Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1940, Blaðsíða 5

Frjáls verslun - 01.08.1940, Blaðsíða 5
Forstjórar Sjóvátryggingarfélagsins: t.v. Axel Tvlinius, t. h. Brynjólfur Stefánsson. félagiS að taka að sér bifreiðatryggingar. Yf- irleitt hefir viðleitni félagsins verið í því fólg- in, að koma sem mestu af tryggingum lands- manna á íslenzkar hendur. Skal hér nú örlítið minnzt á starfsemi hverr- ar deildar fyrir sig: Sjódeildin sjóvátryggir kaupskipaflotann að miklu leyti, togarana og línuveiðarana að nokkru leyti, inn- og útflutning landsmanna að miklu leyti. Hér bætist auðvitað við stríðs trygging á ófriðartímum, eins og nú standa yfir. Búnaðardeildin brunatryggir allskonar lausafjármuni (innbú, vörur og vélar), og mun hafa langmestan hluta þeirra trygginga hér. Þá eru öll hús í Reykjavík brunatryggð í skyldutryggingu hjá félaginu. Auk þess hef- ir brunadeildin rekstursstöðvunartryggingar. Bifreiðadeildin tryggir rúmlega helming allra bíla á landinu, bæði í skyldutryggingu og frjálsri tryggingu. Líftryggingardeildin. Þá er sænsku félögin Thule og Svea hættu starfsemi sinni hér á landi yfirtók S. f. hinar íslenzku tryggingar þeirra. Líftryggingarupphæðir í gildi um síð- ustu áramót námu tæpum 32 millj. kr., þar af ca. 14 millj. kr. yfirtekið frá sænsku félögun- um. Hefir líftryggingarstarfsemin farið fram úr öllum áætlunum, enda hefir félagið á að skipa mörgum ágætum umboðsmönnum til að afla félaginu trygginga. S. í. hefir eftirlaunasjóð fyrir fasta starfs- menn sína. Miðast eftirlaunin við 60 ára ald- ur fyrir kvenfólk, en 65 ára fyrir karlmenn. Sjóðurinn tryggir meðlimum sínum eftirlaun allt að 60% af launum auk líftryggingar. Fast starfsfólk félagsins á aðalskrifstofu þess er rúmlega 40 að tölu. Auk þess hefir fé- lagið fjölda umboðsmanna bæði hér í Reykja- vík og út um allt land. Það má óhætt fullyrða, að á fáum skrifstof- um er eins mikið félagslíf meðal starfsfólksins og hjá S. I. Starfsfólkið eða hluti þess fer að jafnaði í tvö sumai'ferðalög á ári. Til þess að standast kostnað af ferðalögum þessum eru tveir sjóðir, sem meðlimirnir greiða mánaðar- lega í yfir allt árið samkvæmt nánari reglum. Með þessu móti hefir verið hægt að fara í tals- vert kostnaðarsöm ferðalög, án þess að pyngj- an yrði mikið vör við það. Á veturna er farið í sameiginlegar skíðaferðir að lokinni vinnu á hverjum laugardegi, þegar skíðafæri er. Er það án efa gagnlegt mjög, að fólk, sem vinnur saman við verzlunar- og skrifstofu- störf, hafi með sér sem f jölbreyttast félagslíf. Eykur það á kynningu fólksins á annan hátt en á vinnustaðnum sjálfum. Kristján J. Reykdal. CASSON: Dugnaður. IJMIR hafa ekki eyra fyrir hljómlist. Þeir geta hvorki sungið né leikið á hljóðfæri. Þeim finnast allir söngv- ar og lög eins. Og í eyrum þeirra hljómar jazz eins og Beethoven. Það eru lika til kaupsýslumenn, sem hafa jafnlitið vit á gildi dugnaðar og aðrir á hljómlist. Þeir eiga litil fyrirtæki, sem baslast áfram um stund. Það virðist ekki vera hægt að hjálpa þeim á neinn hátt. Aðrir kaupsýslumenn hinsvegar eru alltaf fullir á- huga og dugnaði. Þeir koma fram með nýjar hugmynd- ir og aðferðir, og læra af öðrum. Á sínum tíma verða svo þessir menn forvígismenn á sviði kaupsýslu og iðnaðar. Þeir eru færastir um að standast alla keppni. Þeir verðskulda gengi sitt. Gott ráð TTÉR er gott ráð handa hverjum ungum manni, sem J"J" er duglegur og framgjarn — þú verður að vinna tvö dagsverk á dag. Þú verður að vinna hið venjulega dagsverk þitt, hvað sem það er, og þú verður að vinna annað dagsverk, sem er AÐ LÆRA. Hið venjulega dagsverk þitt færir þér launin þín og það er ef til vill allt og sumt, sem þú færð fyrir það. Lærdómsstundirnar — sem þú átt að taka af frí- tímanum — munu færa þér viðgang. Þær geta kann- ske skapað þér ágæta braut í lífinu. Framtíð þín — hvar sem þú verður staddur milli fertugs og fimmtugs — er undir því komin, hvernig þú verð frítíma þínum. Þetta er ráð, sem gott er að fara eftir. En það er kannske ekki nema einn af hverjum tiu, sem hefir kjark og þrek til þess að hagnýta sér það. FRJÁLS YERZÉUN 5

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.