Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1943, Page 33

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1943, Page 33
.35 ríkisskattarnir, til viðhalds framleiðslunni, liefðu gleypt all- ar launahækkanir. Þetta er það, sem í vændum er, ef þjóðin getur ekki orðið samtaka um það að skapa heilbrigt verðlag í landinu, verðlag, sem gerir útflutningsframleiðslu okkar samkepnisfæra á erlendum markaði. Svo sem nú hefur verið sýnt, hefur hinum opinberu ráð- stöfunum, til að halda dýrtíðinni í skefjum, að verulegu leyti verið hagað þannig, að óhlutvandir menn hafa getað flaggað með þeim sem uppbótum á landbúnaðarvörur, þótt með jafnmiklum rétti megi nefna þær uppbætur á sjávar- afurðir, neytendastyrk o. s. frv. Sannleikurinn er sá, að nið- urgreiðsla landbúnaðarvaranna á innlendum markaði er ekkert af þessu, sem nefnt hefur verið, heldur aðeins þáttur í þeim opinberu ráðstöfunum, sem gerðar eru til að halda framleiðslukostnaðinum í skefjum, eða með öðrum orðum: halda niðri vísitölunni. Þessar ráðstafanir koma meira að segja landbúnaðinum síst að gagni, því fram að þessu hafa kaupkröfur landbúnaðarverkafólks ekki fylgt neinni vísi- tölu og ríkissjóður greiðir ekki niður verðið á þeim hluta landbúnaðarframleiðslunnar, sem notaður er á sveitaheim- ilunum sjálfum. Margir standa í þeirri meiningu, að dýrtíðarráðstafanir hins opinbera snúist allar um það, að greiða niður verð landbúnaðarvaranna og öll dýrtíð og verðbólga sé runnin frá verðlaginu á þeim. Þetta er hinn mesti misskilningur, nákvæmlega það sama er gert og hefur frá stríðsbyrjun verið gert með meginhlut- ann af innfluttum vísitöluvörum. Síðastliðinn vetur var lágmarksfrakt, sem Eimskipafélag íslands taldi sig þurfa að fá fyrir flutning á tilbúnum áburði til landsins, um 585 kr. á smálest. Á sama tíma flutti félagið, samkvæmt fyrirmælum ríkisstjórnarinnar, alla kornvöru, kaffi, sykur, salt o. s. frv. fyrir um 260 kr. smálestin, eða fyrir 325 kr. lægra verð hverja smálest, heldur en félagið þurfti að fá til þess reksturinn bæri sig. Raunverulega voru því greiddar 325 kr. með hverri 3*

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.