður að venju margt til skemmtunar, söngur, kvik
myndasýningar frá sumrinu og dansað fram yfir
miðnætti. Húsið verður opnað kl. 7 fyrir þá sem
vilja borða en skemmtunin hefst kl. 9.
Sambandsaðilar GLÍ
Hér með tilkynnist að ársþing Glímusambands
íslands fer fram aö Hótel Loftleiðum sunnudaginn
25. október og verður í Leifsbúð.
Brautskráning kandidata frá
Háskóla íslands
Afhending prófskírteina til kandídata fer fram við
athöfn í hátiðasal háskólans laugardaginn 24.
október 1981 kl. 14. Rektor háskólans, prófessor
Guðmundur Magnússon, ávarpar kandidata en
síðan afhenda deildarforsetar prófskírteini. að
lokum syngur Háskólakórinn nokkur lög undir
stjórn Hjálmars Ragnarssonar.
Að þessu sinni verða brautskráðir 74 kandídatar
og skiptast þeir þannig: Embættispróf í guðfræði 1,
embættispróf í læknisfræði 1, aðstoðarlyfjafræð-
ingspróf 1, BS-próf í hjúkrunarfræði 2, BS-próf i
sjúkraþjálfun 2, kandídatspróf i íslenzkum bók-
menntum 1, kandídatspróf í ensku 1, BA-próf í
heimspekideild 15, próf í íslenzku fyrir erlenda stúd-
enta 1, lokapróf í rafmagnsverkfræði 3, lokapróf í
vélaverkfræði 1, BS-próf í raungreinum 18, kandí-
datspróf í viðskiptafræði 19, BA-próf í félagsvís-
indadeild 8.
Afhending leigu-söluíbúða f
Gerðahreppi
í dag verður afhentur 1. áfangi í leigu-söluíbúðum í
Gerðahreppi. framkvæmdir við þennan fyrsta
áfanga, sem er bygging tveggja hæða, fjögurra
ibúða húss, að grunnfieti um 200 mJ, hófust í ágúst-
lok 1980 eftir að leigu-söluíbúðanefnd hafði skrifað
undir verksamning við Sigurð Ingvarsson rafverk-
taka í Garði. Tvær 70 mJ íbúðir eru á neðri hæð og
tvær 100 mJ íbúðir á efri hæð. Framkvæmdir við
verkið hafa gengið vonum framar og er þessi 1.
áfangi nú afhentur um einum og hálfum mánuði fyrr
en verkáætlun gerir ráð fyrir. Allir hinir ýmsu verk-
þættir eru unnir af fagmönnum og fyrirtækjum í
Garði. íbúðirnar skilast fullfrágengnar að utan sem
innan. Geta má þess að kostnaðaráætlun sú er gerð
var í upphafi verksins virðist ætla að verða mjög
nærri lagi, þ.e.a.s. minni íbúðirnar kr. 380.000,- og
stærri íbúðirnar kr. 650.000,-.
Ibúðirnar verða til sýnis milli kl. 13 og 16 og kl. 16
fer fram afhending til væntanlegra eigenda i Sam-
komuhúsinu í Garði.
Knattspyrnudeild
Fylkis
Uppskeruhátíö meistara- og 1. og 2. fiokks knatt-
spyrnutieiidar Fyikis verður i Rafveituheimilinu
föstudaginn 23. október nk. og hefst kl. 22. Mætum
öll.
Kvenfélag
Bústaðasóknar
heldur námskeið í glermálun ef næg þátttaka fæst.
Upplýsingar hjá Sigríði í síma 32756 og Björgu í
síma 33439.
AfmæJi
80 ára er i dag Krístmann Guðmunds-
son skáld. Hann hefur gefið út ótal
bækur og var sú fyrsta Rökkursöngvar
sem kom út 1922. Fyrsta bók hans á
norsku hét Islandsk kærlighed, en
Kristmann var búsettur í Noregi um
árabil og fluttist til íslands árið 1939.
Skáldverk í átta bindum, sem Almenna
bókafélagið gaf út árið 1978, geymir
mörg bestu verk hans, þó hvorki
ævisögu né ljóð.
Mörg skáldverk hefur Kristmann
sent frá sér eftir heimkonuna, og mun
fleiri bækur alls en hann sendi frá sér á
Noregsárur.um. Ekkert skáldverkanna
hefur þó vakið viðlíka athygli og sú
fjögra binda sjálfsævisga Kristmanns,
sem kom hér út á árunum 1959—1962.
Þá voru tuttugu ár liðin frá heimkomu
skáldsins.
90 ára er i dag Ingileifur Jónsson
bóndi, Svinavatni. Hann kvæntist Ingi-
björgu Guðmundsdóttur, eignuðust
þau einn son. Ingileifur gegndi hrepps-
nefndarstarfi á fimmta áratug. Hann
var fulltrúi Samvinnutrygginga, einnig
sóknarnefndarformaður og meðhjálp-
ari í Mosfellskirkju i 36 ár. Afmælis-
barnið er að heiman í dag.
t dag á afmæli frú Rósalind Kristín
Ragnarsdóttir fyrrum starfsmaður
Flugleiða. Eiginmaður hennar er
Stefán Steinar Benediktsson og búa
þau að Dvergabakka 8 Reykjavík.
GENGIÐ
GENGISSKRÁNING NR. 202 23. OKTÓBER1981 Faröamanna- gjaldeyrir
Eining kl. 12.00 K«up Sala Sala
1 Bandarikjadollar 7,73« 7,758 8,533
1 Steriingspund 14,107 14,147 16,561
1 Kanadadollar 8,423 6,442 7,086
1 Dönsk króna 1,0819 1,0849 1,1713
1 Norskkróna 1,2877 1,2814 1,4205
1 Seansk króna 1;3809 1,3849 1,5233
1 Rnnsktmark 1,7418 1,7486 1,9211
1 Franskur franki 1,3554 1^593 1,4952
1 Balg. franki 0,2038 0,2044 0,2248
1 Svissn. franki 4,0984 4,1080 4,5188
1 Hollanzk'Tlorína 3,0882 3,0970 3,4087
1 V.-þýzkt mark 3,4084 3,4181 3,7677
1 Ítölsklíra < 0,00643 0,00645 0,00709
1 Austurr. Sch. 0,4881 0,4876 0,5382
1 Portug. Escudo 0,1198 0,1201 0,1321
1 Spánskur pasetí 0,0797 0,0800 0,0880
1 Japansktyen 0,03314 0,03324 0,03858
1 (rskt ound 12,072 12,106 13,316
8DR (sérstök dráttarréttindi) 01/09 8,8858 8,9109
Sfmsvari v«gna gangbskránlngar 22190.