Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 10.11.1981, Qupperneq 2

Dagblaðið - 10.11.1981, Qupperneq 2
Skrefatalningin: Stuðlar að einangrun fatlaðra og gamalmenna — segir gramur lesandi 0311—0303 hringdi: Mér finnst skrefatalningin vera hróplegt óréttlæti við gamalmenni og fatlað fólk sem ekki kemst að heiman og er háð síma, til þess að missa ekki öll tengsl við umhverfið. Að þessum ófögnuði skuli síðan vera komið á á ári fatlaðra finnst mér vera makalaus kaldhæðni og sýna bezt hve djúpt umhyggjan ristir fyrir þeim er sízt mega við auknum útgjöldum. Ég á t.d. vinkonu á áttræðisaldri. Hún er öryrki, á mjög erfitt með gang, býr alein og er vön að hringja til mín um það leyti sem hún veit að ég er komin heim úr vinnu. Nú er það liðin tíð, því síðan þessi skrefatalning kom, hefur hún ekki hringt til mín. Á kvöldin vill hún siður tala í símann, því þá eru út- varpsfréttir kl. 19, síðan tekur sjón- varpið við og hún er vön að fara að hátta um kl. 22. Hún þarf að hafa gætur á útgjöld- um sínum og það er greinilegt að hún treystir sér ekki til þess að axla þann kostnað að tala við kunningjana á daginn. Hún þarf að eyða símtölum í bráðar nauðsynjar, en hefur nú ekki efni á þeim munaði að spjalla við fólk, eins og hún var vön. Er það ekki rétt hjá mér að alþing- ismenn og ráðherrar, sem komu þessu á, hafi frían síma? Ég efast um að skrefatalningin hefði hlotið samþykki þessara manna ef þeir hefðu þurft að verða fyrir henni sjálf- ir. Svar: Við slógum á þráðinn niður í Alþingishús og fengum staðfest að alþingismenn og ráðherrar hafa frían síma. -FG. Um björgunarbáta: SEAFARER EÐA SEAMASTER? — hvorn bátinn pantaði útgerðarmaðurinn? Garðar Björgvinsson, útgerðarmaður á Raufarhöfn, skrifar: Árið 1978 keypti ég Seafarer- björgunarbát hjá Austurbakka hf. í Reykjavík. Báti þessum fylgdu mjög ítarlegar upplýsingar um gerð hans og innihald (á íslenzku). Þegar báturinn var skoðaður hjá gúmbátaþjónustunni kom í ljós að ég hafði verið látinn fá allt annan bát en bókin sagði til um. Bátur sá, er kom úr umbúöunum, var af Seamaster- gerð, algjörlega ólöglegur fyrir þil- farsbáta og allslaus af öllu því, sem átti að vera í honum, samkvæmt meðfylgjandi handbók. Ég hafði samband við Austur- bakka hf. og fékk strax loforð um tafarlausa úrbót á þessum mistökum, en þau loforð voru svikin, svo ég lagði málið fyrir lögfræðing á Akur- eyri. Á borði hans lá málið síðan í 4 mánuði. Ég gafst því upp á að leita réttar míns eftir þessari svokölluðu laga- leið, tók þann kost að leita á náðir almenningsálitsins og sagði sögu þessa i tveim bréfum i Dagblaðinu. Bréf þessi urðu þó til þess að ég var beðinn aö mæta á fund hjá Austur- bakka. Þar ræddi ég við feðgana Árna eldri og Árna yngri, ásamt lög- fræðingi þeirra. Á fundi þessum var mér tjáð að sölustjóri Dunlop væri væntanlegur til íslands eftir tvo daga og þá ætluðu þeir að leggja málið fyrir hann. Ég sagði þeim að mig varðaði ekkert um ferðir erlendra viðskiptavina Austur- bakka og að ég vildi fá tafarlausa lausn á máli þessu. Þarna á þessum fundi var svo fast- mælum bundið að ég skyldi fá annan björgunarbát og láta þá Seamaster- bátinn upp í, að sjálfsögðu. Einnig samþykkti ég að greiða einhverja upphæð á milli, því nú var þessi Sea- farer-bátur orðinn miklu vandaðri að allri gerð og með talstöð að auki. Það er nú um mánuður síðan þetta samkomulag var gert. Sölu- stjóri Dunlop er enn ókominn, segja Austurbakkamenn, og þeir segjast ekki hafa neitt fjármagn til þess að mæta þessum skakkaföllum, sem þó stafa af þeirra eigin handvömm. Ég hef nú fengið bréf frá Siglinga- málastofnun sem bannar mér að nota skip mitt vegna ólöglegs björgunar- báts. Að sjálfsögðu býð ég engum manni upp á að róa með mér undir þessum kringumstæðum, en ég neyðist til þess að róa einn, því ég er ekki grasbítur. Austurbakkamenn eru vonandi undir það búnir að taka afleiðingum gerða sinna, eða vilja þeir kannski ráða sig á