Dagblaðið - 10.11.1981, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1981.
3
Til Siglfirðinga:
Drífið ykkur út að moka snjó
—það hressir, bætir og kætir
Gestur Frímannsson, sorphreinsun-
armaður á Siglufirði, hringdi:
Ég vil taka undir orð Guðmundar
Karls Jónssonar, starfsbróður míns á
Akureyri, sem skrifaði tímabæra
grein í DB þriðjudaginn 3. nóvember
sl. um nauðsyn þess að hvetja fólk til
þess að moka snjó frá ruslatunnum
og öðrum sorpílátum sínum.
Því vil ég bæta við að því miður
vantar oft bæði lok og hringi á sorp-
ílát sem síðan fyllast af snjó eða
regnvatni ef svo ber undir.
Ég vil einnig taka fram að engu
síður en á Akureyri mættu bæjar-
yfirvöld hér á Siglufirði að skaðlausu
brýna fyrir fólki að moka snjó frá
sorpílátum, hafa þau ekki á óað-
gengilegum stöðum og fleygja ekki
glerbrotum og öðru sliku í plastpok-
Sorphreinsunarmaður á Siglufirði
hringdi til þess að taka undir orð
starfsbróður sins á Akureyri. Báðir
brýna fyrir fólki að moka snjó frá
sorpílátum sínum og hafa þau ekki á
óaðgengiiegum stöðum.
Borgarspítalinn:
Heimsóknir í
tíma og ótíma
— segir lesandi
Eiginkona skrifar:
Nýlega lá maðurinn minn á Borg-
arspítalanum sem ekki er í frásögur
færandi ef ekki væri komin til ný-
breytni sem kannski gengur út í öfg-
ar.
Hann hefur allt gott að segja um
lækna spítalans og starfsfólk en átti
mjög erfitt við að sætta sig við heim-'
sóknir meira eða minna allan daginn,
utan venjulegra heimsóknatíma.
Hann Iá á nokkuð fjölmennri
stofu og virtist fólki þykja sjálfsagt
að ganga þar beint inn þegar þvi datt
í hug að heimsækja eitthvert ætt-
mennið eða kunningjann. Þetta var
sérstaklega þreytandi fyrir hann fyrst
eftir aðgerð þegar hann vildi gjarnan
geta hvílt sig sem mest.
Starfsmaður spítalans sagði
honum að þetta væri nýtt fyrirkomu-
lag sem hefði sína kosti í einstaka til-
fellum en væri mjög þreytandi fyrir
suma sjúklinga sem þyrftu á eins
mikilli hvíld að halda og mögulegt
væri. Þessi sami starfsmaður sagði
einnig að af þessu stafaði mikið
ónæði fyrir starfsfólk sem sumt
hvert ætti erfitt með að sætta sig við
þessa nýbreytni, enda nokkuð aug-
ljóst að stanzlaust ráp til sumra getur
verið bagalegt fyrir aðra sjúklinga.
Maðurinn minn sagði að þetta
væri mjög misjafnt efdr vöktum og
hann var sérstaklega þakklátur einni
deildarhjúkrunarkonu, sem hvorki
lét vaða yfir sig né sjúklingana; leyfði
helzt ekki heimsóknir utan heim-
sóknatíma, nema sérstaklega stæði á.
í gamla daga hefur vafalaust
verið of strangt á þessum málum
tekið en það hlýtur þó að vera hægt
að finna einhvern milliveg. Sérstak-
lega virðast því engin takmörk sett í,
dag hversu margir mega heimsækja
sjúkling í senn. Jafnframt ætti fólk
ekki að komast upp með að vaða inn
á sjúkrastofur án þess svo mikið sem
að spyrja hjúkrunarlið spítalans
leyfis.
Eiginkona telur aö Borgarspitalinn ætti að endurskoða heimsóknafyrirkomulag
sitt þvi núverandi fyrirkomulag sé þreytandi, jafnt fyrir sjúklinga sem starfsfólk.
Hrin8®'s,n>*
iUikl.l3og15
milliW
eðas
VIÐ TEUUM
að notaðir
VOLVO
bflar
séu betri
en nýir bflar
af ódýrari
gerðum
VOLVO 245 GL ÁRG. '81
BEINSK., EKINN 16ÞÚS.
VOLVO 245 GL ÁRG. '80
SJÁLFSK., EKINN 33 ÞÚS.
VOLVO 245 GL ÁRG. '79
BEINSK., EKINN 54 ÞÚS.
VOLVO 343 DL ÁRG. '78
SJÁLFSK., EKINN 27 ÞÚS
VOLVO 264 GLE ÁRG. '76
SJÁLFSK., EKINN 79 ÞÚS.
VOLVO 244 GL ÁRG. '79
BEINSK., EKINN 45 ÞÚS.
VOLVO 244 GL ÁRG. '78
SJÁLFSK., EKINN 46 ÞÚS.
VOLVO 244 GL ÁRG. '79
BEINSK., EKINN 40 ÞÚS.
35200
VELTIR
SUÐURLANDSBRAUT16
Spurning
9
LMJI
Hringir þú minna eftir
að skrefatalningin var
sett á?
Hrafnhildur Valgarðsdóttir kennari og
húsmóðir: Já, og þá hringi ég meira
eftir kl. átta á kvöldin. Ég reyni því að
geyma símtölin. Það er mikið verra að
hafaskrefatalið.
Hildur Jónsdóttir póstafgreiðslu-
maður: Nei, og þó ef ég hugsa út í það
hef ég aðeins minnkað þau.
Elrikur Grétarsson nemi: Já, alveg
hiklaust. Ég reyni að hringja ekki fyrr
en eftir klukkan sjö og um helgar.
Kristján Eliasson verkamaður: Já, ég
hringi frekar á kvöldin og stytti þá
símtölin. Það er óþægilegt að vita af
þessari skrefatalningu.
Ágústa Bergmann húsmóðir: Já, alveg
örugglega. Eg hef hringt sáralítið þessa
síðustu daga. Ég er að reyna að venja
mig af þessu.
Ebenezer Asgeirsson, ■ -am; Vöru-
markaðarlns: Ég hef ei: em."
það bráðnauðsynlegasta. ni
frekar að hringja á kv i m
helgar. Mér finnst huu ■ attr