Frjáls verslun - 01.07.1943, Page 3
afurða, en vísitala innfluttra vara var hins
vegar talsvert fyrir neðan hina almennu vísi-
tölu.
Hinn öri og mikli vöxtur dýrtíðarinnar síð-
ustu mánuði ársins 1942 vakti að sjálfsögðu al-
mennan kvíða. Þetta varð til þess, að 19. des.
1942 voru afgreidd á Alþingi lög um almennt
bann við verðhækkun á vörum um rúmlega
tveggja mánaða skeið. Þessi ráðstöfun kom að
sjálfsögðu æði hart niður á ýmsum verzlunar-
og iðnfyrirtækjum, sem urðu að hlýta þessu
banni.
Þegar þéssu tímabili lauk, hafði Alþingi sam-
þykkt ný lög um verðlag og verðeftirlit í land-
inu. Voru lög þessi æði mikið strangari en þau
lög, sem í gildi höfðu verið fyrir verðhækkunar-
bannið. Má segja að með hinum nýju lögum og
reglugerðum, sem gefnar voru út, hafi nálega
allar innfluttar vörur, svo og íslenzkar iðnaðar-
vörur og margvíslegar þjónustur verið settar
undir verðlagsákvæði og verið háðar eftirliti
Viðskiptaráðs og Verðlagsstjóra, sem falin var
framkvæmd þessara mála, samkvæmt hinum
nýju lögum.
4) Þér minnist á Viðskiptaráð. Hvað segið
þér um afskipti þess af innflutningsmálunum?
Svo sem kunnugt er, var Viðskiptaráð stofnað
í byrjun þessa árs, samtímis því sem Gjald-
eyris- og innflutningsnefnd var lögð niður. —
Verkefni þau, sem þessari nýju stofnuii voru
falin, voru æði margþætt. Því var falið að á-
kveða, hvaða vörur skyldi leyfa að flytja til
landsins, ráðstafa farmrými í skipum, er flytja
vörur til landsins, ráðstafa gjaldeyri til vöru-
kaupa erlendis, annast innflutning brýnna nauð-
synja eftir ákvörðun ríkisstjórnarinnar, ef sýnt
þykir, að innflytjendur sjái ekki þörfum þjóð-
arinnar borgið, eða aðrar ástæður gera slíkar
ráðstafanir nauðsynlegar. Einnig var því falið
að sjá um framkvæmd vöruskömmtunarinnar
í landinu, fara með verðlagsákvarðanir og verð-
lagseftirlitið, eins og áður segir.
Þetta starfsvið Viðskiptaráðs er það víð-
tækt, að með sanni má segja, að afskipta þess
gæti á flestum sviðum viðskiptalífsins.
Eg skal ekki leggja neinn dóm á, hvernig
Viðskiptaráðinu hefur tekizt að leysa hin ýmsu
verkefni af hendi. Mörg þessara verkefna eru
vissulega erfið viðfangs, og þegar tekið er tillit
til þess, að hér er um viðkvæm hagsmunamál
að ræða, kunna dómarnir að verða ærið mis-
jafnir. En hitt er víst, að Viðskiptaráð hefur
farið inn á nýjar brautir í starfi sínu. Þannig
má geta þess, að á síðastliðnu vori safnaði Við-
skiptaráðið ýmsum skýrslum um fyrri innflutn-
ing, í því augnamiði, að tryggja ákveðnari
FRJÁLS VERZLUN
Hallgrímur Benediktsson.
grundvöll til að byggja á úthlutanir gjaldeyris-
og innflutningsleyfa. Enn sem komið er hefur
ekki fengizt úr því skorið, hvernig þessi til-
raun reynist. Þá hefur Viðskiptaráð sett á-
kveðnar reglur, er segja til um það, í hvaða
röð vörur skuli taka til flutnings.
Þá sér Viðskiptaráð ennfremur um innflutn-
ing ýmissa vörutegunda fyrir einstök firmu
eða samlög innflytjenda. Eru þessi afskipti
Viðskiptaráðs þegar orðin all víðtæk. Eins og
sést á þessum dæmum, sem þegar hafa verið
nefnd, hefur starfsemi Viðskiptaráðsins í för
með sér margvíslegar hömlur á athafnafrelsi
verzlunarstéttarinnar. En eins og áður segir,
legg eg ekki að þessu sinni neinn dóm á starf-
semi Viðskiptaráðs, enda verður að játa, að
sumar þær ráðstafanir, sem það hefur með
höndum, eru óhjákvæmilegar eins og stendur.
5) Hafa ekki verið miklir erfiðleikar á að
koma vörum til landsins?
Flutningar á vörum frá Bretlandi hafa yfir-
leitt gengið greiðlega á árinu, enda hefur það
vörumagn,' sem þaðan hefur fengizt útflutt,
minnkað talsvert. Um flutning á vörum frá
Framh. á bls. 43.
3