Dagblaðið - 10.11.1981, Síða 16
16
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1981.
fli’i rfl -
FOLK
Svíarbönnuðu
hannogþáer
ekki að sökum
aðspyrja...
Sjónvarpsáhorfendur hafa
væntanlega tekið eftir hversu stíft
fólksbíllinn Suzuki er auglýstur. Mun
vera heldur dræm salan á þeim ágæta
bíl, þrátt fyrir lágt verð. Munu menn
vera að einhverju leyti smeykir við
kaup á þessum bíl þar sem Svíar, sem
oft eru hafðir okkur til fyrirmyndar,
hafa bannað hann þar sem öryggis-
kröfur eru ekki taldar nægjanlegar.
En Sviar eru jú frægir fyrir öll sín
bönn . ..
Að pissa með
Gervasoni
Gervasoni var nánast þjóðhetja
hér á landi á meðan hann staldraði
við. Síðan hafa flestir gleymt
manngreyinu — nema kannski þeir
sem unnu honum heitast. Stundum
koma líka smáklausur í blöðum um
hvað maðurinn er að gera þessa og
hina stundina o. s. frv. En ákveðin
verzlun hefur líklega ekki verið sátt
við hversu gleymdur manntetrið er,
því hún auglýsir núna „Nýju
Gervasoni baðlínuna”. Nú segja
gárungarnir að Guðrún Helgadóttir
sé þegar ákveðin í að fá sér eitt sett.
Eða hver vill ekki pissa innan um
Gervasoni baðlínu?
Bróðirinn tók
við rekstrinum
Veitingahúsið Vesturslóð hefur nú
fengið nýjan eiganda, Sigvalda
Viggósson, en hann er bróðir
Antons sem rak staðinn áður. Sig-
valdi mun hafa á prjónunum
einhverjar breytingar og dagskrá
sem laða mun gesti að staðnum. Þess
má geta að Sigvaldi og Anton eru
bræður Þorsteins Viggóssonar sem
gert hefur garðinn frægan i
Kaupmannahöfn.
Vikumyndirí
Helgarpósti
Það vekur töluverða athygli að
eftir að Jim Smart, fyrrum ljósmynd-
ari Vikunnar, hóf störf á Helgar-
póstinum birtast nú í því ágæta blaði
Vikumyndir sem sérstaklega voru
teknar fyrir greinar í vikunni. Þannig
má greinilega þekkja níu Vikumyndir
í siðasta Helgarpósti, þar af tvær á
forsíðu.
Vildu sjá
Vigdísi
Við íslendingar vitum að sjálf-
sögðu hvers vegna sovézki kaf-
bátúrinn sigldi upp í landsteina í
Sviþjóð. Áhöfnin vissi af þvi að Vig-
dís var í heimsókn og vildi fá að berja
hana augum.
Grunnskólanemar í veiðitúr með Þorsteini RE:
Lœrðu meira en á nokkrum
vikum yfir skólabókunum
FÓLK
Vikumódelin kornin heim úr ævintýraferð til New York
Heimsóttu ýrœgustu diskótekin og
borðuðu með ríka fólkinu
— Sigríður og Gunnlaugur reynslunni ríkari eftir vikudvöl í heimsborginnu
Sigriður Stanleysdóttir og
Gunnlaugur Carl Nielsen eru
nýkomin heim eftir vikudvöl í New
York sem var verðlaun þeirra i
keppninni Vikan velur módel. Með
þeim í ferðinni var Borghildur Anna
Jónsdóttir, blaðamaðurá Vikunni.
„Þetta var ofsalega fín ferð fyrir
okkur öll og ég held að krakkarnir
hafi ekki getað séð borgina betur.
Hver dagur var skipulagður frá
morgni til kvöids, auk þess sem við
fórum á hverju kvöldi út að borða og
aldrei á sama staðnum,” sagði Borg-
hildur er við inntum hana eftir
hvernig ferðin hefði gengið.
„Álafoss gaf þeim föt áður en
þau héldu utan og voru þau í þeim
allan tímann. fslenzku fötin vöktu
alveg sérlega mikla athygli og fólk
sneri sér við til að að horfa á eftir
þeimútiágötu.
