Vísbending


Vísbending - 23.12.2005, Side 36

Vísbending - 23.12.2005, Side 36
VISBENDING gegnum bankana sem voru í ríkiseigu. Þetta hefur náttúrlega allt breyst eftir að bankarnir voru einkavæddir og aukið frjálsræði fór að einkenna fyrirtækjamarkaðinn. Núna eru völdin hjá þeim sem eru með viðskiptahugmyndirnar og eru að gera góða hluti. BJARNI: Eg hef ekki orðið var við að bankarnir séu með „ofríki“ gagnvart viðskiptavinum sínum, enda hafa þeir viðskiptavinir sem eru með sín mál í lagi gengið á milli bankanna og óskað eftir tilboðum og fremur att þeim saman en hitt. HREIÐAR: Gagnkvæm eignatengsl eru ekki séríslenskt fyrirbæri. Við sjáum þetta Iíka í Svíþjóð. Þar tengjast stórir bankar fyrirtækjum. Ef við skoðum hver er stærsti hluthafi í Danske Bank, þá er það stærsta fyrirtæki Danmerkur! Hver ætli sé stærsti viðskiptavinur Danske Bank? Eg veit það ekki en það má spyrja sig að því. Við eigum ekki stóra eignarhluti í öðrum íslenskum bönkum, keppinautum okkar. Við erum ekki hluthafar í þeim og þeir eru ekki hluthafar í okkur. Það eru ekki gagnkvæm tengsl á milli okkar og annarra banka. SIGURJON: Köngulóarvefir í íslensku fjármála- umhverfí eru lítið annað en samsæriskenningar. Þegar línur sem skipta einhverju máli í þessum köngulóarvef eru dregnar upp í samræmi við umfang eignartengsla þáerþetta ekki svomikill vefur. Bankarnireigaörlítiðhveríöðrum. Yfirleitt er um smáar eignastöður að ræða en ekki krosseignarhald. Eina raunverulega krosseignarhaldið sem til er í dag er á milli KB-banka og Exista, sem er ekki mjög mikið í samanburði við heildarverðmæti bankans. Vissulega á Straumur stóran hlut í íslandsbanka og Landsbanki töluverðan hlut í Straumi en í því felst ekki krosseignarhald, þ.e. fyrirtækin eiga ekki hvort í hinu. HREIÐAR: Hjá okkur höfum viðalls konar reglur, við viljurn helst ekki að útlán til eins aðila fari yfir 10% af okkar eigin fé. Hámark útlána til eins aðila er 25% af eigin fé okkar. í dag eru þrír aðilar sem skulda okkur yfir 10% af eiginfé bankans en alls skulda þeir undir 40% svo að við erum ekki með neinn hættulega stóran viðskiptavin. Þannig viljum við halda því. Ef litið er til danskra banka má sjá að útlánastarfsemi þeirra er miklu áhættusamari en okkar. SIGURJÓN: Allt eignarhald, hvers eðlis sem það er, hefur ákveðna kosti og galla. Ef eignarhald er dreift getur það skapað óstöðugleika en að sama skapi getur verið erfitt að fá menn til þess að taka þátt í fyrirtæki ef þeir telja að einn aðili eigi of stóran hlut. Hvað Landsbankann varðar hefur það verið kostur að hafa þetta skipulag sem við erum með í dag. Þegar við tökum til hendinni þá höfum við einn stóran eiganda sem er tilbúinn til að taka þátt í okkar áætlunum. Það hjálpar auðvitað. Enn sem komið hefur þetta reynst okkur mjög vel. BJARNI: Ég held að það átak sem hér varð undir lok níunda áratugarins og kom fram í þjóðarsáttarsamningunum þegar aðilar vinnumarkaðarins og pólitíkin í landinu tóku höndum saman um að hætta þessum vonda spíral, víxlverkun launa, verðlags oggengis,sé dæmi um það sem hægt er að gera í litlu hagkerfi þegar traust ríkir á milli aðila. Ég held að