vetrarvertíð á björgunar- bátslaust skip fyrir norðan? Hvor báturinn var pantaður? Dagblaðið hafði samband við Árna Þór Árnason, hjá Austurbakka hf., sem kvaðst ekki viija tjá sig frekar um þetta mál. Dagblaðið hefur bent báðum aðil- um á, að það hljóti að vera grund- vallaratriði, hvað stendur í pöntunar- og afgreiðslunótum vegna þessa björgunarbáts. Garðar segist ekki vera búinn að finna sitt eintak (eða eintök) en Árni Þór segir að það hljóti að vera Garðars að sanna þetta mál, sem nú hefur verið margrætt og verður því ekki tekið upp aftur á síðum Dagblaðsins. -FG. Raufarhöfn i vetrarbúningi. Þaðan skrifar Garðar Björgvinsson, útgerðarmaður, enn um kaup sin á björgunarbáti. Vopnaflutningarnir: OG ÞÚ LÍKA EIMSKIP, Fyrrv. skipverji skrifar: Vopnafiutningar flugfélaga með fiugvélum undir íslenzku skrásetn- ingarmerki hafa verið til umræðu í blöðum undanfariö. Fyrst átti það að vera Arnarflug eitt flugfélaga íslenzkra. Það vur dyggilega tiundað, bæði í Visi og Morgunblaðinu. Síðan kom í Ijós, að þarna voru Flugleiðir að verki líka, samkvæmt frétt í Dagblaðinu. Ekki var Morgunblaðið jafn fljótt til að birta þá frétt og það hafði verið, þegar Arnarflug átti í hlut, eða dag- inn eftir. Síðan er Eimskipafélag Íslands einnig komið inn í myndina. Áður höfðu birzt um þetta fréttir, en nú var ekki lengur um að villast. Tals- menn skipafélagsins bera þetta þó af félaginu, hvað sem síðar kemur í Ijós. Er kannski svo komið, aö flutning- ar á farþegum og venjulegum alhliða varningi eru ekki lengur arðvænlegir? Ef svo er, þá verður kannski vopna- flutningur okkar síðasta bjargráð. öll íslenzk fiutningafyrirtæki í vopnaflutninga fyrir þá, sem enn vilja standa uppi í hárinu á risaveld- unum! DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1981. Oánægður með vetrar- dagskrá útvarpsins — hallar á rokkunnendur 0311—0303 finnst kaldhæðnislegt að koma skrefatalningunni á, einmitt á ári fatl- aðra, og telur hana stuðla að frekari einangrun fatlaðs fólks og gamalmenna. DB-mynd: Ari. 7167—5688 skrifar: Það verður ekki mikið fyrir okkur rokkunnendur í vetrardagskrá út- varpsins. Enn virðist stefnan vera sú að „taka af því sem ekkert var”. í þessari atlögu er þátturinn Nýtt undir nálinni felldur úr dagskránni. Furðuleg ákvörðun með stórgóðan þátt, þar sem stjórnandinn kynnti mjög kunnáttulega það nýjasta nýja í rokkinu og poppinu. Hvað kemur í staðinn? Enn einn „léttblandaður tónlistarþáttur” í viðbót við eymdar- vælið í miðdegissyrpunum og draslið hjá Erni á sunnudögum. Ég segi nei takk! Ekki bara það. Einnig er ráðizt á þáttinn Áfanga, sem um árabil hefur verið bezti þáttur útvarpsins, og hann hafður stuttur og aðeins aðra hverja viku. Eru virkilega engin takmörk fyrir ósvífni útvarpsmanna gagnvart rokk- unnendum? Geta þessir menn ekki skilið að léttmetissyrpur með jafnlé- legum stjórnendum koma ekki í staðinn fyrir rokkþætti eins og Áfanga og Nýtt undir nálinni. Það er greinilegt að tónlistarstjóri og co. heyra engan mun á t.d. Abba og Joy Division, en þurfa þeir virkilega að láta hlustendur líða fyrir þann þekk- ingarskort? Raddir lesenda Gunnar Salvarsson sá um útvarps- þáttinn Nýtt undir nálinni. ÓSKABARNIÐ? En hvað sem öðru líður, þá eru vægast sagt einkennilegir allir þessir leiguflutningar íslenzkra fiutninga- fyrirtækja til þeirra landa, sem aldrei þrífast, nema eiga i útistöðum með vopnaviðskiptum hvert við annað. Hvaða íslenzkir aðilar eru það, sem eiga svona auðvelt með að koma á viðskiptasamningum við múham- eðstrúarþjóðir? Hvernig skyldu samningar og greiðsluskil líta út á pappír? Eru þessi viðskipti ekki gerð gegnum íslenzkt bankakerfi, eins og um venjulegan útflutning er venja? Einhver var að líkja flugmálunum við útfiutningsatvinnuvegina. Þess vegna ætti ríkið að veita ríkisaðstoð til þess að halda uppi „flugsamgöng- um”! Enginn minntist á vopnaflutn- inga, né styrk vegna þeirra.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.