Vísbending


Vísbending - 23.12.2005, Blaðsíða 17

Vísbending - 23.12.2005, Blaðsíða 17
Kauphöllinni voru sextíu. Þau eru nú tæplega þrjátíu og markaðsverð í lok október var um 1500 milljarðar króna, þar af var verðmæti bankanna fjögurra 990 milljarðar, eða samtals um 66%, þ.e. þeir stóðu fyrir tvo þriðju allra skráðra fyrirtækja, og þeir eiga þar að auki umtalsverðan hlul í öðrum félögum Kauphallarinnar. Það vekur spurningar um hvort það sé heppilegt, til lengri tíma litið, að þróun íslensks atvinnulífs sé í mjög ríkum rnæli komin undir þessum fjórum bönkum.“ TÓMLEGT í HÖLLINNI „Fyrir utan bankana er hægt að telja önnur stór fyrirtæki í Kauphöllinni á fingrum annarrar handar. Það hlýtur að vera áhugavert að fleiri fyrirtæki komi inn í Kauphöllina, hvoit sem þau eru innlend eða erlend. Þama er í reynd aðeins eitt íslenskt fyrirtæki í ferðaþjónustu. Væri ekki áhugavert að sjá fleiri fyrirtæki í ferðaþjónustu? Menn gætu þá notað fjármagnsmarkaðinn til að taka ný skref í þcirri atvinnugrein á Islandi. Þama em tvö stór fyrirtæki í hátækni, Össur og Marel, en það hlýtur að vera keppikefli að fá þangað fleiri fyrirtæki af þeim toga. I framtíðinni væri náttúrulega áhugavert að sjá eitthvað af orkufyrirtækjum þarna inni. Svo hlýtur að koma að því að það verði einkavætt í heilbrigðiskerfinu og menntakerfinu. Þá sjáum við þróun þar sem kastljósinu verður aftur beint að starfsemi með höfuðkjama hér á landi SjÁVARÚTVEGURINN ER Í VNDUR „Það hefur vakið athygli mína að sjávarútvegurinn hefur týnst. Nær öll sjávarútvegsfýrirtækin em farin út úr Kauphöllinni. Eg held að við hljótum að sjá ný tækifæri í sjávarútveginum þar sem menn feta nýjar leiðir - kannski með því að verða virkari á alþjóðlegum markaði sem myndi miðla fisknum í meira mæli og með öðium hætti en nú er gert.“ Breyttar áherslur „Útflutningur sjávarútvegsfyiirtækja sem hlutfall af landsframleiðslu hefur minnkað hratt. Eftir því sem hann breytist, breytist ýmislegt annað, eins og t.d. rökin fyrir því að við getum ekki gengið í Evrópusambandið. Við hljótum að vilja skoða hvemig við getum orðið meiri þátttakendur í Evrópu 21. aldarinnar en hingað til. Eg er ekki að hugsa um þetta bara út frá peningunt, hvað við fáum eða þurfúm að borga. Það er áhugavert að búa til sterka Evrópu sem er mótvægi, ásamt Bandaríkjunum, við önnur stórveldi sem em að verða til. Ég skil heldur ekki að menn vilji ekki sitja við borðið þar sem ákvarðanimar em teknar.“ VlÐ LENDUM Á NÝ „Þetta umbreytingaferli sem hefur átt sér stað hlýtur að lenda einhvers staðar aftur. Ég held að það verði að sjá eftir því hve áhrif stjómmálamannanna eru orðin lítil. Það er grunnverkefni þeitra að skapa kerfi til að hafa eftirlit með markaði og viðskiptum og gera þau virk. Eftirlitsstofnanimar em ennþá veikar. Ég held að menn lagi það ekki með því að búa til nýjar reglur og reglustofnanir. Löggjöfin er í lagi en misvel hefurgengið að framkvæma hana. Við eigum að búa til kerfi sem tryggir áframhaldandi frjálsræði og möguleika á því að láta nýjar framtíðarsýnir rætast." Að leiðarlokum Þegar Hörður var spurður um hvort hann myndi skrifa endurminningar sínar, eins og aðrir þjóðþekktir Islendingar, svaraði hann: „Endurminningar eru ekki á dagskrá, þœr myndu ekki hœta neinu við.“ Enginn efast hins vegar um að þegar Hörður hvarf úr hringiðunni hvarfeinn mesti „reynslubolti" íslensksatvinnuhfs. Hann hefitr án vafa haft meiri bein og óbein áhrifá viðskiptalífið en hann grunar. Asamt öllum hinum sem lögðu hug og hjarta í að byggia upp íslenskt viðskiptalíf hefur liann lagt grunninn að þeirri framþróun og hagsœld sem íslendingar liafa upplifað á síðustu árum. Að eiga sinn tíma sjálfur „Fyrst eftir að ég hætti var ég þátttakandi í ýmsu en er það ekki lengur. Mér finnst mjög áhugavert að fylgjast með hvað er að gerast í samfélaginu og fylgist með ýmsu betur en öðm. Ég hef gaman af að fylgjast með þróun í fyrirtækjarekstri hér á landi. Það væri auðvitað gaman að hafa puttana í þessu að einhverju marki en þegar ég hugsa um það verð ég líka jafnfeginn því að þurfa ekki að hafa áhyggjur eða bera ábyrgð. Ég sé ekkert sérstakt hlutverk sem ég hef í framtíðinni, annað en það að eiga minn tíma sjálfur." Hörður Sigurgestsson - Ferill - Menntun: Stúdent Ifá Verslunarskóla íslands 1958 Cand. Oecon. frá Háskóla íslands 1965 MBA frá Wharton School 1968 Starfsreynsla: Fjárlagaoghagsýslustofriun 1968-1974 Framkvæmdastjóri fjármálasviðs Rugleiða 1974-1979 Forstjóri Eimskipafélagsins 1979-2000. Fjölskylda: Hörður er kvæntur Áslaugu Ottesen bókasafnsfræðingi. Þau eiga tvö böm. Inga er viðskiptafræðingur og MBA og búsett í Madrid á Spáni ásamt eiginmanni og tveimur börnum. Jóhann Pétur er lögfræðingur og búsettur í New York í Bandaríkjunum ásamt eiginkonu og tveimur bömum. Gleðileg jól og farsœlt komandi ár! NÓl SÍRÍUS

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.