Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1943, Page 4

Frjáls verslun - 01.07.1943, Page 4
ASalfundur V. R. var haldinn þriðjudaginn 30. nóvember að heim- ili félagsins. Fundinn setti formaður félagsins, Hjörtur Hansson. Bauð hann félagsmenn vél- komna og lýsti því yfir að samkv. lögum félags- ins ætti fundurinn að kjósa sér fundarstjóra. Var fundarstjóri félagsins, Konráð Gíslason, kosinn í einu hljóði. Tók hann því við fundar- stjórn og kvaddi fyrir fundarritara, ritara fé- lagsins, Lárus Bl. Guðmundsson. Var síðan gengið til dagskrár. 1. Lesin upp fundargjörð síðasta félags- fundar, og samþykkt. 2. Lesnir upp nýir félagar og samþykktir. 3. Formaður félagsins gaf skýrslu um störf félagsins á liðnu starfsári og er hún birt hér á eftir í höfuðdráttum. 4. Gjaldkeri félagsins, Stefán G. Björnsson, las upp reikninga félagsins fyrir iiðið starfsár. 5. Gjaldkeri Húsbyggingarsjóðs, Sigurður Árnason, las upp reikninga sjóðsins. 6. Formaður Húsbyggingarsjóðs, Frímann Ólafsson, gaf yfirlit yfir rekstur Húsbygg- ingarsjóðs. 7. Formaður veitinganefndar Egill Gutt- ormsson, gaf skýrslu um rekstur féiags- heimilisins. 8. Formaður skemmtinefndar, Guðmundur Guðmundsson, gaf yfirlit yfir störf nefnd- arinnar á árinu og fjárhagsafkomu á þeim skemmtikvöldunum er haldin hafa verið í félaginu og annað þaraðlútandi. 4 9. Reiknmgar félagsins bornir upp til sam- þykktar í einni heild og voru þeir sam- þykktir í einu hljóði, athugasemdalaust. 10. Stjórnarkosning. Formaður var endurkosinn, Hjörtur Hans- son, kaupmaður. Úr stjórninni áttu að ganga að þessu sinni þeir: Stefán G. Björnsson, fulltrúi, Adolf Björnsson, bankamaður, Sveinn Helgason, stórkaupmaður. í stað þeirra voru kosnir: Oddur H. Helgason, útgerðarmaður, Lúðvík Hjálmtýsson, verzlunarmaður, Baldur Pálmason, verzlunannaður. En fyrir eru í stjórninni þeir: Bergþór E. Þorvaldsson, stórkaupm., Lárus Bl. Guðmundsson, bóksali og Konráð Gíslason, kaupmaður. I varastjórn voru kosnir þeir: Egill Guttormsson, stórkaupmaður, Guðjón Einarsson, verzlunarmaður, Stefán G. Björnsson, fulltrúi. Endurskoðendur voru endurkosnir þeir: Þorsteinn Bjarnason, bókari, Einar Björnsson, fyrv. verzlunarstj. Varaendurskoðendur voru einnig endur- kosnir þeir: Egill Daníelsson, fulltrúi og Einar Guðmundsson, stórkaupm. 11. Kosning fastra nefnda: f Húsnefnd voru kosnir: Oddur H. Helgason, útgerðarmaður, FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.