Vísbending - 23.12.2005, Side 23
Birna Einarsdóttir
- Markaðskona og hugmyndafræðingur
Guðmundur Ólafsson
- Hagfræðingur og byltingarsinni
Hvað eru peningar?
Frelsi.
Hvernig er best að eyða peningum?
Til að tryggja langvarandi getu til skókaupa er ráðlagt að setja
peninga í fjárfestingar og spamað.
Hver er munurinn á aö eiga ofgnótt og ekkert afpeningum?
Það er líklega verra að hafa ekkert en ofgnótt þótt hvort tveggja geti
valdið hugarangri.
Hvernig er hœgt að lýsa „peningahyggjunni” á Islandi idag?
„Þetta reddast” er hugsunarháttur sem er á undanhaldi, sem betur
fer. Fjármálaáhugi fólks er að aukast - Peningamir þínir, blað sem
íslandsbanki gaf um um fjármál fékk ótnilega góðar undirtektir svo
og námskeið sem um þúsund manns hafa sótt og fræðst um fjármál.
Mýtur um peninga
1. „Look after the pennies and the pounds will take care of
themselves.” Ég dvaldi 6 ár í Skotlandi og þetta heyrði ég oft enda
em Skotar einstakir reglumenn þegar kemur að peningum - minni
reglumenn þegar kemur að skosku viskíi!!
2. „Money talks” - í merkingunni að peningar færi fólki völd og áhrif
- líklega gömul sannindi og ný.
3. Ljóska nokkur á að hafa sagt einu sinni: „Ég skil ekki fólk sem
segir að ekki sé hægt að kaupa hamingju fyrir peninga - þetta fólk
veit ekki hvar á að versla.”
Hvað eru peningar?
Tæki til að ljúka sambandi, til dæmis viðskiptasambandi.
Öðmm samböndum má yfirleitt einnig Ijúka með peningagreiðslu.
Hvernig er best að eyða peningum?
Það er ekki best að eyða peningum.
Hver er munurinn á að eiga ofgnótt og ekkert afpeningum?
Það er enginn munur, það er ekki mögulegt að eiga ofgnótt peninga
og að sama skapi ómögulegt að vera blankur.
Hvernig erhœgt að lýsa „peningahyggjunni" áIslandi ídag?
Eins og peningahyggju annarra, að græða ógeðslega mikið fljótt.
Mýtur um peninga.
1. Að peningaleg sjónarmið séu ómannleg, ekkert er mannlegra en
peningar.
2. Að peningar séu afl þess hlutar sem gera skal, oftast gildir hið
gagnstæða.
3. Að ekki sé hægt að kaupa hamingju, öðm nær. Lífshamingja er eitt
af því fáa sem hægt er að kaupa.
-23-