sama skapi að nú séu að verða kynslóðaskipti þar sem nýir menn með nýja hugmyndafræði komast að, bæði í viðskiptalífmu og stjórnmálum. Það er alveg ljóst að harkan er orðin miklu meiri en áður. Samskiptin eru miklu grimmari og óvægnari en áður og samkeppni harðari. Þetta endurspeglast ekki síst í umræðum sem ntaður les í fjölmiðlum og þeim undirliggjandi átökum sem eru í þessu samfélagi. SIGURJÓN: Hinir íslensku fjárfestar sem hafa verið að festa fé sitt erlendis eru mikilvægir fyrir bankana.Bankarnirvoruaðeltaþessaviðskiptavini til útlanda áður en bankarnir fóru að fjárfesta sjálftr erlendis. Þeir hjálpuðu bönkunum til að ná fyrstu fótfestunni á erlendum mörkuðum. Markmiðið er að bankarnir geti gert þetta einir til lengri tíma. Alveg á sama hátt hafa íslensku bankarnir stutt fyrirtækin til að komast til útlanda. Þegar fyrirtækin eru liins vegar búin að ná ákveðinni fótfestu þar geta þau fengið erlenda banka til að styðja við sig líka. Þeir sem eru fremstir í útrás í dag drífa þjóðfélagið áfram. Það er mikilvægt fyrir banka að vera í tengslum við slíka aðila. HREIÐAR: Stærstu viðskiptavinir okkar væru ekki búnir að ná þessum árangri ef það væri ekki fyrir okkur. Við værum heldur ekki búnir að ná þessum árangri ef það væri ekki fyrir þá. Þannig hafa hagsmunir okkar verið tengdir saman, sem hefur verið mjög jákvætt. Það er hluti af viðskiptamódeli okkar. Við tökum áhættu með viðskiptavinum okkar. Þannig er óljóst hvort það er eggið eða hænan sem kemur á undan, þetta er samtengt. Drifkraftur útrásar HREIÐAR: Astæðan fyrir því að Islendingar eru svona áberandi er að við hófum útrásina miklu seinna en þjóðirnar í kringum okkur. Danir hófur sína útrás snemma á síðustu öld og þeir eiga núna stærsta skipafélag í heimi. Dönsk fyrirtæki taka yfir miklu stærri fyrirtæki í ár en íslensk fyrirtæki. Yfirtaka Mærsk á P&O Nedlloyd er dæmi um það. Það er búið að halda aftur af okkur íslendingum svo lengi, þess vegna gerist þetta svo snöggt. BJARNI: Það sem gerðist er að mínu mati tvennt. Annars vegar vomm við með fjárfesta sem höfðu verið á alþjóðlegum markaði og náð árangri. Þeir vildu fjárfesta á miklu stærri skala og við vomm tilbúnir til að taka þátt f því. Hins vegar höfum við séð að á undanfömum fimm til tíu árum hafa fjárfestar og fyrirtæki haft í vaxandi mæli vit á því sem mun gerast á alþjóðavísu. Þegar menn hafa rétt fyrir sér um ýmis mál og auga fyrir þessu rökræna orsakasamhengi þá byrja þeir að prófa sig áfram og fyllast eldmóði. Þeir horfa svo á þá sem eru í kringum þá að gera hluti á stærri skala og spyrja sig „af hverju ekki ég?“ Það hefur komið á óvart hversu margir hafa talið sig verið tilbúna til svo stórtækra fjárfestinga sem raun ber vitni. HRliIÐAR: Ég held að stóra árið hafí verið 2001. Þá yfirtók Bakkavör Katsouris Fresh Foods og Baugur keypti Arcadiíi. Þessar tvær tjárfestingar hafa skilað frábærri ávöxtun. Það hefur gefið Þeir sem eru fremstir í útrás ídageru jafn- framt að drífa þjóðfélagið áfram og það er mikilvœgt fyrir bankann að vera í tengslum við slíka aðila. -36-

x

Vísbending

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.