Vísbending - 23.12.2005, Page 27
ÞeSSU TIL VIÐliÓ I AR ER AUKEV MEMVTUN HVALREKI m AÐ AUKA VERÐMÆTA-
SKÖPUN, SÉRSTAKLEGA í HINU NÝJA HAGKERFI, EN AÐ ÖÐRU I I YTI SÉR
MARKAÐURINN UM FLEST SEM ÞARF TIL AÐ BÍTA OG BRENNA
lánasamningum í eigin bönkum. Svona fyrirkomulag þekkist
hvergi á byggðu bóli nema hér. Allt þetta sýnir að stofnanirnar
eru veikar og þetta grefur undan trausti, sem er lykilatriði í
fjármálaviðskiptum.
Höfundur þessarar greinar hefur gagnrýnt sumt af þessu
áður og fengið góðar undirtektir, sérstaklega í tveggja manna
samtölum, en ekkert gerist. Oskráðar siðferðisreglur okkar
íslendinga í viðskiptum eru ekki merkilegar, enda er engin
raunveruleg hefð fyrir þeim. Það er þeim mun grátlegra
því við gætum vel haft sem vörumerki á alþjóðavísu að öll
viðskipti íslendinga séu strangheiðarleg, gegnsæ og hafin yfir
alla gagnrýni og að þeir sem lúta ekki slíku verði hraktir úr
viðskiptum.
Margt er þó gott hjá okkur og mjög ánægjulegt er að
stjórnmálamenn hafa æ minni völd í efnahagslífinu þótt
enn eirni eftir af gömlum flokkstengslum. Frjáls markaður í
lýðræðisþjóðfélagi er besta stjórnarform sem maðurinn hefur
fundið upp. I hagfræðinni er þetta rneðal annars kennt og margt
er þar ekki flókið eins og hagstjórn. Það eru einungis tvær leiðir
fyrir opinbera aðila til að hafa áhrif á eftirspurn í hagkerfinu.
Önnur leiðin er að beita ríkisfjármálum, sem er verkefni
stjórnmálamanna, og hin leiðin er að stýra peningamálum,
sem er verkefni faglegra og óháðra seðlabanka. Keynes og
Friedman voru með þetta allt á hreinu þótt fjölmörg tilbrigði
við stef þeirra hafi verið skrifuð.
Þessu til viðbótar er aukin menntun hvalreki til að auka
verðmætasköpun, sérstaklega í hinu nýja hagkerfi, en að öðru
leyti sér markaðurinn um flest sem þarf til að bíta og brenna.
Öðrum sameiginlegum umsvifum á sviði velferðar, menningar
og samskipta haga menn eftir pólitískum meirihluta hverju
sinni. Sá meirihluti breytist á nokkurra ára fresti í flestum
löndum. Þetta fyrirkomulag sem hér er lýst hefur gilt á
Vesturlöndum meira eða minna í næstum 150 ár og hefur
skilað mestu framförum í sögu mannsins.
Sækjum fram með menningu
OG SKAPANDI ATVINNUGREINUM
Það eru fjölmörg tækifæri fram undan íhinu nýja hagkerfi þekkingar.
Um fjórðungur Islendinga vinnur nú í skapandi atvinnugreinum
(creative industries) en með skapandi atvinnugreinum er m.a. átt við
menningu, vfsindi og ráðandi stjórnunarstörf. Flestar meiri háttar
framfarir í vísindum eru til dæmis einfaldar en djúphugsaðar.
Hefð innan hagfræðinnar hefur verið að skipta framleiðslu í
þrennt, þ.e. í frumframleiðslu, iðnað og þjónustu, en nú er fjórða
víddin komin til, sem eru skapandi atvinnugreinar. Þessi umgjörð
hentar okkur Islendingum vel, enda erum við menningarlega sinnuð
og með ntikla menningarlega starfsemi, rniklu meiri en fólk gerir sér
almennt grein fyrir. Hér eru fjölmörg sóknarfæri á menningarsviðinu
og menningin skilar nú þegar 4% af landsframleiðslunni. Skapandi
starf er okkur hugleikið og liggur líklega í genunum, er sem sé
erfðafræðilegur eiginleiki.
Hefðbundnarlistgreinareru víðaarðbærfjárfesting,t.d.tónlistog
kvikmyndir, en við getum orðið enn öflugri á báðum þessum sviðunr
og fleirum. Eftirspurnin er stigvaxandi víða í menningargeiranum
en stigvaxandi eftirspum er fátíð. Tónlist, og þó sérstaklega
kvikmyndir eða leikið efni, er dæmi um það. Sterk staða tónlistar
hérlendis byggist á tvennu, þ.e. góðum tónlistarskólum og því að
íslenskt tónlistaifólk er vel menntað, oft erlendis, og þekkir vel
hina alþjóðlegu strauma. Góð menntun og þekking á umheiminum
var líka lykillinn að frægð okkar og frama á þjóðveldistímanum.
Útrásinni í fjármálum, sem hefur verið stórkostleg enda byggð
á vel menntuðu fólki, á að fylgja næsta útrás á sviði menningar og
skapandi atvinnugreina.
Við eigum óvenjuleg tækifæri í heimi framtíðar, verandi með
þrjárstærstu auðlindirframtíðarinnar allt íkringumokkurogímiklu
meira mæli en nágrannaþjóðirnar. Þessar auðlindir eru vatn,gott og
nægjanlegt landrými til búsetu og ótakmörkuð orka í djúphitanum.
Sjáum til hvernig unga fólkið spilar úr þessum möguleikum.
W
SPARISJÓÐUR MÝRASÝSLU
- Hornsteinn í héraði
- 27'