Alþýðublaðið - 27.06.1969, Blaðsíða 14
14 Alþýðublaðið 27. júní 1969
Smáauglýsingar
JuEiet Armstrong
Töf rahringurinn
29
að hún hafði ekki neitað þessar bón hans í upp-
hafi. — Þá fáum við frú Codgett nóg að gera við
að laga allt til. Hvenær ætlarðu að koma með þau?
— í byrjun nóvember. Um fyrstu helgina. Þá eig-
um við að leika í einni útborg London. Kvöldsýningin
er klukkan sex og við förum hingað eftir síðustu sýn-
ingu og ættum að vera hérna í kvöldmat á laugardag-
inn. Binkelstein, en það heitir leikstjórinn, verður að
fara aftur snemma á sunrrudagsmorgni, og við verð
um að reyna að hafa sem bezt áhrif á hann áöur.
Þau hin verða allan sunnudaginn.
Svo að ég fæ þá að fara í vejzluna hans Toms á
föstudaginn, hugsaði Helen, en upphátt sagði hún^'
— Þetta ætti allt að ganga. ágætlega.
— Ættum við ekki að bjóða Önnu? spurði Dei-
mot. — Það er langt síðan ég hef séð hana og svo
skulda ég henni bréf, og auk þess er frí í skólanum
um helgar.
Helen spratt á fætur og roðnaði af reiði.
— Ætlast þú til þess, að við tökum hana aftur
til okkar, þegar við flyjum í stærra húsnæðið? spurði
hún og augu hennar skutu gneistum.
— Alls ekki. Hún sá, að Dermot var alvara, —
Ég vildi aðeins hitta hana og tala við hana. Ekkert
anrrað. Og svo virtist hann ekki vilja ræða þetta mál
nánar, því að hann gekk að flyglinum og byrjaði
að leika eitt af lögunum úr „Ástmær útlagans."
Hún var bæði afbrýðisöm og sár. Svo sár, að hún
minntist ekki einu orði á afmælisboðið, sem Tom hafði
boðið henni í — eða kannski er réttara að segja,
að hún hafi steingleymt því í bili, þangað til Dermot
fór í burtu.
Hún var önnum kafin. Á hverjum degi fóru þær,
hún og Rósa, sem átti að hjálpa henni frá North End
til Willow Close og hjálpuðu frú Codgett með alla
vinnuna, sem eftir var. Það var ekki nóg að gera allt
hreint. Þær þurftu líka að undirbúa allt fyrir heim-
sóknina.
Þar sem þetta var skólaleyfi um miðjan vetur áttu
telpurnar að koma með Önnu á föstudaginn að borða
með þeim. Þar sem Helen ætlaði að hitta Tom seinna
um daginn, borðaði hún fyrst og lét telpurnar og Önnu
koma í leigubíl, og hún hafði rétt tíma til að heiisa
þeim eftir að þær komu.
Henni fannst fyrst í stað eftir að hún sá Önnu, að
hún væri ekki jafn óvingjarnleg og hún hafði áður
verið. Hún var alls ekki elskuleg, en hún var kurt
eis og reiðubúin að leika hlutverk gestsirrs í stað
þess að vera ein heimilismanna. En um leið og
Helen varð það á að segja, að henni hefði verið bcð-
ið til kvöldverðar með Tom og vinum hans í tilefni af
afmæli Toms, skipti Anna um ham. Hún sagði fátt,
en lét börnin spyrja um það, hvert þau ætluðu og
reiði hennar olli Helenr áhygjum. Þegar hún fór upp til
að setja upp nýja, rauða hattinn sinn, skildist henni
að þetta var afbrýðisemi. Anna gat rifizt við Tom og
neitað að fara út með honum, en hún gat ekki horft
á það róleg, að hann byði frænku sinnri út.
— En hvað hún er vitlaus, hugsaði Helen, þegar
hún var að mála á sér varirnar með varalit, sem var
alveg eins á litinn og litli rauði hatturinn, sem hún
hafði á höfðinu. — Vilji hún eignast Tom, ætti hún
að gera eitthvað í því. Hann er hrifinn af henni, og
hún þyrfti ekki annað en lyfta litla fingri og þá kæmi
hann hlaupandi.
