Vísbending


Vísbending - 18.12.1998, Page 23

Vísbending - 18.12.1998, Page 23
Um efasemdamenn ér hefur verið stuttlega verið fjallað nokkrar af þeim hugmyndum sem spruttu upp eftir að Paul David varð starsýnt á lyklaborð tölvu sinn- ar. Qwerty hugtakið hefur eftir því sem tímar líða fengið æ víð- tækari merkingu bæði utan sem innan hagfræðinnar. Hins vegar eru blikur á lofti. Tveir hagfræð- ingar hafa farið ofan í þær próf- anir sem bandaríski sjóherinn lét gera á DSK og qwerty. Þeir benda á að August Dvorak, höf- undur DSK kerfisins, hafi sjálf- ur stjórnað þessum tilraunum og þær séu meingallaðar. Aðrar kannanir gefi hins vegar til kynna að þessi tvö kerfi séu næsta lfk. Og ef munurinn hefði raunverulega verið svo mikill sem Dvorak vildi meina þá hefðu einhver stórfyrirtæki séð sér í hag að taka upp DSK kerf- ið. Þar með er sótt að sjálfum þjóðfána qwerty og ef sú árás tekst er vandfundið svipað dæmi sem sannar vegartryggð og að markaðir geti fest sig í sjálfheldu úreltrar tækni. Paul David hefur ekki enn svarað þessu efnislega en viðurkennir að hann hafi ekki sjálfur athug- að þær prófanir sem sjóherinn lét gera á sínum tíma. Hann segist þó standa við allt sem hann hafi áður skrifað. Þeirri spurningu er því ekki enn full- svarað hvort Paul David geti með sanni kallað „Eureka“ eins og Arkimedes forðum eftir að sá hafði uppgötvað sitt lögmál. Heimildaskrá Grein Pauls David. Clio and the economics of Qwerty birtist í American Economic Review árið 1985, þaðan sem hugtökin qwerty og vegartryggð (e.: Path Dependency) skutust inn í almenna hagfræðiumræðu. Paul Krugman hefur ritað fjölda greina um hagfræði og viðskipti, og sumt af því er til reiðu á heimasíðu hans: http://wcb.mit.edu/krug- man/www/. Einnig er hægt að benda á bók hans: Peddling Prosperity frá árinu 1993 sem fjallar m.a. um deilur hans við „Strategic Traders", hóp sem ég kýs að kalla líflambasérfræðinga. Sem dæmi um líflambasérfræðing mætti nefn LesterThurow hefur gefið út nokkrar bækur og er sérstaklega hægt að benda á Head to Head fráárinu 1992. En BillClinton vitnaðioft íþetta rit í kosningabaráttunni sama ár og á fyrsta ári sínu í Hvíta Húsinu. Lester talaði þar auðvitað ekki um lífgimbrar en var tíðrætt um sólarupprásargreinar sem ríkið ætti að styðja. Af öðrum líflambasérfræðingum mætti taka þá félaga Ira Magaziner og Robert Reich. sem báðir voru samtíða Bill Clinton við Oxford og hafa verið nánir vinir hans síðan. Magaziners ritaði bókina The Silent War og verk Reichs The Work of Natiohs sem var útgefin árið 1991. Clinton fól hvorum fyrir sig þýðingarmikil hlut- verk á fyrra kjörtímabili sínu. Reich varð vinnu- málaráðherra en Magaziner vann undir stjórn Hillary Clinton að umbótum á heilsukerfi Bandaríkjanna (sem að vísu fór út um þúfur). í skrifum sínum halda tvímenningarnir ófeimið fram rfkisstyrkjum og tollum til hjálpar banda- rísku efnahagslífi og hugmyndir þeirra hafa enn mikið fylgi í þingflokki Demókrata. Ræður Ricardos á breska þinginu skipa merkan sess í sögu hagfræðikenninga. Honum var sérlega uppisigað við innflutningsbann á korni til Bretlands (e.: Corn Law Debate) og féllu margir gullmolar í þeim sviptingum. Hægt er að lesa sér til um viðskiptakenningar Ricardo í hverri grundvallarkennslubók um hagfræði. Þessi mál hafa einnig verið til umræðu í blaða- greinum og fjölmiðlum hér vestra og hefur höf- undur einnig viðað að sér efni þaðan. Hægt er t.d. að nefna grein í Wall Street Journal frá 25. febrúar síðastliðnum: Qwerty spells a Saga of Market Economics. fslensk endurtrygging hf. (fáÁiley jéí oy Nói-Síríus hf. lej&dey jól oy Sparisjóðurinn í Keflavík t ýleðdey pl oy favœdt &om4mcU án Landssamband lífeyrissjóða 23

x

Vísbending

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.