Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1943, Blaðsíða 5

Frjáls verslun - 01.07.1943, Blaðsíða 5
Eyjólfur Jóhannson, forstjóri, Sigurður Árnason, kaupmaður, Tómas Pétursson, fulltrúi, Gunnar Jónsson, verzlunarstjóri. í Bókasafnsnefnd voru kosnir: Lárus BI. Guðmundsson, bóksali, Páll Jóhannson, verzlunarmaður, Hjálmar Blöndal, fulltrúi. í Heiðursfélaganefnd voru endurkosnir þeir: Guðm. J. Breiðfjörð, blikksmiður, Sigurjón Jónsson, kaupmaður, Halldór Jónsson, kaupmaður, Guðm. Kr. Guðjónsson, verzlunarstj., Jón Guðmundsson, kaupmaður. I Fulltrúaráð Verzlunarskóla fslands voru endurkosnir þeir: Frímann Ólafsson, fulltrúi og Stefán G. Björnsson, fulltrúi. Var aðalfundur þessi fjölsóttur og fór að öllu leyti vel fram og skipulega. Skýrsla formanns V. R. Góðir félagar! ! Eins og síðasta fundargerð bar með sér, þá gaf eg stutt yfirlit yfir störf félagsins á umliðnu starfstímabili. Er því ekki hægt að komast hjá því við þessa skýrslu mína, að á verði nokkrar endurtekningar á því er eg áður hefi sagt, — en þar sem nú er aðalfundur félagsins og sjálfsagt er að fram komi í höfuðdráttum það sem aðhafst hefur verið í félaginu á síðasta starfsári, vona eg að fundarmenn taki máli mínu eins og það nú liggur fyrir. Síðan á síðasta félagsfundi, þá hefur einn af okkar góðu félögum látist, Tryggvi Magnússon, verzlunarstjóri. Bið eg því fundarmenn að rísa úr sætum sínum í virðingarskyni við hinn látna. félaga. Með því að ekkert það hefir legið fyrir, sem gefið hefur tilefni til að kalla saman félagsfundi, þá er það ástæðan fyrir því, að fundir hafa ekki verið haldnir. Það skal þó tekið fram, að einn stórviðburður skeði á árinu, sem af sér- stökum ástæðum var ekki hægt að segja frá á félagsfundi eins og sakir stóðu, en ég mun hins vegar koma að því síðar í þesari skýrslu minni. Þess skal getið, að reynt hefur verið að fá FRJÁLS VERZLUN ýmsa góða menn til að flytja erindi um verzlun- armál og annan fróðleik og með því komaáfund- um í félaginu, en vegna þess hvað slíkir menn hafa verið önnum kafnir, sem við höfum leitað til, þá hafa þeir, þrátt fyrir góðan vilja þeirra og undirtektir, ekki getað orðið við óskum stjórnarinnar í því efni og þar afleiðandi brugð- ist vonum vorum. Þær breytingar, sem orðið hafa á starfstil- högun félagsins, síðan félagið eignaðist sitt eigið heimili, hefur orðið þess valdandi að öll störf og framkvæmdir ganga að mestu í gegnum skrifstofu félagsins, um leið og þau einnig eru unnin af hinum ýmsu starfandi nefndum. Félagið hefur orðið sérstaklega heppið í vali sínu hvað snertir skrifstofustjórann og ráðs- konu félagsheimilisins. Þau hafa bæði, að mínum dómi og eg hygg þeirra annara er til þekkja, unnið störf sín af mikilli prýði og samviskusemi. Einn félagsfundur hefur verið haldinn á étarfsárinu, en 25 stjórnarfundir, þar sem tekin hafa verið fyrir ýms mál varðandi starfsemi félagsins og teknar til athugunar og samþyktar þær inntökubeiðnir er stjórninni hafa borist á hverjum tíma. < Á síðasta aðalfundi var tala félaga 1006 með þeim sem þá voru settir á aukaskrá, en síðan hafa bæst við 148 nýir félagar, sem gerir samtals .................. 1174 félagar nú settir á aukaskrá 15 1159 Útstrikanir v. úrsagna og skulda 24 1135 Dánir ............... 7 Á aðalskrá því nú .... 1128 Á aukaskrá .......... 44 Heiðursfélagar......... 13 Félagar samtals: 1185 Eins og venja hefur verið til, þá hélt félagið jólatrésskemmtanir fyrir börn félagsmanna 6 kvöld í röð, 4.—9. janúar, að heimili félagsins. Sóttu þessar skemmtanir 535 börn, fyrir utan fullorðið fólk, er var í fylgd með börnunum. Þóttu þessar skemmtanir takast prýðilega og ríkti almenn ánægja hjá þeim er þær sóttu. Sér- staklega þykja þessar skemmtinir heimilislegar, 5

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.