Dagblaðið - 10.11.1981, Side 4
4
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1981.
1 , DB a neytenaamarkað/ ' s V Dóra Stefánsdóttir^M\#Íl|W - -
SETJA DUNSÆNGINA
í ÞVOTTAVÉLINA
Björn Björnsson hrlngdi:
Ég las þarna um daginn á neyt-
endasíðunni ýmislegt um sængur. Mig
langaði svona að lofa þér að vita af
því að við hér á heimilinu höfum
þvegið svanadúnsæng í þvottavél-
inni. Við eigum lítið barn og höfum
þvegið sængina þess einum fjórum
sinnum og hún lætur ekkert á sjá.
Við setjum hana á 30 gráðu hita og
eftir þvottinn er hún þeytiundin og
síðan sett í þurrkara. Það er algjört
skilyrði að setja sængina i þurrkara á
eftir. Annars klessist dúnninn allur
saman. Við höfum sett hana í venju-
legan heimilisþurrkara án hitastillis
og látið hana vera þar í 40 minútur.
Þá er hún alveg skraufþurr. Við
vorum skíthrædd við að reyna þetta
fyrst eftir að okkur var sagt frá þvi.
En við erum mjög ánægð með
árangurinn. Þetta er bæði þægilegt
og miklu ódýrara en að láta hreinsa
sængina.”
Svar: Við þökkum Birni kærlega
fyrir ábendinguna. í sænsku blaði
sem við rákumst á nýlega var reyndar
talað um að þvo mætti dúnsængur.
Ég spurði að því í Dún- og fiður-
hreinsuninni en var þá sagt að engum
væri ráðlagt að gera það. Því þorði
ég ekki að birta þetta á síðunni hjá
mér ef ske kynni að ég væri að segja
einhverja bölvaða vitleysu. En fyrst
þarna eru íslenzk hjón sem reynt hafa
þetta með góðum árangri finnst mér
ástæðulaust annað en að koma þessu
á framfæri.
-DS.
Ekki hægt að fá snaf saf löskur þó nota eigi
nokkrarmatskeiðar
„UNGLINGAR MYNDU
MISNOTA SLÍKF’
„Mig langar að vita af hverju ekki
er selt vin í litlum flöskum (snafsa-
flöskum) í ríkinu hér eins og viða er-
lendis,” sagði kona sem hringdi til
okkar hér á neytendasíðunni.
Hún bætti við: „Oft á að nota
nokkrar matskeiðar af víni í fínar
uppskriftir. Það hefur enginn maður
efni á því að kaupa t.d. heila flösku
af koníaki til að nota úr henni 2—3
KEA kjörmarkað-
urinn hagstæðastur
á Norðurlandi
v
Vöruverð á Norðurlandi er hag-
stæðast í verzlun KEA við Hrísalund
á Akureyri. Svo segir að minnsta
kosti í nýútkomnu blaði sem ber
nafnið KEA fregnir. Segir í greininni
að allmargar verðkannanir sem
gerðar hafi veriö undanfarið hafi leitt
í Ijós svipaðar niðurstöður, vöru-
verðið sé lægst í Hrísalundi. Sjáist
ánægja neytenda með þetta bezt á því
að sala hefur aukizt að miklum mun i
búðinni. Þannig hafi salan í júlí i
sumar aukizt um rúmlega helming,
eða 109%, um 70% í ágúst og um
98% frá því í sömu mánuðum í fyrra.
DS.
Barnið brosir glatt og ánægt og veit ekki um þau heilabrot sem maturinn ofan i
það kann að valda fullorðna fólkinu. DB-mynd R. Sigurjóns.
matskeiðar. En allir ættu að hafa
efni áað kaupa litlar flöskur.”
Ég spurði Svövu Bernhöft yfir-
mann innkaupadeildar ÁTVR um
þetta. ,,Ég er hrædd um að það sé
ekki hægt,” sagði hún. „Bindindis-
samtökin myndu líklega segja eitt-
hvað. Því eftir því sem vínið er ódýr-
ara hér virðast unglingar eiga auð-
veldara með að komast yfir það.
Fyrir það verðum við öll að borga.
Notkun á vini er einfaldlega ekki eins
hér á landi og víða annars staðar. Við
verðum að horfast í augu við það.
Svona litlar flöskur hafa aldrei verið
fluttar til landsins og ég er hrædd um
aðaldrei verðiaf því,” sagði Svava.
-DS.
Það er óneitanlega dálitifl óhentugt
að þurfa afl kaupa hella vinflösku til
afl nota úr henni nokkra dropa i mat-
argerð. DB-mynd R.Th.