Þegar hún settist inn í bílinn andartaki seinna,
fannst henni, að hún heyrði símann hringja. Hún beið
andartak, ef svo kynni að fara, að það væru einhver
skilaboð til hennar, en það kom enginn út til að
sækja hana. Hún beið samt nokkrar mínútur ennþá
en svo sá hún, að hún myndi verða of sein og ók á
brott.
Hún lagði bílnum á bílastæðið í Cantlebury, þar
sem hún átti að hitta Tom og virri hans og fór svo
beina leið að stóra bílnum, sem Tom hafði tekið
á leigu til að aka þeim að skemmtistaðnum. Fjórir
vinir hans, tveir karlar og tvær konur — voru komn-
ar í bílinn og Helen fann það á sér, að þetta yrði
skemmtilegt boð. Allir ætluðu að skemmta sér og
þar sem enginn þekkti Helen fyrir, reyndu allir að
skemmta henni eins og þeir bezt gátu.
Þetta var einn yndislegasti dagurinn í nóvember-
mánuði. Himinninn var dimmblár og trén enn með haust
litum. Því miður var ökuferðin alltof stutt, en henni
þótti jafn skemmtilegt og hinum að komast á veð-
reiðarnar.
Hún hagnaðist því miður ekkert á veðreiðunum, en
Tom hafði unnið tuttugu pund og þegar hann bauð
þeim öllum í hrifningu sinni að fara á skemmtistað
og borða þar og dansa, jánrkaði hún því jafn hrifin
og öll hin. Hún var búin að hringja heim og, allir
vissu, að hún kæmi sennilega seint heim. Ónnu og
börnunum leið hvort eð var bezt án hennar — eða
svo taldi hún sjálfri sér trú um, sárþreytt, þjökuð
og leið.
Kynlegt en satt þó — hún naut þess ekki að sitja
þarna og snæða matinn. Maturinn var afburða góð-
ur, og hún hefði átt að hafa góða matarlyst eftir
að vera svona lengi úti, en svo var þó ekki. Þegar
átti að dansa, fann hún, að hún gat ekki hugsað sér
það.
Hún var víst þreytuleg, enda bauðst Tom til þoss
rétt rúmlega hálfellefu að aka herrni heim.
TRÉSMÍÐAÞJÓNUSTA
Látið fiagmann annast viðgeirðir og viðhald á tréverkl
húseigna yðar, ásamt breytingum á nýju og eldra
húsnæði. — Sími 41055.
VOLKSWAGENEIGENDUR!
Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Hurðir — Vélarlok
kveðið verð. — Reynið viðskiptin.
Bílasprautun Garðars Sigmundssonar, Skipholti 25,
Símar 19099 og 20988.
GLUGGAHREINSUN og rennuhreinsun. Vönduð
og góS vinna. Pantið í tíma í síma 15787.
BIFREIÐ A ST J ÓRAR
Gerum við allar tegundir bifreiða. — Sérgrein:
hemlaviðgeðir, hemiavaraMlutir.
Hemlastillinig h.f., Súðavogi 14, Sími 30135.
Getum útvegað tvöfalt einamgruxnargler með mjög
stuttum fyrirvara, önnumst máltöku og ísetningu
á einföldu og tvöföldu gleiri. Einnig affils konar við-
hald utanhúss, svo sem rennu- og þakviðgerðir.
Gerið svo vel og leitið tilboða í símum 52620 og
50311.
BÓLSTRUN — SÍMI 83513.
Hef flutt að Skaftahlíð 28, klæði og geri við bólstruð
húsgögm. Bólstrun Jóns Árnasonar, Skaftahlíg 28,
sími 83513.
BIRKIPLÖNTUR
til sölu, af ýmsum stærðum, vxð Lynghvamm 4, —
sími 50572.
JÓN MAGNÚSSON, Skuld, Hafnarfirði.
PÍPULAGNIR
Tek að mér viðgerðir, uppsetningu á hrein
lætistækjum, frárennslis-og vatnslagnir
Guðmundur Sigurðsson
Súni 18717
Jarðýtur - Traktorsgröfur
Höfum til leigu litlar og stórar jarðýtur traktorsgröf-
ur og bílkrana, tll allra framfcvæmda, innan og utan
borgarinnar.
Jarðvinnslan sf.
Síðumúla 15 — Símar 32480 — 31080.
Heimasímar 83882 — 33982.
bílasaloi
Bergþórugötu 3.
Símar 19032 og 20070.