Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1971, Page 35

Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1971, Page 35
Starfsskýrsla Sigfúsar Þorsteinssonar til aðalfundar 1971 Eins og framlagðir reikningar bera með sér, var rekstur Ræktunarsambandsins á sl. ári með nokkuð (iðrum blæ en undanfarin ár. Kemur þar til fyrst og fremst miklu meiri vinna en árið áður, einkum meiri opinber vinna. Vinna hófst seint, var byrjað að vinna í flögum um mánaðamót maí-júní. Var mik- il vinna lögð í þau einkum með Ford Conty vélunum, sem eru mjög eftirsóttar og skila miklum afköstum hvort heldur það er vélin með tætaranum eða sú með herfinu. Þessar vél- ar hafa jafnan gengið vel, hins vegar hefur verið mjög til- finnanlegt viðhald á verkEerum, sem þeim fylgja og þá eink- um tætaranum. Mun viðhald hans á árinu hafa slagað upp í verð nýs tætara. Reynslan hefur sýnt, að þetta stór tætari er vélinni ofvaxinn, vökvakúplingin hefur ekki þolað álagið. Þessum tætara hefur nú verið lagt og von er á nýjum tæt- ara, aðeins minni, nú næstu daga. Með þessum gamla tætara er búið að vinna stórt landflæmi frá því hann kom og marg- ir bændur fengið ódýra vinnu með honum. Jarðýtur byrj- uðu vinnu í júní og sumar ekki fyrr en í júlí. Fremur dauft var fyrir vinnu fyrir þær framan af sumri en fór vaxandi eftir þvi sem leið á sumarið og þegar kom fram á haust var erfitt að anna eftirspum um þessi tæki. Skurðgröftur hófst síðast í júní. Fjórar gröfur voru starf- ræktar, þær sömu og árið áður. Alls var mokað um 330 þús- und ten.m og var það um 50.000 ten.m meira en boðið var út, en þrátt fyrir það endaði árið þannig, að ekki var grafið alveg hjá öllum, sem pöntuðu griift, aðrir bættust í þeirra 37

x

Búnaðarsamband Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búnaðarsamband Austurlands
https://timarit.is/publication/273

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.