Vísbending - 23.12.2005, Blaðsíða 7
sá eini sem beinlínis hefur landslagsheiti í nafni sínu og því best
fallinn til þess að sjá um samgöngumál.
Umhverfisráðuneytið er nýjast ráðuneyta og minnst. Það fellur
því í hlut léttvægasta jólasveinsins, Stúfs. Hann hefur alltaf virst vera
lítilla sanda, lítilla sæva.
Þó að í hugum flestra komi jólasveinar af fjöllum eins og áður er
að vikið þá eru til af því sögur að þeir komi utan af sjó á skinnbátum,
klofnir upp í herðar með kringlótta fætur og klær á höndum og fótum.
Er til betri lýsing á sjávarútvegsráðherra? Kvótakerfið er klofið milli
stónitgerða og trillukarla. Margir líta á útgerðaraðalinn sem skrímsli
með klær. En enginn jólasveinanna ber nafn sem minnir á sjó. Þess
vegna fellur embættið í skaut Þvörusleiki, sem gæti skammtað
útgerðarmönnum með þvöm sinni.
Margir koma til greina sem landbúnaðarráðherra, en Bjúgnakrœkir
er þjóðlegastur, heldur í gamla siði og gæðir sér á bjúgum sem enginn
hugsandi maður leggur sér til rnunns lengur. „Islenska bjúgað er
einstakt."
Hér á landi hefur sami maður verið iðnaðar- og viðskiptaráðheira
um langt skeið. Slíkt væri þó jólasveinum ofraun og tveir þeirra skipta
staifmu á milli sín. Viðskiptaráðhena þarf að ftnna innansleikjur víða
og Pottasleikir er tilvalinn í verkið. Enginn er hins vegar betri orku-
og iðnaðarráðherra en Kertasníkir.
Fjármálaráðherrann þarf að geta teygt sig inn í búr landsmanna til
þess að fá sinn skerf og Kjötkrókur hefur mesta hæftleika til þess að
sitja að kjötkötlunum. Engin flís er svo smá að fjánnálaráðherra nái
ekki að krækja í hana.
Hagstofa fslands er sérstakt ráðuneyti og náttúrulegur fulltrúi í
hana er Gluggagœgir. Ekkert fer fram hjá honum, stóit eða smátt. Það
væri honum líka kærkomið að fá að stunda iðju sína á löglegan hátt.
Einn af gömlu jólasveinunum í Þjóðsögum Jóns Ámasonar er
Faldafeykir. Sem kunnugt er vann hann sér það til frægðar að blása svo
kröftuglega að pilsfaldar lyftust. Hann er settur út af sakramentinu hjá
Jóhannesi úr Kötlum, líklega vegna þess að öld kynferðislegrar áreitni
var mnnin upp. Hjá okkur fær hann félagsmálin, en ekki er víst að hann
entist lengi í því embætti.
Hurðaskellir fyllir skarð Faldafeykis á síðari ámm. Hann gæti skipað
möig ráðuncyti og er kannski líkastur flestum ráðhermm á ýmsum
tímum. Hann gæti tekið við félagsmálunum, en hér verður hann þó
settur í dómsmálaráðuneytið. Öðmm skal eftirlátið að ímynda sér hvoit
hann setji mönnum dómstólinn fyrir dynitu-.
Skyr er hollt og gott og Skyrgámur er því sjáltkjörinn heilbrigðis-
ráðherra. Hann myndi eflaust taka upp gamla siði og hætta að sykra skyr
en eta það með þykku rjómablandi.
Áður fym var sagt að bókvitið yrði ekki í askana látið, en nú hefur það
breystog þvíer Avfa/.s7e/k/reðlilegasturallrajólasveina í menntamálin.
Em þá taldir þrettán jólasveinar og einn til, vegna þess að Hurðaskellir
og Faldafeykir em til skiptis taldir til „alvömjólasveina". Jón Ámason
„Lævísir á svipinn,
ÞEIR LEYNDUST HER OG ÞAR,
TIL ÓKNYTTANNA VÍSIR,
EF ENGINN NÆRRI VAR.“
nefnir fleiri jólasveinanöfn og Ámi Bjömsson bætir enn við þann
ffóðleik. Einn þeirra er Baggi, en erfitt er að hugsa sér ffásagnir af honum
í ríkisstjóm. Baggi á þjóðinni, hann er sjálffall inn úr leik. Bjáltnim sjálfur
og Bjálmansbarnið (sumir tala um Bjálfann) em væntanlega feðgin eða
feðgar og því einstök í jólasveinafjölskyldunni. Nokkur dæmi em um
feðga sem liafa verið ráðherrar hérlendis en þessir virðast ekki líklegir
til þess að ná árangri. Sama má segja um Drumb fyrir cillá, Utlapung
og Htmmusníki.
Flautaþyrill hefur oft náð góðum árangri í kosningum til Alþingis og
það hafa þeir líka gert bræður hans Hnútur og Rauður.
Til em nokkrar jólameyjar þó að ekki séu ort um þær kvæði.
Væntanlega yrði Jafniéttisráð að skerast í leikinn ef böm Grýlu tækju
völdin,en þó em í þeim hópi Flotnös,Flotsokka, Kkttaskora,Redda og
Sledda. Engin virðist líkleg til að ná árangri, nema kannski Redda. „Það
reddast“ er ekki slæmt slagorð og reyndar lífsstfll margra íslendinga.
Af þeim sem helst virðast koma tíl greina í raðheixastólana af „óþekktu
jólasveinunum“ em Lampaskuggi sem gæti tekið menntamálin, Refur
væri upplagður utanríkisráðherra (og jafnvel forsætísráðherra) og
Smjörhákur, sá síðastnefndi eiginlega bara vegna þess að ég hafði gaman
af honum í Smjörhákssögu, sem kemur jólasveinum ekkert við. Það er
ffeistandi að tilnefnaSteingrím,en við ffeistingum gæt þín.
Niðurlag
Öllum er vel kunnugt um alþjóðavæðingu íslenskra jólasveina. Þeir
hafa tapað sínum íslensku vaðmálsklæðum og gráa strýi en tekið
upp rauð klæði og skegg heilags Nikulásar. Á síðari árum hafa
þeir þó orðið þjóölegri á ný og hafa klæðst íslenskum búningum.
Þjóðfélagsfræðingar gætu eflaust séð í þessu samlíkingar við afstöðu
ráðamanna til Evrópusamstarfsins en slíkar vangaveltur em of djúpar
til þess að komast að á þessum vettvangi. Engu að síður hafa knyttir
jólasveinanna nútímavæðst. Börnin sjá „mömmu kyssa jólasvein“,
nokkuð sem engum datt í hug að gæti gerst í gamla daga. Steingrímur
Thorsteinsson var ekki með nein friðarjól í huga þegar hann biður
jólasveininn: „Byssur, tmmbur, fleina eg fer, fána og lúðra að velja
mér. Vittu meira, óvígan her vildi eg gjaman hafa.“ Þó hefur kannski
lítið breyst, jólasveinarnir færa bömum væntanlega stríðsleiki. Þeir
em því engan veginn heilagir menn eins og Nikulás gamli. Einmitt
þess vegna gætu þeir orðið ráðherrar.
-7'