Við gerðum tízkuþátt fyrir Ála-
foss sem birtast mun í Vikunni og
það var þekktur þýzkur ljósmyndari
sem tók allar myndir. Hann hefur
verið búsettur í Bandaríkjunum siðan
1962 og heitir Sam Berkowitz. María
Guðmundsdóttir var okkur innan
handar og m.a. útvegaði hún okkur
þennan ljósmyndara. María sjálf tók
einnig myndir og verður forsíðumynd
í Vikunni eftir hana fljótlega,” sagði
Borghildur Anna.
„Ég fór með krakkana i Stúdíó 54
og Xemninon, frægustu diskótek i
New York, og það gekk ekki alveg á-
tölulaust að komast þar inn. En það
hafðist,” sagði hún ennfremur.
Þess má geta að eitt stærsta og
virtasta mánaðarrit í New York,
Cosmopolitan sýndi módelunum
mikinn áhuga og tók myndir af þeim,
sem birtast munu i febrúarblaðinu.
Er það einstakur heiður. Þá munu
Gunntaugur og S/gríður vfð komuna tíl landsins, sæl og glöð eftír vel heppnað og skemmtílegt ferðalag. Með
þehn i myndinni er Sigurður Hreiðar ritsffórl Vikunnar sem tók á mótí þeim erþau stígu úr fíugvélinni. Þess má
geta að flugleiðir buðu þeim flugið báðar leiðir.
DB-mynd Ragnar Th.
einnig tilboð hafa komið til Sigríðar
frá þekktum umboðsskrifstofum.
Hún er þó aðeins 16 ára og á fram-
tíðina fyrir sér, svo varla verður það í
bráð að hún fari til starfa í heims-
borginni.
Bæði Sigríður og Gunnlaugur
munu þó hafa lært mikið á þessari
ferð og séð meira en nokkurn grunar.
Til dæmis bauð Hafskip þeim i mat á
eitt fínasta veitingahús i New York
en það er á 65. hæð skammt frá
Rockeville Center. Allan tímann
höfðu þau einkabílstjóra og bil sem
aðeins þekkist í henni Ameríku.
Vikan mun á næstunni segja frá
ferðinni í máli og myndum.
-ELA.
— og fengu 600 kíló
í tíu net
Siglingafræði er nú orðin valgrein
i níunda bekk grunnskólanna og
vinsælt fag bæði hjá strákum og
stelpum. Auðvitað geta timarnir yfir
bókunum stundum orðið dálítið
þreytandi en þegar á sjóinn er komið
breytist nú lífið. Sjö krakkar
úr ölduselsskóla fengu að reyna
það er þau sigldu með Þorsteini RE
303 nú fyrir helgina. Það fylgir
nefnilega siglingafræðinni að fara
einn veiðitúr.
Með í förinni var kennarinn, Þor-
leifur Kr. Valdimarsson.og auðvitað
skipstjórinn, Magnús Ásgeirsson.
Veiðin var afbragðsgóð en í ferðinni
nældu krakkarnir sér i 600 kíló á
aðeins tveimur tímum. Þau fóru þvi
öll með nýjan fisk í soðið þennan
daginn.
Það er Fiskifélag íslands sem hefur
umsjón með þessum ferðum
grunnskólanema i samvinnu við
menntamálaráðuneytið. Þessi ferð
var sú sjötta og verða farnar tvær til
þrjár ferðir í viðbót á næstunni.
„Þrír skólastjórar riðu á vaðið
með að gera þessar ferðir að
veruleika. Það voru skólastjórar
Álftamýrar- Laugalækjar- og
Austurbæjarskóla en þeir létu verða
af því að fá þennan bát leigðan með
skipstjóra. Eigandi bátsins er
Guðbjörn Þorsteinsson. Þessar ferðir
hafa gengið frábærlega vel og ég er
viss um að krakkarnir hafa lært
meira í þessari einu ferð heldur en á
nokkrum vikum i skólanum,” sagði
Þorleifur. -ELA.
m---------------►
Þar kemur Þorsteinn RE að landi
með sjómennina ungu og afla
þeirra.
H
Og hópurinn með kennaranum
ÞorieHi fri vinstri, þi Eria, Simon,
Hinrik, Sveinn, Bjarki, Kristínn og
ÞorkeH.
DB-myndir S.