Kjúklingaréttur-
inn hennar Hönnu
Uppskrift dagsins er að kjúklinga-
rétti. Hún er úr Litlu matreiðslubók-
inni um kjúklinga og heitir þar Kjúki-
ingarétturinn hennar Hönnu.
2 stórir kjúklingar, ca 1100 g hvor
1 hvitlauksgeiri,
1 stór saxaður laukur,
1 msk. söxuð steinselja,
4 niðursoðnir eða nýir tómatar,
ca 100 g smjör.
TÓMATSÓSA:
4 hvitlauksgeirar,
2 msk. matarolia,
1/2 kg dós af niðursoðnum tómötum
eða sama magn af nýjum.
2 msk. söxufl steinselja,
2—3 tsk. estragon (kóngasalat) eða
2—3 msk. nýtt steikarsoð úr pönn-
unni.
MEÐLÆTI:
Snittubrauð, grænsalat með hráum
kjörsveppasneiðum og tómötum.
Kjúklingarnir éru hlutaðir í fernt.
Saxið hvítlauksgeirann, laukinn,
steinseljuna og tómatana, blandið
öllu saman og setjið i eldfast mót.
Kjúklingarnir eru settir þar í með
skinnið niður og helmingurinn af
smjörinu látinn ofan á þá. Fatið sett í
miðjan 235 stiga heitan ofn og steikt í
ca 20 minútur. Dreypið soðinu oft
yfir á meðan á steikingu stendur.
Kjúklingunum er nú snúið við og af-
Uppskrift
L dagsins j
ganginum af smjörinu smurt yfir þá.
Steikt áfram i 20 mín. Finna má á
kjúklingalærunum hvort rétturinn er
tilbúinn. Ef kjúklingarnir eru ekki
nógu brúnaðir, þegar þeir eru steikt-
ir, má bregða þeim aðeins undir grill-
ið.
Tómatsósa: Hvítlauksgeirarnir
skornir í ræmur og kraumaðir í olíu.
Tómötunum, steinseljunni og estra-
goninu bætt út í en notið ekki safann
af tómötunum í þessu tilfelli. Sósan
er soðin í 10 mín. og bragðbætt með
salti og steikarsoði af kjúklingunum.
Þegar kjúklingarnir eru framreiddir
eru þeir settir í djúpt fat og sósunni
hellt yfir.
Framreiðsla: Kjúklingarnir eru
framreiddir með heitu snittubrauði
og hrásalati.
Til tilbreytingar: Hella má 4—5
msk. af koníaki yfir kjúklingana
þegar þeir eru steiktir og áður en sós-
unni er hellt yfir og kveikja i því.
Nota má þurrkað eða ferskt basi-
likum í stað estragonsins. Og i stað
hrásalats má bera með réttinum hrís-
grjón, soðin í karrýi eða steiktar kart-
öfiur.
Misjaf nt verð á bamamat:
„RÉTT VERД
—segir verðlagsstof nun
Móðir hringdi:
Mig langar að vekja athygli á af-
skaplega misjöfnu verði á barnamat i
verzlunum hér i bænum. Ég keypti
með nokkurra daga millibili Milupa
barnamat í þrem verzlunum í bænum
og hann var ekki á sama verði í
neinum tveim þeirra. í Vörðufellinu
kostaði hann 11,10, í Hamrakjöri
5,95 og 6,95 eftir gerðum og í Vestur-
bæjarapóteki 8,80. í báðum síðast-
töldu stöðunum var mér sagt að um
nýja sendingu væri að ræða.
Raddir
neytenda
Svar:
Ég hafði samband við verðlags-
stofnun til þess að kanna hvort
barnamatur væri ekki háður verð-
lagsákvæðum. Var mér sagt að svo
væri jafnt og um aðra matvöru. Mis-
munandi verðið liggur hins vegar í
því að ekki var á öllum stöðunum um
nákvæmlega sömu vöru að ræða.
Bæði var munur á pakkastærð og
eins á innihaldinu. Þannig mátti það
sem selt var í Hamrakjöri kosta 6,95,
það sem selt var í Vörðufelli 12,65 og
það sem selt var í Vesturbæjar-
apóteki nákvæmlega það sem það var
séltá.
Svona burtséð frá því munar ennþá
töluverðu á verði á barnamat víða í
verzlunum eins og við höfum áður
sagt frá. Tollur var felldur af barna-
mat í vor en sumar verzlanir eru
ennþá að selja það sem keypt var með
álögðum tolli. Því getur barnamatur
verið seldur á misjöfnu verði eitthvað
lengur án þess að um verðlagsbrot sé
að ræða. -DS.