Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1943, Page 46

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1943, Page 46
48 hrærir. Nýbýli, sem að mestu leyti byggðust á grænmetis- rækt við jarðhita, kæmust af með lítið land hvert og gætu því mörg rúmast á tiltölulega litlu svæði.. Því miður hefur reynsla undanfarinna ára sýnt, að þótt vermihús okkar fái hitann fyrir lítið eða ekki neitt, þá er fjarri því að þau geti keppt við erlend vermihús, sem þó verða að nota kol til hitunar. Jafnvel svo auðræktaða vermihúsajurt sem tomata, hafa vermihús okkar selt á tvöföldu og jafnvel margföldu verði við það, sem annarsstaðar tíðkast. Ræktun á korni og fræi er ennþá lítið útbreidd, en á vafa- laust mikla framtíð, í vissum bygðalögum, í sambandi við annan búrekstur. Virðist ekkert því til fyrirstöðu, að við getum, er fram líða stundir, framleitt allt það fóðurkorn, er við þörfnumst, og eitthvað af korni til matar. Ennfrem- ur nokkurn hluta þess grasfræs er okkur vanhagar um. Eg hefi lengi verið þeirrar skoðunar, að ræktun jurta til fræ- þroska, mundi auðveldast í sendnum og fremur léttum jarð- vegi, að öðru jöfnu. Tilraunir þær, sem síðustu árin hafa verið gerðar á söndunum á Rangárvöllum, virðast ætla að sanna þetta. Má vel vera, að mjög auðvelt og ódýrt reynist að reisa nýbýli, sem bygðu tilveru sína fyrst og fremst á rækt- un korns, fræs og kartaflna á sumum örfokasvæðunum á Suðurlandi. Blaðinu yrði þá snúið við, landið, sem búsetan lagði í auðn, yrði endurgrætt með nýju landnámi. Gæti þetta orðið skemmtilegasti þátturinn í sandgræðslusögu landsins. Ræktun sem þessi kemur vitanlega aðeins til greina í láglendissveitum sunnanlands, þar sem meðalhiti sumarsins er sæmilegur og frosthættan lítil, en þetta gildir um allan neðri hluta Árness- og Rangárvallasýslu og mörg svæði í báðum Skaftafellssýslum. Þótt sandjarðvegurinn sé ófrjór, þá kemur það ekki mjög að sök við ræktun þeirra jurta, sem eiga að þroska fræ, því mikil frjósemi seinkar fræþroska. Reynslan af þeim tilraunum, sem gerðar hafa verið, sýna líka, að korn og fræ þroskast alt að 2 vikum fljótar á söndum Rangárvalla, en austur í Fljótshlíð. Sandjarðvegurinn er

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.