Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1971, Qupperneq 38
ur verið eignarhluti Steindórs Einarssonar, þ. e. hálf skurð-
grafa af Pristman Cub VI. gerð. Keypt var jarðýta nokkurra
ára, en nýuppgerð af Cat. D 6 gerð, með ribber og U-tönn.
Þá var ákveðið, eftir að upplýst var, að Ræktunarsamband-
ið fengi vegagerðina á Jökuldal að kaupa ámokstursvél af
gerðinni Bröyt X2B. Þessi vél er fyrst og fremst ætluð í þetta
verk, til mála kemur að selja hana að því loknu eða reka
hana áfram, ef verkefni fást fyrir hana, og tel ég mig hafa vil-
yrði fyrir vinnu handa henni hjá Vegagerðinni næstu árin.
Auk þess getur hún komið að gagni við skurðgröft, einkum
í föstu landi. Einnig hefur verið ákveðið að kaupa ýtu af
gerðinni International B.T.D. 20, ensk. Þessar vélar hafa
verið hér í notkun síðan 1963 og hafa reynzt misjafnlega,
einkum eldri árgerðirnar. Þessar vélar kosta ekki í innkaup-
um nema ca. 50—60% af verði amerískra véla af sambæri-
legri stærð, en hins vegar eru vinnutaxtar líkir í opinberri
vinnu.
Kaupverð þessara véla og tækja eru um 10 millj. kr. og hef-
ur verið aflað lánsloforða og lána til þessara kaupa. Ykkur
finnst kannski að í nokkuð sé ráðist, en hafa má í huga, að
verkefni eru mikil framundan í opinberri vinnu og vonandi
líka í ræktun. Hafa ber líka í huga, að sambandið hefur ekki
endurnýjað né aukið sinn vélakost nú um árabil en slíkt
gengur ekki til lengdar.
Að endingu þakka ég Búnaðarfélagsform., stjórn og starfs-
mönnum R.S.A. samstarfið á liðnu ári.
40