Alþýðublaðið - 10.06.1969, Qupperneq 14
14 Alþýðublaðið 10. júní 1969
Juliet Armstrong
| Smáauglýsingar
1S.
Töfrahringurinn j
I
I
l
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
l
I
I
I
I
I
I
I
verður að taka lífinu með ró. Láttu Önnu og börnin
ekki hrella þig um of. Vertu elskuleg og alveg sam-
vizkulaus! Skemmtu þér vel! Þú ert aðeins ung einu
sinni.
Hún brostí. — Við iskulum gleyma heimilisáhyggjum
mínum um stund. Segðu mér hvaða akra og engi þú
átt, og hvað þú ræktar!
Nú fór hann að hugsa um það, sem honum var eðli-
legt, og hann sýndi mikinn áhuga á landbúnaði og stolt
yfir jörðinni sinni. Ttann vildi útskýra fyrir henni ná-
kvæmlega, hvað væri ræktað á hverjum einasta hekt-
ara lands, og hann var enn að tala, þegar þau óku upp
að húsinu, sem var frá Tudortímanum, úr dökkgulum
múrsteini og umkringt eikartrjám. Hann fór með
hana inn, og þau gengu beint inn í bjarta dagstofu,
þar sem þegar hafði verið lagt á borð.
Henni fannst indælt að sitja þarna í sólinni og tala
og drekka og strjúka flauelsmjúkt höfuðið á Susan.
En hún varð að sækja börnin í skólann og hún fór
eftir að hafa fyrst talað um það við hann, að hann
kæmi í heimsókn fyrsta kvöldið, sem Dermot yrði
heima.
Ég ætla ekki að minnast á lykilinn strax, hugsaði
hún, meðan hún sat í bílnum fyrir utan skólann og
beið. Ég ætla að bíða þangað til að við Toní verðum
tvær einar.
Hún ákvað að senda þær Önnu og Söndru út sam-
an eftir matinn, svo að hún fengi að tala við Toní
einslega.
Loksins streymdu börnin frá skólanum og hún sá,
að Toní og Sandra gengu að bílnum. Toní virtist ekk-
ert taugaóstyrk, en svo mundi hún, að Toní átti von
á að sjá Önnu og beið þess, að hún breytti um svip.
Það gerði hún líka. Telpan nam snögglega staðar,
þegar hún kom að bílnum. Hún varð krítarhvít og aug-
un stór af reiði og ótta.
Aftur heyrði hún orð Toms hljóma fyrir eyrum sér:
— Telpan er ekki hraustleg. Ég geri ráð fyrir, að
það verði að fylgjast vel með heilsu hennar. Þessi
orð hjálpuðu henni til að sýna þolinmæði og gæði, og
hún kallaði glaðlega: — Komið þið! Ég er glorhungruð
— hvað um ykkur?
Toní leit um öxl og beið eftir Söndru, og hún virt-
ist rólegri eftir þessa bið. Þegar hún kom þegjanda-
leg inn í bílinn, var hún enn mjög föl, en skelfingin
hafði vikið fyrir þrjózku. Sandra var einnig afar kyrr-
lát. Hún var ringluð, en ekki hrædd, hugsaði Helen,
og hún efaðist um það, að hún þekkti nokkuð til flyg-
ilsins eða horfna lykilsins. Hún varð enn ákveðnari,
meðan hún ók heimleiðis, að hún ætlaði að fresta
umræðunum þangað til eftir skólann. Hádegisverð-
urinn átti að fara friðsamlega fram.
En hún hafðr ekki gert ráð fyrir Önnu. Þegar mál-
tíðin var hálfnuð, sagði Anna, sem var reið yfir þvi,
að Helen og Sandra voru að ræða saman — Funduð
ér lykilinn að flyglinum?
Helen roðnaði og leit þó rólega á Önnu:
— Ég óska ekki að ræða þetta núna. Börnin eiga
að fá að borða í friði.
Svo leit hún á Toní, sem hafði lagt gaffalirrn frá
sér og spurði: — Er maturinn vondur, vina mín?
Borðaðu hann allan, annars verð ég að banna þér að
fara í skólann í dag.
Telpan vildi ekki hlýða. Hún hallaði sér aftur á bak
í stólinn og sagði frekjulega: — Það var ég, sem
læsti flyglinum. Mamma átti flygelinn og ég hef geymt
lykilinn á öruggum stað, þangað til pabbi kemur
heim. Mamma átti flygilinn, og við Sandra eigum
meira í honum en þú. Þú hefur ekki leyfi til að sitja og
glamra á hann alla daga.
Sandra leit mállaus á systur sína og Anna sjálf virt-
ist undrandi yfir látunum í Toní. Helena reyndi að vera
róleg, en hún fann sjálf, að rödd hennar skalf lítið
eitt. — Anna, þér eigið að aka Söndru í skólann í
dag. Toní verður heima. Meira hef ég ekki að segja.
