Frjáls verslun - 01.08.1940, Síða 4
KRISTJÁN J. REYKDAL:
Sjóvátryggingarfélag Islands h.f.
Sjóvátryggingarfélag íslands h/f var stofn-
að 20. október 1918 og er því nær 22 ára.
Voru það aðallega kaupsýslu- og útgerðar-
menn, sem stóðu fyrir stofnun þess, enda hafa
þeir haft bezt skilyrði til að dæma um nauðsyn
þess að stofna íslenzkt félag, sem gæti tekið að
sér skipastól landsmanna ásamt vöruflutningum
milli landa og innanlands.
Enda kom það fljótt í ljós, að hér hafði ver-
ið stigið spor í rétta átt í þeirri viðleitni að
koma verzlun allri sem mest á íslenzkar hend-
ur, og var enda einn liðurinn í sjálfstæðisbar-
áttu þjóðarinnar eins og stofnun Eimskipafé-
lags íslands nokkru áður.
Fyrstu stjórn félagsins skipuðu þeir L. Kaa-
ber kaupmaður (formaður), Sveinn Björnsson
yfirdómslögmaður, Hallgrímur Kristinsson
framkvæmdarstjóri, Halldór Kr. Þorsteinsson
skipstjóri og Jes Zimsen kaupmaður.
Strax á stofnfundi var samþykkt, að leita til
hr. A. V. Tulinius yfirdómslögmanns um að
taka að sér framkvæmdarstjórn fyrir félagið,
og gegndi hann því starfi til 1934, að hann lét
af starfinu sökum lasleika. Tulinius stjórnaði
félaginu í öll þessi ár af sérstökum dugnaði og
samvizkusemi, og má tvímælalaust að miklu
leyti þakka honum hve félaginu vegnaði vel.
í stað Tuliniusar var félagið svo heppið að fá
Brynjólf Stefánsson tryggingarfræðing til að
taka við framkvæmdarstjórastarfinu, en hann
hafði um nokkur ár verið skrifstofustjóri fé-
lagsins.
í núverandi stjórn félagsins eru eftirtaldir
menn: Halldór Kr. Þorsteinsson skipstjóri
(formaður), Lárus Fjeldsted hæstaréttarmála-
flutningsmaður, Aðalsteinn Kristinsson for-
stjóri, H. A. Tulinius stórkaupmaður og Guð-
mundur Ásbjörnsson kaupmaður.
Fyrst framan af rak S. í. eingöngu sjóvá-
tryggingar, bæði beint og sem endurtrygg-
ingu, eða þar til 1. júlí 1925, að félagið hóf
brunatryggingarstarfsemi. Þ. 1. desember
1934 er það stóra spor stigið að setja á stofn
líftryggingardeild, og 1. janúar 1937 byrjar
Starfsfólk
Sjó vátryggingar-
félagsins
4
FRJÁLS VERZLUN