Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1971, Side 10

Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1971, Side 10
Tillögur jarðræktarnefndar B Framsögumaður: Matthías Eggertsson. „Aðalfundur li.S.A. 1971 felur framkvæmdastjóra Rækt- unarsambands Austurlands að hafa samband við formenn búnaðarfélaga á svæðinu í marz — apríl ár bvert, safna frá þeim vinnupöntunum og gera að því loknu vinnuáætlun fyrir vélar sambandsins fyrir komandi sumar. Við samn- ingu slíkrar áætlunar sé þess gætt, að hinir einstöku hrepp- ar gangi fyrir til skiptis um vorvinnu fínvinnslutækjanna, þannig að bændur viti fyrirfram, hvaða vor þeir gangi fyrir um þessa þjónustu.“ Till. samþ. samhljóða. Eftirfarandi tillaga kom frá framkvæmdastjóra ræktun- arsambandsins: „Aðalfundur B.S.A. 197 f leggur áherzlu á, að hraðað verði byggingu verkstæðis fyrir ræktunarsambandið. Verkstæðisreksturinn verði sniðinn við þarfir þess og sé undir stjórn framkvæmdastjóra og verkstæðisformanns R.S.A." Nokkrar umræður urðu um tillöguna. Fram kom eftirfarandi dagskrártillaga frá Ffermanni Guðmundssyni: „Þar sem ræktunarsambandið heyrir undir stjórn bún- aðarsambandsins, telur fundurinn, að verkstæðisreksturinn heyri einnig undir hana og tillagan sé því óþörf og brjóti í bága við lög sambandsins, er henni því vísað frá og tekið fyrir næsta mál á dagskrá.“ Dagskrártillagan var samþykkt með 10 atkv. gegn 8. Tillögur allsherjarnefndar Framsögumaður: Hermann Guðmundsson. 1. Raforkumál. „Aðalfundur B.S.A. 1971 lýsir ánægju sinni með ákvörð- un um virkjun Lagarfoss. En jafnframt varar fundurinn forráðamenn orkumála mjög eindregið við því að gera frekari virkjun þannig að sökkva í vatn stórum lands- 12

x

Búnaðarsamband Austurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarsamband Austurlands
https://timarit.is/publication/273

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.