— Ég verð ekki hérna hjá þér! öskraði Toní og
spratt á fætur.
En Helen hafði ekki til einskis séð um'heilan bekk
þrettán ára ástralskra barna. — Þú skalt! sagði hún
kuldalega. — Þú nefndir sjálf lykilinn á flyglinum á
nafn og nú ræðum við málið. Svo bætti húrí blíðlega
við til Söndru: — Vertu ekki hrædd, vina mín. Borðaðu
matinn þinn. Anna ekur þér til skólans — og nú leit
hún hvasst á Önnu. — Við Toní þurfum að ræða sam-
an.
Helen settist upp í gluggakistuna og reyndi að fá
telpuna til að tala við sig, en Toní hristi aðeins höfuð-
ið. — Mér er sama, hvort þú berð mig eða sveltir eða
læsir mig inni. Þú skalt samt ekki fá lykilinn að flygl-
inum hennar mömmu.
— Ég held, að ég hafi aldrei beðið þig um hann,
sagði Helen og kveikti sér í sígarettu. — Mér þætti
gott að vita, hvers vegna þú gerir annað eins og þetta
— það er svo auðvelt að búa til nýjan lykil — og að
koma í veg fyrir að þú gerir önnur eins kjánaprik, sem
eru í raun og veru til einskis. Sé það svo að það særi
þig, að ég nota flygilinn, sem mamma þín átti, hvers
vegna geturðu þá ekki sagt það kurteislega, þá hefði
ég minnzt á það við föður þinn og keypt nýjan flygil
handa mér.
— Það er ekki bara flygillinn, sagði Toní. — Það
er allt mögulegt. Það eru stólarnir, borðin, koddarnir,
vasarnir og allt hitt, sem mamma átti. Hún keypti
þetta fyrir eigin peninga og sagði, að við Sandra ætt-
um að eiga það seinna. Hvað ertu að gera hingað og
seilast í það, sem aðrir eiga en þú?
— Hvað viltu, að ég geri? Láta pabba þinn setja
allt, sem hér er í geymslu þangað til að þið Sandra
viljið nota það?
— Ég vil, að þú farir, sagði barnið. — Ég vil ekki
hafa þig hérna!
Þetta var eins og högg í andlitið á Helenu, og hún
sneri baki við barninu og reyndi að leyna sorg þeirri,
sem bjó henni í brjósti. Þegar hún ieit út um glugg-
ann, sá hún, að Sandra og Anna voru að aka á brott. |
TRÉSMÍÐAÞJÓNUSTA
Látdð fagmann annast viðgerðir og viðhaiM á tréverki
húseigna yðar, ásamt breytingxun á nýjiu og eldra
húsnæði. — Slmi 41055.
VOLKSWAGENEIGENDUR!
Höíum fyrirliggjaindl: Bretti — Hurðir — Vólaírlok
ClCKl íll'CÍÖ u • rjfV'STfl fyrh i
kveðið verð. — Reynið viðskiptin.
Bílasprautun Garðars Sigmundssonar, Skipholti 25,
Símar 19099 og 20988,
GLUGGAHREINSUN og rennuhreinsun. Vönduð
og góð vinna. Pantið í tíma í síma 15787.
BIFREIÐ AST J ÓRAR
Gerum við -allar tegundir bifreiða. — Sérgrein:
hemlaviðgeðir, hemtavarahltutir.
Hemlastilling h.f., Súðavogi 14, Súni 30135.
Getuim útvegað tvöfalt einiaingmnargler með mjög
stiuttum fyrirvara, önnumst máltöku og ísetningu
á einföldu og tvöföidu gleiri. Einnig allllis konar við-
hald utanhúss, svo sem rennu- og þafeviðgerðir.
Gerið svo vel og leitið tilboða í símtun 52620 og
50311.
BÓLSTRUN — SÍMI 83513.
Hef fluitt að Skaftahlíð 28, klæði og geri við bóastruð
húsgögn. Bófetrun Jóns Ámasonar, Skaftahlíg 28,
sími 83513.
BIRKIPLÖNTUR
til sölu, af ýmsum stærðum, við liynghvamm 4, —
sími 50572.
JÓN MAGNÚSSON, Skuld, Hafnarfirði.
PIPULAGNIR
Tek að mér viðgerðir, uppsetningu á hrein-
lætistækjum, frárennslis-og vatnslagnir
Guðmundur Sigurðsson
Sími 18717
Jarðýtur - Traktorsgröfur
Höfum til leigu litlar og stórar jarðýtuir traktorsgröf-
ur og bílkrana, til allra framkvæmda, innan og utan
borgarinnar.
Jarðvinnslan sf.
Síðumúla 15 — Símar 32480
Heimasímar 83882 — 33982.
31080.
SOFASETT |
með 3jai og 4ra sæta sófum, ennfþá á gamla verðinu.
BÓLSTRARINN, Hverfisgötu 74, sími 15102.
Auglýsingasíininn er 14906.